Skinfaxi - 01.12.1992, Page 6
28. sambandsráðsfundur UMFÍ 1992:
Unglingalandsmótin
komin til að vera
Akveðið hefur verið að stefna
aðþvíað halda 2. unglingalands-
mót Ungmennafélags íslands
árið 1995. Þetta var samþykkt á
28. sambandsráðsfundi UMFÍ,
sem haldinn var í Varmahlíð I
Skagafirði 31. október síðastlið-
inn. Einnig samþykkti fundurinn
að fela stjórn UMFÍað skipa
nefnd til að semja reglugerð fyrir
unglingalandsmót UMFÍ, sem
lögð verði fyrir næsta sambands-
þing UMFÍ til afgreiðslu.
Hluti fulltrúa ú sambandsrúðsfundi UMFÍ, sem haldinn var í Varmahlíð.
Samkvæmt 7. grein laga UMFÍ er
sambandsráð skipað formönnum hér-
aðssambanda og félaga með beina aðild
að UMFI eða varamönnum þeirra. Þá
eiga stjórn og varastjórn UMFÍ sæti í
sambandsráði. Hefð er fyrir því að fund-
inn sitji einnig framkvæmdastjórar sam-
bandsaðila.
Óhætt er að segja, að unglingalands-
mót UMFÍ, sem haldið var á Dalvík,
hafi skipað háan sess á því starfsári
hreyfíngarinnar, sem nú er að líða. Þótti
það takast með afbrigðum vel í alla staði
og vera til sóma öllum þeim sem hlut
áttu að máli. Á sambandsráðsfundinum
var samþykkt að senda sérstakar þakkir
til UMSE og bæjarstjórnar Dalvíkur
fyrir vasklega framgöngu við að und-
irbúa og halda unglingalandsmót UMFÍ
og skapa þá aðstöðu sem nauðsynleg var
til að mótið tækist svo vel sem raun bar
vitni.
A ðrir þættir starfsins
Af öðrum þáttum starfsins má nefna
hið árlega framkvæmdastjóranámskeið,
sem haldið var að Varmalandi í Borgar-
firði í lok maí sl. nú undir heitinu
„Vornámskeið.“ Þátttaka var mjög góð
að þessu sinni, því um 30 manns úr sam-
böndum og félögum um allt land mættu
til leiks.
Hefur verið lögð á það áhersla, að
námskeiðið nýtist öllu forystufólki í
hreyfingunni.
Starfsemi félagsmálaskólans var með
hefðbundnu sniði á þessu starfsári. Nýtt
námsefni hefur þó skotið upp kollinum,
en það er skokknámskeið, sem Sigurður
P. Sigmundsson hefur umsjón með.
Þess má geta, að á árinu bauð UMFÍ
aðildarfélögunum upp á slík námskeið í
samvinnu við Sigurð Pétur. Haldin voru
fjögur námskeið, á Akranesi, Seyðis-
firði, Höfn í Hornafirði og í Bolungar-
vík. Þátttaka var prýðileg, þátttakendur
á öllum aldri og misjafnlega langt komn-
ir í íþróttinni. En allir áttu það sam-
merkt að hafa gagn og gaman af.
Ur starfi félagsmálaskólans má einnig
nefna námsefni fyrir foreldrastarf í félög-
um. Hefur fengist styrkur frá mennta-
málaráðuneytinu til þess að vinna það
áfram. Allmörg önnur námskeið hafa
verið haldin á vegum skólans undan-
-samþykkt að halda næsta mót 1995
6
Skinfaxi