Skinfaxi - 01.12.1992, Síða 7
farna mánuði, sem of langt yrði að telja
upp hér.
Vert er að geta bréfaskólans, sem nú
hefur starfað um 50 ára skeið og notið
sívaxandi vinsælda. Hann gefur fólki
kost á að afla sér margvíslegrar fræðslu
og þekkingar. Er ástæða til þess að benda
félögum á þá möguleika, sem hann hefur
upp á að bjóða og kynna félagsmönnum
námsefni hans eftir því sem kostur er.
Hér hefur verið drepið á fáeina þætti
í starfi hreyfingarinnar. Af miklu fleiru
er að taka, en hér verður látið staðar
numið.
Kynningardagar
í Fellsmúla
Á sambandsráðsfundinum voru sam-
þykktar allmargar tillögur, þar á meðal
eftirfarandi:
- að fela framkvæmdastjórn UMFI
og starfsliði, að halda kynningardaga í
þjónustumiðstöð UMFÍ að Fellsmúla
26. Þangað verði boðaðir forsvarsmenn
sambandsaðila, nokkurra í senn, og þeim
kynnt aðstaðan og starfið hjá heildar-
samtökunum, þannig að félögin fái betri
innsýn í hvað upp á er boðið í þjón-
ustumiðstöð UMFÍ og geti gefið ábend-
ingar um hvað betur megi fara.
- að hvetja stjórn UMFÍ til þess að
Fjórir galvaskir formenn, f.v. Sigurlaug Svavarsdóttir formaður HSÞ, Ragnheidur
Högnadóttirformaóur, USVS, Hólmfríður Halldórsdóttirformaður UNÞ og Þurið-
ur Árnadóttir formaður UMSE.
ráða erindreka til þess að gegna félags-
málafræðslu, útbreiðslu og kynningu á
íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, ásamt út-
breiðslu almenningsíþrótta.
- að hvetja héraðssambönd og félög
til að nýta sér þá aðstöðu sem íþrótta-
miðstöð íslands á Laugarvatni býður
upp á fyrir íþróttahópa, fundi og nám-
Pálmi Gíslason formaður UMFÍ afhenti Sigurði Viðari Sigmundssyni starfsmerki
UMFÍ á fundinum.
Ekkert
afengi
28. sambandsráðsfundur UMFÍ
hvetur ungmenna- og íþróttafélög
til að sjá til þess að i keppnisferðum
sé áfengi og/eða önnur vímuefni
ekki höfð um hönd, þótt keppni
sé lokið. Keppnisferð er ekki lokið
fyrr en heim er komið.
Þá felur fundurínn stjóm UMFÍ
að efna til viðræöna við yfirvöld
löggæslu- og dómsmála í iandinu
með það að markmiði að útihátíðir
ungmennafélaganna geti farið fram
með myndarbrag og að eftír föng-
um verði komið í veg íyrir að örla-
ir samkomugestir geti spillt ánægju
þeirra þúsunda sem komin eru til
að njóta samvista í vinsamlegu
menningarlegu umhverfi.
og
Skínfaxi
7