Skinfaxi - 01.12.1992, Page 8
Fundarmenn unnu af kappi í nefndunum og hér er ein nefndin að störfum.
Myndir: Ingimundur
skeiðahald. Einnig að hvetja stjórn
íþróttamiðstöðvarinnar til að efla kynn-
ingu á starfseminni.
- að fela framkvæmdastjórn UMFÍ
að skipuleggja æfíngabúðir t.d. um helg-
ar eða páska í ÍMÍ á Laugarvatni, eða
á öðrum stöðum á landinu. Sambands-
aðilum verði gefinn kostur á að senda
einstaklinga til þátttöku, en UMFÍ sjái
um að útvega þjálfara og fararstjóra, svo
og skipulag dagskrár.
- að beina því til sambandsaðila að
kanna möguieika á að halda ungmenna-
búðir og leiktækjanámskeið.
ERÐLAUNAPENINGAR
stærð 42 mm.
Verð 250 kr. stk.
með áletrun
Einnig míkifi úrval af bikurum
og öfirum verölaunagripum.
Pantifi tímanlega.
GULLSMIOIR
Sigtryggur & Pétur.
Brekkugötu 5 - Akureyri.
S. 96-23524 Fax 96-11325
Glæsileg útgáfa
Fundurinn þakkar þeim Jóhanni Sig-
urðssyni og Sigurði Viðari Sigmundssyni
sérstaklega fyrir útgáfu hinnar glæsilegu
bókar „Saga landsmóta UMFÍ 1909 -
1990.“ Jafnframt var samþykkt, að
hvetja ungmennafélaga um allt land til
að vinna að sölu bókarinnar eftir bestu
getu. Því má bæta við, að hún kostar
aðeins 5.980 krónur í góðu bandi. Hún
er 550 blaðsíður, prýdd um 700 mynd-
um. Einnig er hægt að fá sérstaka hátíð-
arútgáfu í skinnbandi.
Þá fagnar fundurinn því hversu vel
ungmennafélögin hafa staðið að um-
hverfisverkefninu „Fósturbörnin" og
Atvinnu-
leysi
28. sambandsráðsfundur UMFÍ
lýsir yfir miklum áhyggjum vegna
þess slæma atvinnuástands sem nú
rt'kir. Atvinnuleysi er einn mesti
bölvaldur fólks og getur leitt til
mikillar ógæfu. Fundurinn sam-
þykkir að UMFÍ styðji stjórnvöld,
sveitarstjómir og aðra aðila vinnu-
markaðarins til að leita allra leiða
til að efla atvinnu að nýju og reyna
allar aðrar sparnaðarleiðir, áður en
gripið er til uppsagna starfsfólks.
hvetur til myndarlegs átaks á næsta ári,
sem er 3. ár verkefnisins. Eru ungmenna-
félögin hvött til að vinna áfram í anda
verkefnisins.
Loks þakkar fundurinn fjárlaganefnd
Alþingis fyrir stuðning við UMFÍ á liðn-
um árum. Fundurinn vekur athygli á
hinu mikilvæga æskulýðsstarfi, sem unn-
ið er hjá ungmennafélagshreyfingunni
og að félagafjöldi hennar hefur tvöfald-
ast á síðustu 10 árum. Hann var í árslok
1991 44.575.
Eflum
íslenskt
Á 28. sambandsráðsfundi
UMFÍ var samþykkt að hvetja
ungmennafélaga, svo og alla aðra
þjóðholla íslendinga, til að halda
vöku sinni hvað varðar kaup á
íslenskri framleiðslu. í samþykkt-
inni segir, að í því atvinnuástandi
sem nú ríki geti jjað skipt sköpum
fyrir þúsundir íslendinga að is-
lensk vara sé keypt fremur en inn-
flutt. Felur fundurinn stjórn
UMFÍ að kanna möguleikana á
að endurvekja baráttuna undir
kjörorðinu: „Efium íslenskt," í
samvinnu við sambandsaðila og
aðra sem áhuga hafa.
8
Skinfaxi