Skinfaxi - 01.12.1992, Side 22
Unglingameistaramót Islands
Mörg frábær sundafrek
Tvö íslandsmet voru sett á Ungl-
ingameistaramóti íslands 17 ára og
yngri, sem fram fór í Sundhöll Reykja-
víkur í byrjun nóvember. Lára Hrund
Bjargardóttir, Ægi, 11 ára, setti meyja-
met í 200 metra bringusundi. Hún synti
á 2:59,67 mínútum. Þá setti Eydís Kon-
ráðsdóttir, SFS, íslandsmet í 50 metra
flugsundi telpna. Hún synti á 30,65 sek-
úndum, sem einnig var besta afrekið hjá
stúlkunum.
Hildur Einarsdóttir, KR, sigraði í 100
og 400 metra skriðsundi.
Piltarnir stóðu sig ekki síður en stúlk-
urnar. Ómar Þorsteinn Árnason, Óðni,
sigraði í fjórum greinum og náði góðum
tíma. Hann hreppti gullið í 100 og 200
metra flugsundi, 100 metra skriðsundi
og í 400 metra Qórsundi. Þá synti Magn-
ús Konráðsson, SFS, 100 metra bringu-
sund á tímanum 1:09,50 mínútum. Telst
það besta afrek mótsins hjá piltunum.
Magnús er raunar bróðir Eydísar og er
víst, að þau systkinin eiga eftir að koma
frekar við sögu á sundmótum vetrarins.
Elvar Daníelsson frá Hvammstanga
sigraði með talsverðum yfirburðum í
1500 metra skriðsundi. Hann hefur dval-
ið í Svíþjóð síðastliðin þrjú ár og æfði
þar sund undir leiðsögn góðs þjálfara.
Elvar Daníelsson, USVH, hefur aft í
Svíþjóó að undanförnu. Hann sigradi
með nokkrum yjirburðum í 1500 metra
skriðsundi.
Stúlkurnar sem náðu bestum árangri í 100 metra bringusundi. Fremst t.v. Berglind
Daðadóttir, SFS, sem sigraði, og Hildur B. Kristjánsdóttir, Ægi, sem varð í 2.
sceti. Fyrir aftan: Hólmfríður Asa Guðmundsdóttir, UMSB, sem varð í 3. sœti og
Kristín Guðmundsdóttir, KR, sem hafnaði í 5. sœti.
Fjölmargir íslenskir
íþróttamenn
nota eingöngu
Rehband
hitahlífar h|ffjr
2== Styður^
shit or^sy
(ksmo
Trönuhrauni 8 220 Hafnarfiröi Sími 91-652885 Opiö frá 8 til 17
22
Skinfaxi