Skinfaxi - 01.12.1992, Qupperneq 23
Vísnaþáttur
Hagyrðingar brugðu hart við þegar
gefið var í skyn í síðasta vísnaþætti, að
hann yrði hugsanlega lagður niður vegna
dræmrar þátttöku við botnana.
Nú koma fram á sjónarsviðið nýir ein-
staklingar sem ekki hafa áður sent botna.
Anægjulegt er að finna að þessi hugar-
íþrótt á enn mikil ítök í ungmennafélög-
um og að hagyrðinghópurinn hefur end-
urnýjast.
Hlíf Sigurðardóttir Hrísakoti
Hvammstanga sendi eftirfarandi botn:
Vetur nálgast nöpur tíð
nú mun taka völdin.
Jákvæð eftir jólum bíð
með jólaljós á kvöldin.
Jón Stefánsson á Dalvík botnaði vísuna
svona:
Vetur nálgast nöpur tíð
nú mun taka völdin.
Með fárviðri og fimbulhríð,
fært á söguspjöldin.
Vignir Örn Pálsson á Grund, Hólma-
vík, sendir ekki einn botn, heldur tvo:
Vetur nálgast nöpur tíð
nú mun taka völdin.
Ungmennastundin er undurblíð
oft um sumarkvöldin.
Vetur nálgast nöpur tíð
nú mun taka völdin.
Ljóðin efla æskulýð
oft um vetrarkvöldin.
Ingibjörg Halldórsdóttir Ásgarði 12 í
Reykjavík botnar vísuna svona:
Vetur nálgast nöpur tíð
nú mun taka völdin.
En yndið, sem ég eftir bíð,
eru vetrarkvöldin.
Sigurlás Demantur skrifar eftirfar-
andi:
„Okkur vísnavinum þætti mjög miður
ef vísnaþáttur Skinfaxa félli niður. Ég
hef oft ætlað að senda inn botna en ein-
hverra hluta vegna hefur það ætíð farist
fyrir. En þar sem það lítur út fyrir að
það sé nú eða aldrei, þá sendi ég þennan
botn:“
Vetur nálgast nöpur tíð
nú mun taka völdin,
burtu horfin blómin fríð
og blessuð sumarkvöldin.
Bjarni Ingibergsson Fífuseli 32 Reykja-
vík segist einnig vilja stuðla að langlífi
vísnaþáttarins. Hann sendir eftirfarandi
botn:
Vetur nálgast nöpur tíð
nú mun taka völdin.
Vösk nú heíjum vísnasmíð
um vetrar löngu kvöldin.
Með hækkandi sól eykst bjartsýni hjá
fiestum og með það í huga er fyrripart-
ur í jólablaði Skinfaxa settur saman.
Ég óska lesendum blaðsins gleðilegra
jóla og gæfu og gengis á nýju ári og
hvet alla vísnavini til dáða.
Horfðu fram á hlýlegt ár
þá hjartans óskin rætist.
Ingimundur
HÓTEL VARMAHLÍÐ
Skagafirði - Sími 95-38170
í gistihúsinu bjóöum við gistingu, heitan
mat, kaffi og margs konar þjónustu.
Á staðnum er einnig sundlaug, gufubað,
félagsheimili, póst- og símstöð og fleira.
Opið frá kl. 8.00 - 23.30.
íþróttafólk!
Við útbúum fyrir ykkur það
sem þið þurfið til verðlauna
og viðurkenningar.
Hringið og fáið
myndalistann okkar.
Skinfaxi
23