Skinfaxi - 01.12.1992, Page 25
Brekkusel heitir hœm, hinn nýi skáli skíóafélagsins á Dalvík.
menn bara að fara heirn. Nú setjumst
við inn í skála og horfum á videóupp-
tökur af okkur á æfingum. Þannig er
hægt að grípa til þess þáttar kennslunn-
ar, þegar ekki viðrar til æfinga í brekkun-
um.
Námskeið á veturna
Skíðafélagið hefur staðið fyrir ýmiss
konar skíðanámskeiðum yfir vetrartím-
ann. Það hefur 2-4 þjálfara á sínum
snærum sem einnig hafa séð um byrj-
endakennslu í öllum flokkum.
„Það eru fyrst og fremst Dalvíkingar
sem hafa notfært sér þessi námskeið. Þau
standa það lengi, að þau hafa ekki hent-
að aðkomufólki. Við höfum ekki boðið
upp á helgar- eða dagsnámskeið, vegna
þess að við höfum ekki getað boðið fólki
upp á gistingu. Eg veit ekki, hvort við
munum bjóða upp á styttri námskeið í
vetur, það hefur ekki verið ákveðið enn.“
Skíðaáhugi er mjög mikill á Dalvík. Á
annað hundrað börn og unglingar hafa
stundað kennslu og æfingar á svæðinu.
Snjórinn, eða öllu heldur snjóleysið, hef-
ur þó sett strik í reikninginn eins og
áður sagði, því hópurinn þynnist þegar
ekki er hægt að stunda reglulegar æfing-
ar. Eða eins og Jóhann orðaði það:
„...maður veit ekki hvað skilar sér, ef
við fáum snjó í vetur.“
En til marks um skíðaáhugann á Dal-
vík má geta þess að í hitteðfyrra voru
20-30 manns í byrjendakennslu.
„Oft eru þetta mömmur og pabbar
sem eiga lítil börn, sem eru að byrja á
skíðum,“ sagði Jóhann. „Þau vilja gjarn-
an fylgja börnunum sínum eftir, fá sér
einfaldlega útbúnað og skella sér á nám-
skeið."
Á Dalvík hafa venjulega verið haldin
1 - 2 bikarmót á vetri, eins og áður
sagði. Þau hafa ýmist verið í unglinga-
eða fullorðinsfiokkum. Síðastliðinn vet-
ur hugðust Dalvíkingar svo halda lands-
mót. En þeir urðu að breyta áætluninni
og halda það á Akureyri, með Akur-
eyringum, vegna snjóleysis á Dalvík.
Fullkomin aðstaða
Það eru dyntir veðurguðanna sem
hafa þannig sett strik í reikninginn hvað
eftir annað í skíðabrekkunum þar
nyrðra.
„Við erum með tvær alþjóðabrekkur
útteknar í svigi og eina í stórsvigi, þann-
ig að við erum mjög vel settir. Við getum
því haldið öll þau mót sem FÍS (alþjóða-
skíðasambandið) býður upp á. Við héld-
um raunar alþjóðamót hérna fyrir tveim
árum. En yfirleitt eru þessi mót ekki
haldin fyrr en seint í apríl og á þeim tíma
treystum við ekki á snjóinn, því svæðið
liggur ekki svo hátt yfir sjávarmáli. Við
höfum því dregið okkur út úr FÍS- mót-
unum.“
Jóhann sagðist ekki geta sagt um, enn
sem komið væri, hvers konar mót yrði
haldið á Dalvík í vetur. Það yrði þó lík-
lega í fiokki 15-16 ára. Annars stæði
til að breyta mótshaldinu, reyna að halda
þriggja daga mót og minnka þátttöku-
kostnaðinn við þau.
Varðandi námskeið í vetur sagði Jó-
hann að enn hefði ekkert verið ákveðið
í þeim efnum. Nú væri verið að reyna
að fá sænskan þjálfara, Per Ulfman að
nafni, til liðs við félagið og væri útlit
fyrir að hann myndi kenna hjá skíðafé-
laginu í vetur.
„Okkur langaði til að breyta til og
eftir því sem sagt er um þennan mann,
þá er hann mjög góður og fær. Þetta er
því spennandi dæmi.“
Margir góðir skíðamenn
Dalvíkingar hafa átt marga góða
skíðagarpa í gegnum tíðina. Af þeim sem
hafa staðið ofarlega má nefna Svein
Brynjólfsson, Bjarma Skarphéðinsson,
Val Traustason, Svein Torfason og Evu
Bragadóttur.
„Til viðbótar þessum er fullt af góðum
skíðakrökkum hérna,“ sagði Jóhann.
„Það er bara spurningin hvað þau halda
lengi áfram.“
Talsvert hefur verið um það, að að-
komufólk sæki til Dalvíkur til að fara á
skíði. Þá leggur það einnig leið sína í
auknum mæli til Akureyrar. Svo háttar
til, að þegar suð-vestanátt er ríkjandi,
þá getur verið versta veður á Akureyri,
en Iogn og blíða á Dalvík. Við þær að-
stæður flykkist fólk frá fyrrnefnda staðn-
um til hins síðara, til að komast í brekk-
urnar.
„Við ætlum að reyna að byggja þetta
svolítið upp á ferðamönnum,“ sagði Jó-
hann. „og erum meðal annars að því
með þessu húsi, sem við erum búin að
reisa. Bærinn styður mjög vel við bakið
á okkur í þessu. Svo liggur óhemju sjálf-
boðavinna á bak við allar þær fram-
kvæmdir sem átt hafa sér stað á svæð-
inu. Ég hugsa að um 96 prósent af þeim
hafi verið unnar í sjálfboðavinnu. Það
eru ófá handtökin sem unnin hafa verið
í þágu skíðaíþróttarinnar hér og menn
hafa ekki talið það eftir sér að leggja
okkur lið þegar við höfum þurft á að
halda. Það er mjög ánægjulegt þegar
allir leggjast á eitt við uppbyggingu sem
þessa. Það gefur henni enn meira gildi
en ella.“
2S
Skinfaxi