Skinfaxi - 01.12.1992, Síða 31
EININGIN100 ARA
- minningabrot úr sögu félagsins
Ungmennafélagið Einingin í
Bárðardal minnist merkra tima-
móta um þessar mundir, því á
þessu ári eru liðin 100 ár frá
stofnun þess. Afmælisins var
minnst 14. nóvember síðastliðinn
með veglegri samkomu, að við-
stöddu fjölmenni. Eftirfarandi er
úrdráttur úr ræðu Hjördísar
Kristjánsdóttur, sem hún hélt við
það tækifæri.
Einu sinni var...
Sjötta desember árið 1892 kom hópur
af ungu fólki saman á Jarlsstöðum í
Bárðardal. Þar stofnaði það „Skemmti-
félagið Eininguna" með 20 félögum. í
fyrstu stjórn félagsins voru: Sigurgeir
Jónsson á Stóruvöllum, formaður, Hlín
Jónsdóttir á Sandhaugum og Sigurgeir
Jónsson á Jarlsstöðum, meðstjórnendur.
Það vekur athygli að strax í fyrstu
stjórn félagsins var kona. Þessi kona
sýndi það síðar, að hún batt yfirleitt
ekki bagga sína sömu hnútum og sam-
ferðamenn, en það var hún sem annað-
ist Einar skáld Benediktsson á síðustu
æviárum hans í Herdísarvík.
Félagið „starfaði af krafti" og félögum
fjölgaði brátt. A fundunum voru ræðu-
höld, söngur, stundum glímur og dans.
Fyrstu lög félagsins voru ekki til í
bók, en á aðalfundi 22. nóvember 1910
eru samþykkt lög þess. Fyrsta grein er
þannig: „Tilgangur félagsins er að efla
félagsskap og framfarir og halda uppi
skemmtunum í hreppnunr. I lögunum
kemur fram, að árgjald er ein króna. I
lögum frá 1926 er fyrsta greinin svo-
hljóðandi: „Félagið heitir Einingin." Sú
grein hefur haldist óbreytt síðan. Félag-
starfið sýndist breytingalítið fram undir
1910. En með stofnun Ungmennafélags
Akureyrar 1906 og fleiri ungmennafé-
laga sem á eftir fylgdu, sem höfðu skóg-
rækt og íþróttir á stefnuskrá sinni, má
segja að félagið fari að taka lit af þessum
nýju áherslum. Þá verður einnig sýnileg
þörf fyrir aukna fjáröflun.
Samband þingeyskra ungmennafélaga
var stofnað 1914. U.M.F. Einingin var
eitt stofnfélaganna og var í sambandinu
næstu 11 ár. S.U.Þ. breyttist í „Þingey-
ing" 1941 og í Héraðssamband Suður-
Þingeyinga 1942. Það árgengur Einingin
aftur í sambandið, eftir að hafa staðið
utan þess í 15 ár og hefur verið í því
síðan.
Svo iíða árin
A 2. og 3. áratug þessarar aldar er
áfram safnað í „hússjóðinn," svonefnda.
Þegar hreppurinn byggir samkomuhús í
Sandvík 1927 leggur ungmennafélagið í
þá byggingu 1061 krónu og hefur jafn-
framt leyfi til að nota húsið að vild.
Fögnuðurinn hefur áreiðanlega verið
mikill.
Einingin hafði eignast landsspildu í
Halldórsstaðaskógi árið 1920. Það var
ekki þrautalaust að grisja, slétta, hlaða
kanta, planta og síðast en ekki síst, að
girða svæðið. Nú er fullplantað í reitinn
og þroski stafafurunnar á þessum stað
er með því besta sem gerist. Þessi reitur
er orðinn falleg og góð eign, sem við
erum öll stolt af í dag.
Stöðugt var líka verið að safna fé til
einhverra baráttumála, svo sem fyrir
Laugaskóla, Kristneshæli og líka lestrar-
félagið hér heima. Árið 1928 er sam-
þykkt að leggja þegnskylduvinnu á félag-
ana, l/2 dagsverk á ári, til styrktar þeim
sem voru að byggja nýbýli. Einnig til
styrktar þeim sem yrðu fyrir sérstökum
áföllum. Þessi þegnskylduvinna var við
lýði a.m.k. næsta áratuginn.
Skinfaxi
SJ