Skinfaxi - 01.12.1992, Side 34
/ nýja húsnœðinu í Fellsmúla 26, f.v. Pálmi Gíslason formaður UMFÍ, Sœmundur Runólfsson fram-
kvcemdastjóri, og starfsmennirnir Halldóra Gunnarsdóttir, Hörður S. Oskarsson og Sigrún Sœvars-
dóttir.
UMFÍ í nýju húsnæði
Að undanförnu hefur verið unnið
jafnt og þétt að endurbótum á húsnæði
þjónustumiðstöðvar UMFÍ í Fellsmúla
26, en þangað flutti UMFÍ 1. október
sl. Flúsnæðið að Öldugötu 14 hefur ver-
ið selt.
Ekki var unnt að taka gistirýmið í
Fellsmúlanum í notkun um leið og flutt
var, því gera þurfti á húsnæðinu talsverð-
ar endurbætur til þess að svo gæti orðið.
Standa vonir til þess að hluti þess verði
kominn í gagnið þegar blaðið kemur
fyrir augu lesenda.
Reynslan að undanförnu hefur sýnt
að mjög brýn þörf er fyrir gistiþjónustu
eins og þá er UMFÍ hefur boðið upp á.
I maí sl. komu 266 manns til gistingar í
þjónustumiðstöð UMFÍ, sem þá var að
Öldugötu 14. í febrúar sl. voru gistinæt-
urnar 536 talsins og hafa ekki orðið
fleiri á einum mánuði í nokkur ár. Gest-
ir í janúar - október á þessu ári voru
1.584 talsins og gistinætur 3.118.
Á fyrri hluta þessa árs var engan veg-
inn hægt að anna eftirspurn og varð að
vísa hópum frá um hverja einustu helgi.
Það var því orðin brýn þörf á að stækka
húsnæðið.
Leitað stuðnings
En nú mun sumsé rætast úr með nýju
húsnæði í Fellsmúlanum. Þar verða, auk
skrifstofuhúsnæðis og gistiálmu, eldun-
araðstaða, sturtur, setustofa, geymslur
og fundaaðstaða.
Þórir Jónsson vinnur afkappi viðgistiað-
stöðuna. Mynd: HJS
Þar sem framkvæmdir við nauðsyn-
legar endurbætur á húsnæðinu hafa
reynst umfangsmiklar og fjárfrekar var
ákveðið að leita til sveitastjórna, félaga
og sambandsaðila um fjárstuðning við
þær. Sú umleitan hefur því miður ekki
skilað nógu góðum árangri. Þó hafa
mörg smærri sveitarfélög og félög sent
framlag. Árskógshreppur gaf til dæmis
fimmtíu þúsund krónur og Ungmenna-
félagið Fjölnir í Grafarvogi ákvað að
gefa sem nemur 10 prósent af lottótekj-
um í heilt ár. Ekki má gleyma framlagi
sjálfboðaliða, sem lagt hafa drjúga hönd
á plóginn.
Þess má geta, að á 28. sambandsráðs-
fundi UMFÍ, sem haldinn var í lok októ-
ber var samþykkt að hvetja aðildarfélög
UMFÍ um að leggja sitt af mörkum til
uppbyggingar á gistiaðstöðunni í Fells-
múla 26 og leggja fram fjárupphæðir að
upphæð 5000 - 50.000 kónur eftir stærð
og fjárhagsaðstæðum hvers félags, eða 5
- 10 krónur fyrir hvern gjaldskyldan fé-
laga. Allur stuðningur er mikilvægur og
vel þeginn og sýnir góðan hug til verk-
efnisins.
34
Skinfaxi