Skinfaxi - 01.12.1992, Side 35
Samtakamáttur og
samstarfsvilji í verki
- Ávarp Loga Kristjánssonar formanns Ungmennafélagsins Breiðabliks í 70 ára afmælishófi UMSK
Ágæta afmælisbarn, góðir gestir!
Fyrir hönd Ungmennafélagsins
Breiðabliks óska ég afmælisbarninu, for-
ystumönnum og félögum nær og í]ær til
hamingju með þennan áfanga og færi
þeim bestu þakkir fyrir ánægjulegt og
árangursríkt samstarf á liðnum árum.
Á tímamótum sem þessum kemur
margt upp í hugann, ekki síst tilgangur-
inn með starfi ungmennafélaga fyrr og
nú.
Upp rifjast áhersla formanna á að
halda jafnvægi á milli Iíkamlegs og and-
legs þroska. Við þekkjum einnig frá sög-
unni, að þótt uppeldishugsjónin „hraust
sál í hraustum líkama“ hafi vakað fyrir
margri kynslóð, þá hefur uppeldið þegar
til framkvæmda kom, reikað allmjög frá
þeirri meginreglu að hafa jafnvægi hins
andlega og líkamlega þroska að mark-
miði. Ymist hefur líkamsmenningin eða
sálaruppfræðslan setið í fyrirrúmi.
Við stofnun Ungmennafélaganna
voru líkamsrækt og íþróttir aðeins einn
liður í mannrækt. Ungmennafélögin skil-
uðu þýðingarmiklu hlutverki í sjálfstæð-
isbaráttunni, þar sem þau fóru í fylking-
arbrjósti við að eyða flokkahatri og póli-
tískum flokkadráttum í því þýðingar-
mikla máli.
Slakað á þáttum mann-
ræktar?
Þetta rifjaðist upp fyrir mér, þar sem
ég sat og fletti Mogganum um svipað
leyti og ég tók upp boðskortið hingað,
og sá þar teiknimynd Sigmundar „Frjáls
för launafólks innan evrópska efnahags-
svæðisins“ og ágætur maður í broddi
fylkingar segir:
„Sjáið þið bara alla skóna sem við
getum burstað.“
Það hvarflaði að mér eitt andartak
að hreyfmg okkar hafi slakað á einhverj-
um þáttum mannræktarinnar. Hvort
sem sú hugsun á við rök að styðjast eða
ekki, þá er ég sannfærður um að á þess-
um rniklu umbrotatímum þar sem hver
svartnættisrausholskeflan á fætur ann-
arri gengur yfir þessa þjóð er þýðingar-
meira en oft áður að samtök, félög og
einstaklingar sinni öllum þáttum mann-
ræktar og reyni að halda sjó svo hvergi
hallist.
Logi Kristjánsson.
En umhugsunin um starf með UMSK
kallar fram margar skemmtilegar minn-
ingar. Fyrir okkur flest eru það án efa
landsmótin, sem tengja okkur saman.
Um þau hefur nú verið gefin út hin ágæt-
asta bók og því að bera í bakkafullan
lækinn að minnast á þau.
Á síðasta landsmóti, sem var í umsjón
UMSK, sýndu félagarnir í verki sam-
takamáttinn og samstarfsviljann.
UMSK vann þarna stóran íþróttasigur
í drengilegum leik. En UMSK vann einn-
ig stóran sigur með því Ijölbreytta og
Ijölmenna starfi sem unnið var við skipu-
lag og stjórnun mótsins. Og að mótinu
loknu stóðu félögin innan UMSK einnig
myndarlega saman að lausn mála, þó svo
að sú vinna hafi ekki verið jafn skemmti-
leg og sigurinn á landsmótinu.
UMSK sýndi þá, eins og oft áður,
hvers það er megnugt.
Um leið og ég fyrir hönd Ungmenna-
félagsins Breiðabliks óska UMSK allra
heilla á komandi árum, sannfærður um
að það eigi eftir að gegna þýðingarmiklu
mannræktarhlutverki í framtíðinni, vil
ég biðja formann UMSK, Hafstein Páls-
son, um að koma hingað og taka við
„Viðurkenningu" fyrir ánægjulegt og
árangursríkt samstarf. Gjöfin er eftir
einn ágætasta listamann Kópavogs,
Grím Marinó Steindórsson og heitir
„Viðurkenning."
Hulda Pétursdóttir tekur við starfsmerki UMFÍ úr hendi Pálma Gíslasonar for-
manns.
Skinfaxi
35