Skinfaxi - 01.05.1996, Page 4
Þegar umræ&an um fíkniefnaforvarnir stóð
sem hæst fyrir um fsað bil tveimur mónuð-
um síðan var ég farinn að trúa því að allir
íslenskir unglingar væru eiturlyfjaneytendur.
Umræða fjölmiðla var oft á tíðum mjög
neikvæð og einblínt var á þá sem hvað
lengst voru sokknir i neyslu vímuefna en
hinn stóri hópur einstaklinga sem ekki nota
vímuefni vildi gleymast. Eftir að hafa velt
þessu aðeins fyrir mér ákvað ég að koma
með tillögu að blaði tileinkuðu unglingum
þar sem rætt væri við fólk sem komist hefur
áfram í lífinu án vimuefna og fjalla þar
með um hina hliðina sem hingað til hafði
að mestu gleymst. Eftir rúmlega mánaðar-
vinnu hef ég púslað saman blaði sem
samanstendur af hressum og skemmtilegum
viðtölum við fólk eins og Emilíönu Torrini,
Pál Oskar, Magnús Ver, Þórarin Tyrfingsson
og Björn Steffensen svo einhverjir séu
nefndir. Þetta eintak Skinfaxa er tileinkað
unglingum á aldrinum 12-16 ára og
vonumst við hjá Ungmennafélagi Islands til
þess að foreldrar gluggi í greinarnar með
börnum sínum og að þetta tölublað staldri
við á heimilinu lengur en flest önnur tímarit.
<7íkavm ‘Jyi'Z'i
ritstj&í
Eftir að ég byrjaði að reykja h
fór mér að líða illa
Juliette Lewis er ein vinsælasta leikkona heims í dag. Hún lék
eftirminnilegt hlutverk í myndinni Natural Born Killers þegar hún átti a&
vera uppdópuð frá upphafi til endis. En notar Juliette Lewis eiturlyf?
„Eg reykti hass á sínum tíma en það var fyrir mörgum árum. Eg fór í gegnum
unglingatímabil þar sem ég hélt að hassið myndi láta mig gleyma vandamálum mínum.
Þegar maður er svona 1 2, 1 3 ára er maður tilbúinn að reyna allt til að vekja athygli á
sér. Eg var alltaf frekar öðruvísi og fékk vini mína til að hlæja í samkvæmum með því að
hegða mér eins og ég væri vangefin. Eg átti það líka til að standa á höndum i bíó og
öskra „ég elska þig súpermann". Eftir að ég byrjaði að reykja hass fór mér hins vegar
að líða illa og átti erfiðara með að tjá mig."
Hefur þú notab sterkari efni?
„Eg hef notað allt. Nei, ég hef ekki notað allt en þetta kemur allt til þegar manni líður illa
og maður vill komast undan."
Hefur þú notaö eiturlyf i vinnunni?
„Nei, aldrei."
4 / SkinfaxI