Skinfaxi - 01.02.2003, Qupperneq 5
Göngum ísland
Hefst í júní
I júní mun verkefnið Göngum
um Island, hefjast að nýju, en
Ungmennafélag Islands með
stuðningi Heilbrigðisráðuneyti-
sins, stóð fyrir verkefninu síðast
liðið sumar við góðar undir-
tektir. Verkefnið miðar að því að
fá landsmenn til að fara í göngu-
ferðir og njóta þeirrar náttúru-
fegurðar og kyrrðar sem Island
hefur upp á að bjóða og um leið
byggja upp betra líkamsform.
Göngum um Island verkefnið er
ætlað að höfða til allra lands-
manna en ekki síst til fjölskyldu-
fólks.
Göngum um Island er meðal
annars unnið í samstarfi við
ungmennafélög um land allt,
ferðaþjónustuaðila og sveitar-
félög. Island hefur að geyma
gnótt gönguleiða og hafa nú
verið valdar í samvinnu við
heimamenn útvaldar gönguleið-
ir í hverju byggðarlagi.
Leiðabók með 200 gönguleiðum
um land allt er gefin út í 50.000
eintökum og fæst gefins á
Iþróttamiðstöðum, sundlaug-
um, upplýsingamiðstöðum og
bensínstöðvum. I verkefninu
Göngum um Island er lögð
áhersla á stuttar, stikaðar og að-
gengilegar gönguleiðir.
Fjölskyldan á fjallið
Fjölskyldan á fjallið er einn liður
í verkefninu. Settir eru upp póst-
kassar með gestabókum á 20
fjöllum víðsvegar um landið, en
öll þessi fjöll eiga það sameigin-
legt að vera tiltölulega létt að
ganga á. Markmiðið er að fá fjöl-
skyldur í létta fjallgönguferð og
stuðla þannig að aukinni sam-
veru, útivist og um leið líkams-
rækt innan fjölskyldunnar.
Stjórn og framkvæmd verkefni-
sins er í höndum þjónustumið-
stöð UMFI hjá Ungmenna- og
íþróttasambandi Austurlands á
Egilsstöðum.
FRUITI
Íwnw*/P|
Leppin Energy Boost er hollur og
svalandi drykkur, með flóknum kolvetn-
um, sem gefur þægilega langvarandi
orku. Drykkurinn er þekktur meðal íþrótta-
fólks um allan heim.
Energy Boost inniheldur engan hvítan sykur
og raskar því lítið jafnvægi blóðsykurs.
Energy Boost hentar öllum aldurshópum,