Skinfaxi - 01.02.2003, Page 9
Unglingolandamót 2003
gæti verið spilað á hverju Ung-
lingalandsmóti?
„Það er aldrei að vita hvað gerist
fram að Unglingalandsmóti."
Þið eruð á fullu að vinna að nýrri
plötu. Hvenær kemur platan út?
„Við stefnum á að koma henni út í
byrjun júní."
Einhverjar stefnubreytingar hjá
ykkur?
„Við erum ennþá að vinna plötuna
en að mína mati stefnir hún í að vera
rökrétt framhald af síðustu plötu.
Það verður gaman að sjá hver
útkoman verður."
Þið ætlið að kynna hana í sumar. Er
það ekki mikil vinna og hvernig
fer það fram?
„Það er verið að raða því öllu saman
þessa dagana en við komum t.d. til
með að halda tónleika vítt og breytt
um landið auk þess sem við stefnum
á almennilega útgáfutónleika, en
við höfum aldrei farið þá leið þrátt
fyrir að hafa gefið út þrjár plötur."
Má styðja betur við
tónlistarfólk í landinu
Hvernig er íslensk tónlist að gera
sig í dag?
„Nokkuð vel. Mér finnst hún yfir-
leitt standast samanburðinn við þá
eriendu. Við erum hugmyndarík
þjóð og ég held að við séum á gera
fína hluti tónlistarlega séð. Hins-
vegar mætti styðja betur við bakið á
tónlistarfólki í landinu og þá væri
ekki að sökum að spyrja."
Hafa orðið miklar breytingar á tón-
listinni ykkar á undanförnum ár-
um?
„Því er ekki að neita að hú'n hefur breyst
mikið. Upprunalega spilaði hljómsveitin
aðallega Ska-tónlist (s.b. Madness ) en hún
hefur færst meira yfir í melódíska og vandaða
popp-tónlist."
Á hvað stefnið þið í framtíðinni. Er þetta
meira áhugamál hjá ykkur en alvara - er
þetta full atvinna hjá ykkur?
„Þetta er háalvarlegt áhugamál! Við erum
allir að gera e.h. með þessu t.a.m. eru Stebbi
og Sævar útskifaðir og starfandi grunnskóla-
kennarar."
Sjáumst á Isó!
Hafið þið leitt hugann að því að komast út
fyrir landsteinana?
„Nei, við höfum sáralítinn áhuga á því. ísland
er alveg nógu stórt fyrir höfuðið á mér a.m.k."
ULM er fjölsylduhátíð þar sem íþróttir skipa
þó veglegan sess - eru meðlimir Á móti sól
miklir íþróttamenn?
„Það fer nú ekki mörgum sögum af okkur en
við höfum allir átt okkar stundir og þá aðal-
lega í fótboltanum."
Gerið þið eitthvað í dag til að halda ykkur í
formi?
„Fyrir mína parta get ég alveg sagt frá því að
eitt gott ball er eins og erfiður eróbiktími, en
utan þess er maður bara þessi rólega týpa,
sund og göngutúrar þegar tækifæri gefast,"
segir hann og setur upp fjölskyldubros.
Sumarið er komið og það styttist óðum í
ULM. Þið mætið að sjálfsögðu með góða
skapið með ykkur og lofið frábærri stemmn-
ingu?
„Að Sjálfsögðu! Sjáumst á ísó!!!
GARÐABÆR
k-ánar og midar
Utifána, borðfána og hátíðar-
fána framleiðum við og
einnig slitsterka, veðurþolna
og sólekta límmiða. Prentum
varúðar- áminningar- og bann-
miða í Evrópustaðli.
FedJ i T •yopcxcs 1
l
MFRIM(MFNN JSkiltagerö • Skiltakerfi • Fánaprentun • Límmiðar
L fl l\ I ) I I L II II I Bflamerkingar • Litmyndaprentun • Sandblástursfilma
Ármúla 36 • merkismenn@merkismenn.is • Sími: 544 2030