Skinfaxi - 01.02.2003, Blaðsíða 27
Hmttum oð roykjo
Hljómsveitin Land og synir spratt upp á stjörnusvið-
ið sumarið 1997 þegar lögin Dreymir og Vöðvastæltur
nutu mikilla vinsælda. En hvernig stendur hljóm-
sveitin í dag?
„Hljómsveitin frá 1997 er töluvert breytt. Þá vorum við
fimm saman, ég og Nonni sem er ennþá í hljóm-
sveitinni, Árni Þór, ívar og Einsi, sem er bróðir Árna.
En um áramótin 1997 og 1998 sinnaðist okkur í
sveitinni eitthvað og ég leitaði á önnur mið eftir
meðspilurum," segir Hreimur og bætir við að í dag sjái
hann eftir því hvernig mál þróuðust. „Ég var óréttlátur
gagnvart mínum gömlu félögum og hefði getað komið
betur fram við þá. En í dag sé ég ekki eftir því að hafa
leitað á önnur mið og drengirnir sem eru með mér í
hljómsveitinni í dag eru frábærir og mínir bestu vinir."
En þrír meðlimir hljómsveitarinnar Vinir vors og
blóma gengu til liðs við Hreim í kjölfar endurskipu-
lagningar sveitarinnar eins og áður segir.
Því er við að bæta að um það leyti sem viðtalið átti sér
stað hætti hljómborðsleikari Lands og sona í sveit-
inni vegna mikilla anna í vinnu sem og því að hann
er nýbúinn að eignast barn.
„Það verður erfitt að vera fjórir eftir en við ætlum að
reyna. En Njalli er einn af okkar bestu vinum og topp
náungi í alla staði. Hann hættir í sveitinni í góðu og
sendurn við honum bestu kveðjur," segir Hreimur og
bætir við að strákarnir í upprunalegu hljómsveitinni sé
líka góðir vinir sínir í dag og fyrir það sé hann
þakklátur.
Komust á mála hjá plöturisa
Eftir hljómsveitina Land og synir liggja nokkrar plötur.
„Fyrsta platan okkar, Alveg eins og þú, sem kom út árið 1998
gekk afskaplega vel og seldist einnig ágætlega. Síðan gáfum
við út Herbergi 313 árið eftir en hún var mun meira krefjandi
verkefni. Við vissum að hún myndi ekki seljast eins vel og
fyrsta platan, því það er alltaf erfiðara að fylgja fyrstu plötu
eftir," segir Hreimur sem er einnig ánægður með gagnrýni
fjölmiðla á plötunni. „Fjölmiðlar eru ennþá að miða hljóm-
sveitir við okkur og þessa plötu." Árið 2000 kom út fimm laga
plata í samstarfi við Vífilfell. „Með þeirri plötu má segja að
samstarf okkar við Kók hafi byrjað og við erum ennþá að
vinna með þeim í dag. Þessi plata var ekki seld beint heldur
var í sumarleik Kók það árið og fór í 10.000 eintök og fékk
góðar viðtökur í útvarpi," segir Hreimur.
í nýjan tón slær haustið 2000 þegar Hreimur og félagar fara
að vekja athygli erlendis. Þeir tóku í kjölfarið upp þrjú lög
sem send voru út og fljótlega varð allt brjálað úti eins og
Hreimur orðar það og allir vildu gera við þá samning.
„Það var í sjálfu sér ekkert merkilegt en mjög gaman fyrir
sveitaballahljómsveit frá Islandi," segir hann. „Við tók
þriggja ára ferli og við fengum samning við Warner Brothers.
I kjölfarið komum við með um 40 milljónir inn í landið og
gerðum plötuna Happy Endings sem kostaði um 35 milljónir.
Við fengum líka tækifæri til að vinna með fjöldanum öllum af
skemmtilegu fólki eins og þeim sem áttu hugmyndina að
hljómsveitum eins og Green Day og Weeser og hafa unnið
með stjörnum eins og U2 og Kiss," segir Hreimur.