Skinfaxi - 01.04.2003, Qupperneq 12
I fyrra var gerður samningur á
milli Ungmennafélags íslands og
heilbrigðisráðuneytisins um verk-
efnið Göngum um ísland. Ráðist
var í verkefnið á landsvísu og er
það hugsað til nokkurra ára.
Það fékk fljúgandi start og Helgi
M. Arngrímsson, sem er starfs-
maður þess, efast ekki um að
fleiri nýti sér verkefnið í ár
og næstu árin enda hefur orðið
mikil vakning á meðal íslend-
inga um almenna hreyfingu og
líkamsrækt, og hvað er skemmti-
legra en að ganga um fallega nátt-
úru íslands? Valdimar Kristófers-
son sló á þráðinn til Helga sem
rétt gat gefið sér tíma til að svara
spurningum blaðamanns enda í
nógu að snúast við skráningu
gönguleiðanna.
GÖNGU UjVJ ÍSLAND
En hvernig fór þetta allt af stað fyrir rúmu
ári síðan og hvernig tengist Helgi þessu?
„Þessi hugmynd kom upp í fyrravetur en aðal
hugmyndasmiðurinn er Arngrímur Viðar
Asgeirsson en hann er í stjórn UÍA. UMFÍ og
heilbrigðisráðuneytið gerðu síðan samkomulag
um að standa að verkefninu og var gerður
samningur við S væðisskrifstofu UMFI hjá UÍ A
á Egilsstöðum um að hún myndi sjá um þetta
verkefni. I framhaldi að því var ég síðan ráðinn
til að vinna að skráningu gönguleiðanna og að
koma út leiðabókinni sem við gáfum út í fyrra.
Við fengum svo ágætan mann, Örn Guðnason
auglýsingateiknara, til að „hanna“ bókina og
veggspjaldið fyrir verkefnið og leysti hann það
sérstaklega vel af hendi. Þetta verkefni er
hugsað til nokkurra ára enda á það alltaf við að
sækja Island heim gangandi," segir Helgi sem
hefur verið í fararbroddi í sinni heimasveit,
Borgarftrði eystri, með að merkja gönguleiðir
og skipuleggja gönguferðir um nágrennið.
Hvernig gekk verkefnið fyrir sig í fyrra? „Það
gekk mjög vel en þó náðum við ekki að koma
öllu því í verk sem við ætluðum okkur. Þar
komu þessi algengu peningavandræði til skjal-
anna. Ætlunin var að koma upp merki verk-
efnisins við allar leiðirnar en það reyndist ekki
mögulegt en úr því bætum við nú í sumar. Við
prentuðum í fyrra litla leiðabók í 20.000 ein-
tökum og má segja að hún hafi klárast á 2-3
vikum. Upplagið reyndist því ekki nógu mikið
svo dreifingin varð ekki nógu markviss. Við
ætlum hinsvegar að tvöfalda upplagið í ár og
bókinni verður m.a. dreift hjá Esso stöðvunum
og á flestum upplýsingamiðstöðvum á landinu.“
Helgi hefur undanfarin sumur starfað við
ieiðsögn á svokölluðum Víknaslóðum við
Borgarfjörð eystri. En hverjir eru það sem
ganga um ísland og er sá hópur að slækka?
„Það er að sjálfsögðu mjög fjöibreyttur hópur.
Hér á okkar svæði eru það fyrst og fremst
íslendingar því þetta svæði er það nýtt og
kannski frekar lítið þekkt. Við erum hins vegar
að vinna í því að fá hingað erlenda hópa og það
lofar góðu en tekur að sjálfsögðu nokkurn tíma
að kynna svæðið fyrir ferðaskipuleggjendum.
Við höfum verið að byggja þetta svæði upp með
það í huga að geta þjónustað vel okkar gesti og
ég held að mjög vel hafí til tekist. Við bjóðurn
meðal annars upp á skipulagðar gönguferðir
með fuliri þjónustu þannig að fólk þarf bara að
koma með svefnpokann sinn og fötin en við
sjáum um mat, nesti, leiðsögn, gistingu og flutn-
ing innan svæðis. Þetta hefur líkað afskaplega
vel. Svæðið okkar er líka einstaklega fallegt og
eru flestar okkar gönguleiðir greiðfærar og ekki
um háa fjallvegi að ræða. Aðgengi að göngu-
skálunum okkar er líka gott.”
LEIÐABÓK UM GÖNGULEIÐIRNAR
Hvað varðar verkefnið Göngum um ísland -
fer fólk þá bara út að ganga eða fær það
einhverjar upplýsingar hjá ykkur um
skemmtilegar gönguleiðir? „í fyrra var verk-
efnið þannig upp byggt að við söfnuðum saman
upplýsingum um gönguleiðir víðsvegar um
landið og gáfum síðan út smá bækling, eins
konar leiðabók. í fyrra fengum við á skrá 144
leiðir sem fór fram úr okkar björtustu vonum.
Þessa dagana er ég að vinna að nýrri leiðabók
og það verða væntanlega um 220 gönguleiðir í
henni. I bókinni er mjög stutt lýsing af hverri
leið og eru þær flokkaðar eftir póstnúmerum.
Því miður verðum við að takmarka textann við
lágmarksupplýsingar en yfirleitt er vísað á
ýtarlegri upplýsingar í bæklingum, á upplýs-
ingatöflum eða á göngukortum," sagði Helgi
en allar gönguleiðirnar eru miðaðar við hálftíma
til tveggja tíma langar leiðir og eru um allt land.
Til að komast í bókina þurfa leiðirnar að
vera innan áðurgreinds tímaramma, „fjöl-
skylduvænar“, stikaðar eða á mjög skýrum
stígum, merktar og að um þær sé auðvelt að
fá upplýsingar á korti eða á skiltum. „Það
hefur gengið mjög vel að safna leiðum í bókina