Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 18
Unglingalandsmót UMFÍ 2003 á ísafirði
Þaö krefst mikillar vinnu að skipu-
leggja og undirbúa stórmót eins og
Unglingalandsmót UMFÍ. Sú
vinna er fyrst og fremst í höndum
sérstakrar undirbúningsnefndar
sem skipuð er heimamönnum á
hverjum stað fyrir sig og fulltrúum
UMFÍ. Að þessu sinni er fram-
kvæmd mótsins á vegum Héraðs-
sambands Vestfirðinga sem heldur
Unglingalandsmót 2003 í ísa-
fjarðarbæ 1.-3. ágúst nk. Formað-
ur Unglingalandsmótsnefndar er
Ingi Þór Ágústsson og var hann
spurður um ýmsa þætti þessa viða-
mikla verkefnis.
JJ
ÍJIi m\L LÍ'jKT /\ ÍJJUJU V£fíy
rj rj
JJ
Hvað er langt síðan undirbúningur fyrir
unglingalandsmótið hófst? „Undirbúningur-
inn hófst af mikilli alvöru strax eftir síðustu ára-
mót þegar undirbúningsnefndin var skipuð. Um
svipað leyti var ráðinn framkvæmdarstjóri móts-
ins. Þetta er tiltölulega skammur tími til undirbún-
ings en við veiðum með allt okkar klárt fyrir mótið.“
Hver hafa helstu verkefni undirbúnings-
nefndarinnar verið? „Undirbúningsnefndin er
skipuð öndvegisfólki sem gerði strax í upphaft
framkvæmdalista sem við höfum svo verið að
vinna eftir. Á þeim lista eru stærstu málin að
fjölskyldan finni eitthvað við sitt hæfi til skemmt-
unar og afþreyingar hér á Isafirði og nágrenni
yfir mótsdagana. Það eru fullt af mörgum
stórum og smáum málum sem koma á borð
nefndarinnar en öll eru þau leyst á einn veg, -
farsællega."
Hafa komið upp einhver ófyrirséð vanda-
mál? „Nei, það er ekki hægt að segja það, ekki
ennþá að minnsta kosti. Öllum okkar hug-
myndum varðandi framkvæmd mótsins hefur
verið tekið með opnum hug. Ef upp koma
vandamál á síðari stigum undirbúnings þá er er
ég þess fullviss að þau verða Ieyst."
Nú er mikið af undirbúningsvinnunni unnið
í sjálfboðavinnu en það kostar engu að síður
sitt að halda svona mót. Hvernig hefur gengið
að fá styrktaraðila á mótið? „Það hefur
gengið vonum framar og varla væri hægt að
halda svona mót án þeirra. Stærstu styrktaraðil-
arnir eru Menntamálaráðuneytið, 66°Norður,
Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Flugleiðir,
B&L, Visa, íslandsbanki og Áfengis- og vímu-
varnaráð."
Þið ætlið að reisa sérstakt landsmótsþorp
inni í miðjum bænum? „Já, Landsmótsþorpið
verður staðsett á miðju mótssvæðinu með íþrótta-
velli og íþróttahús á aðra hönd og hátíðarsvæðið
á hina. Þama verður eins konar hjarta landsmóts-
ins og þar verður að finna ýmsa þjónustu og
afþreyingu. Pizza 67 verður þar með sölu á
skyndibitum, Gamla bakaríið starfrækir kaffihús
þar sem boðið verður upp á kaffi og bakkelsi,
Hafnarbúðin mun reka þar sportvöruverslun og
á svæðinu verða ýmis leiktæki fyrir yngstu
kynslóðina. Þá verður upplýsingamiðstöð móts-
ins staðsett í þorpinu og þar verður hægt að
nálgast upplýsingar um allt er viðkemur mótinu.“
Nú er það Héraðssamband Vestfirðinga sem
heldur mótið en það fer eingöngu fram á
ísafirði. Ástæðan? „Hún er eingöngu til að
skapa hér mikið mannlíf á einum stað en ekki
dreifa keppninni í öll byggðalög ísafjarðarbæjar.
Á Isafirði er stærsti byggðakjarninn innan
ísafjarðarbæjar. Þar er öll aðstaða til staðar og
best hægt að koma því við að taka á móti þeim
fjölmörgu sem leggja leið sína vestur á ungl-
ingalandsmótið. Ég hvet samt alla sem hingað
leggja leið sína til að heimsækja hina staðina í
Isafjarðarbæ, þ.e. Suðureyri, Flateyri, Þingeyri
og Hnífsdal. Ég er sannfærður að enginn verður
svikinn af því mannlífi sem er þar að finna.“
Unglingalandsmótið á Isafirði er það sjötta í
röðinni. Verður einhver nýbreytni á mótinu
í ár? „Öll mótin eru einstök á sinn hátt. Stærsta
nýbreytnin á þessu móti er að hámarksaldur
keppenda hækkar úr 16 árum í 18 ár. Þetta var
gert til að gefa einstaklingum á þessum aldri nýjan
valkost þegar þeir ákveða hvað þeir vilja gera og
hvert þeir vilja fara um verslunarmannahelgina.”
Það er ekki nóg með þú sért formaður
undirbúningsnefndarinnar heldur ertu líka
sundþjálfari hjá Sundfélaginu Vestra á
Isafirði, það verður væntanlega í mörg horn
að líta hjá þér á mótinu? „Já, það verður nóg
að gera hjá mér. Ég bý nú samt svo vel að hafa
gott fólk á bak við mig sem styður mig og að-
stoðar í þessu öllu saman. Ég mun undirbúa mitt
sundlið eins vel og ég get fyrir þetta mót en svo
verður bara að koma í ljós hvort ég geti staðið á
laugarbakkanum og hvatt þau áfram, líkt og ég
hef gert í fjögur ár.“
Að lokum, þú hvetur væntanlega fólk til að
fjölmenna á Unglingalandsmót UMFÍ á
Isafirði um verslunarmannahelgina? „Að
sjálfsögðu! Auk sjálfrar fþróttakeppninnar verður
mikil áhersla lögð á afþreyingu fyrir alla aldurs-
hópa þannig að þetta verður sannkölluð fjöl-
skylduhátíð þar sem allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Það verður heilmargt um
að vera frá morgni til kvölds og þeir sem kjósa
heilbrigða og uppbyggilega dagskrá án vímuefna
ættu tvímælalaust að leggja leið sína á unglinga-
landsmót á ísafirði um verslunarmannahelgina.“
UNGLINGA
LANDSMÓT
UMFÍ