Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 22
Sveitarfélagið ísafjarðarbær varð til árið
1996 við sameiningu sex sveitarfélaga á
norðanverðum Vestfjörðum. Þessi sveitarfelög
voru Isafjarðarkaupstaður, Suðureyrar-
hreppur, Þingeyrarhreppur, Ffateyrar-
hreppur, Mosvallahreppur og Mýrahreppur.
Nýja sveitarfélagið er vfðlent og afar fjöl-
breytilegt og íbúafjöldi þess er á fimmta
þúsund manns. Þar eru fimm þéttbýliskjarnar
auk sveitabyggða og atvinnugreinarnar
spanna allt frá frumframleiðslu til hátækni.
Hvert byggðarlag í ísafjarðarbæ hefur sín
sérkenni sem reynt er að varðveita.
ÍSAFJÖRÐUR
Isafjörður við Skutulsfjörð er höfuðstaður Vest-
fjarða. Skutulsfjörður er fremur þröngur milli
hárra og brattra fjalla en inn af honum ganga all-
miklir dalir. I Tungudal er útivistarland ísfirðinga
með skíðasvæðum, golfvelli, tjaldstæðum og
gönguleiðum um skógræktarsvæði. í Engidal eru
bækistöðvar og íþróttasvæði hestamanna. Á eyr-
inni í ftrðinum vestanverðum stóð um aldir prests-
setrið Eyri við Skutulsfjörð. Erlendir kaupmenn
stunduðu löngum verslun á eyrinni og höfðu þar
aðsetur en byggðin tók ekki að vaxa fyrr en með
afnámi einokunar og formlegri stofnun kaupstað-
ar nokkru fyrir 1800. Byggðin færðist upp eftir
eyrinni og upp í hlíðina og fyrir fáum áratugum
varð til nýtt hverft við fjörðinn innanverðan.
ísafjörður hefur jafnan verið einn af helstu
útgerðarstöðum á landinu. Þar urðu menn fyrstir
til að vélvæða báta og veiða rækju. Isafjörður
hefur ekki farið varhluta af stórfelldum samfél-
agsbreytingum síðustu ára fremur en aðrir útgerð-
arstaðir. Breytingamar hafa getið af sér nýjar
áherslur og nú em á Isafirði sterk hátæknifyrir-
tæki sem ekki síst eiga gmndvöll sinn í sjávarútvegi.
HNÍFSDALUR
Hnífsdalur er við samnefnda vík í utanverðum
Skutulsfirði, um fímm kflómetra frá Isafírði.
Hnífsdalur er dæmigert ftskiþotp sem óx upp í
kringum útræði og fiskverkun og fólki fjölgaði
þar mjög á áratugunum fyrir og eftir 1900. í
hugurn margra er Hnífsdalur á síðari ámm nánast
hluti af ísaftrði, eftir að byggðimar í Skutulsfirði
sameinuðust í eitt sveitarfélag undir nafni Isa-
íjarðarkaupstaðar fyrir nokkmm áratugum.
FLATEYRI
Á Flateyri við norðanverðan Önundarfjörð hefur
verslun verið stunduð frá því fyrir 1800. Norski
umsvifamaðurinn Hans Ellefsen reisti þar hval-
veiðistöð árið 1889 og var hún eitt stærsta
fyrirtæki landsins. Stöðin brann rúmum áratug
síðar og hóf Ellefsen þá smíði annarrar litlu innar
við íjörðinn. Verkinu var hætt þegar búið var að
hlaða reykháfinn og stendur hann enn rétt við
þjóðveginn. Undirlendi fyrirbotni Önundarfjarð-
ar er víðlent á vestfirskan mælikvarða og þar er
mikið fuglalíf. Á Flateyri fást kajakar á leigu
ásamt leiðsögn og þannig er hægt að skoða
ströndina og fuglalífið frá nýstárlegu sjónarhomi.
SUÐUREYRI
Byggðin á Suðureyri við Súgandaíjörð á sérekki
langa sögu. 1 byrjun 20. aldar vom þar aðeins tvö
íbúðarhús en upp úr því fór þeirn að fjölga
vemlega. Árið 1906 varfyrsti vélbáturinn keyptur
til Suðureyrar og fimm ámm síðar vom íbúarnir
orðnir um 200. Suðureyri er friðsælt þorp þar sem
afkoman byggist að mestu á sjávarútvegi.
Smábátaútgerð er öflug og setur mikinn svip á
bæjarlifið, einkum á sumrin. Á Suðureyri er hita-
veita sem fær heitt vatn frá Laugum, litlu innar í
firðinum. Þaðan kemur líka vatnið í sundlaugina
á Suðureyri, sem er ein tveggja útisundlauga á
norðanverðum Vestfjörðum.
ÞINGEYRI
Þingeyri við sunnanverðan Dýrafjörð er gamall
verslunarstaður. Þar er pakkhús eða vömgey msla
frá miðri 18. öld, eitt af elstu húsum landsins. Er
nú unnið að endurgerð þess. Á Þingeyri var bæki-
stöð bandarískra lúðuveiðimanna seint á 19. öld
og franskir duggarar voru þar tíðir gestir. Elsta
staifandi vélsmiðja landsins er á Þingeyri. Smiðj-
an ber nafn Guðmundar J. Sigurðssonar og tók
til starfa árið 1913. Til hennar leituðu innlend og
erlend skip eftir þjónustu sem var annáluð jafnt
innan lands sem utan. Sunnan Þingeyrar er til-
komumesti fjallgarður Vestfjarða. Hann hefur
verið nefndur Vestfirsku alpamir og geta unnend-
ur íslenskrar náttúm fundið þar margt við sitt hæfi.