Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 36
Unglingalandsmót UMFÍ 2003 á ísafirði A unglingalandsmótinu á ísafirði verð- ur lögð mikil áhersla á afþreyingu fyrir alla aldurshópa og í landsmótsþorpinu verður m.a. sérstakt leiksvæði fyrir yngstu kynslóðina sem útbúið verður skemmtilegum leiktækjum. Það er fyrirtækið 3X-Stál sem kostar leigu á þessum leiktækjum og leggur þannig sitt af mörkum til að gera mótið að glæsi- legri fjölskylduhátíð. 3X-Stál er fram- leiðslufyrirtæki á Isaflrði sem hannar og smíðar hátækni framleiðslulausnir fyrir sjávarútvegsfyrirtæki um allan heim. Segir Jóhann Jónasson, framkvæmda- stjóri, að fyrirtækið búi yflr mikilli reynslu í smíði á búnaði úr ryðfríu stáli og leggi höfuðáherslu á framleiðslu á sterkum og endingargóðum búnaði sem uppfylli kröfur og þarfir íslenskra og erlendra sjávarútvegsfyrirtækja. JJ m v [J rj r1 JJ fJUJ ,ij(YiUil!J;\‘í \jj Er ekki óhætt að segja að 3X-Stál sé öflugt fyrirtæki sem hafl vaxið frekar hratt? „Jú, það er rétt. Fyrirtækið var stofnað á Isafirði árið 1994 og nálgast því þau merku tímamót að verða tíu ára. í byrjun snerist reksturinn fyrst og fremst um ryðfría smíði og þjónustu við sjávarútvegs- fyrirtæki á ísafirði og í nágrenni. Við lögðum strax áherslu á þjónustu við hinar fjölmörgu rækjuverksmiðjur sem starfræktar voru á svæð- inu og í framhaldi af því rækjuverksmiðjur um allt land. Fyrirtækinu óx fljótlega fískur um hrygg og samhliða því að þjónusta þessi náði til allra landsmanna fjölgaði starfsfólki. I dag erum við að reka fullkomna framleiðslueiningu í glæsilegu húsnæði að Sindragötu 5 á ísafirði og hjá okkur starfa liðlega 40 starfsmenn sem staðsettir eru á ísafirði og hjá dótturfyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og í Kanada.“ Þið cruð með dótturfyrirtæki bæði fyrir sunnan og í Kanada? „Já, og eitt til viðbótar hér á fsafírði. Rennex ehf. er sérhæft fram- leiðslufyrirtæki staðsett á Isafirði en það sér- hæfir sig í framleiðslu á renndum og fræstum íhlutum. Fyrirtækið hefur yfir að ráða CNC UNGLINGA LANDSMOT UMFÍ tölvustýrðri fjölnotavél, OKUMA LB-300-MY- 1000, sem er ein sú fullkomnasta hérlendis. Annað dótturfyrirtæki 3X-Stál er Stálnaust ehf. sem er staðsett í Garðabæ. Það sérhæfir sig í ryðfrírri smíði fyrir matvælaframleiðendur á höfuðborgarsvæðinu, ásamt því að sinna almennri þjónustu fyrir 3X-Stál. Loks má nefna 3X-Stal Inc. sem er dótturfyrirtæki 3X-Stál í Nýfundnalandi í Kanada og sér um sölu og þjónustu til sjávarútvegsfyrirtækja á Nova Scotia, Nýfundnalandi og Labrador." Þið hafið verið duglegir að koma ykkur á framfæri erlendis? „Það er rétt. Við höfum unnið markvisst að því að kynna fyrirtækið og framleiðslu þess á sýningum víða um heim og til að mynda tökum við alltaf þátt í hinni árlegu sjávarútvegssýningu Boston Seafood Show í Bandaríkjunum og sjávarútvegssýningunni í Brussel í Belgíu. Þannig gefst okkur mikilvægt tækifæri til að eiga samskipti við núverandi við- skiptavini í Bandaríkjunum, Kanada og Evrópu auk þess sem við reynum að mynda tengsl við nýja viðskiptavini til framtíðar." Þannig að útflutningur er stór þáttur í starfsemi 3X-Stál? „Já, það er óhætt að segja að hann sé mjög mikilvægur. Fyrirtækið hóf útflutning síðla árs 1997 sem hefur síðan þá verið að aukast með hverju árinu þannig að nú er meirihluti veltu fyrirtækisins kominn frá erlendum mörkuðum. Kanadamarkaðurinn hefur verið okkur mjög mikilvægur allt frá upp- hafi. 3X-Stál hefur verið leiðandi vélbúnaðar- framleiðandi og hönnuður í flestum stærri verkefnum sem unnin hafa verið í kanadískum rækjuiðnaði frá því að uppbygging hans hófst um 1998. Hefur fyrirtækið hannað lausnir og smíðað fyrir sex rækjuverksmiðjur í Kanada en það er tæpur helmingur rækjuverksmiðja á Nýfundnalandi, í Labrador og Nova Scotia." Þið eruð nýbúnir að semja um stórverkefni við kanadískan sjávarútvegsrisa? „Já, við gerðum sölusamning við kanadfska sjávarút- vegsfyrirtækið Fishery Product Intemational um endurbyggingu tveggja rækjuverksmiðja. Fyrirtækið er eitt hið stærsta á austurströnd Kan- ada og rekur fjölþætta starfsemi í Nova Scotia, á Nýfundnalandi og á Labrador. 3X-Stál hefur tekið umtalsverðan þátt í hönnunarferli þessara verksmiðja og nýttist þar mikil reynsla fyrirtæk- isins í hönnun og smíði á vinnslulínum fyrir rækjuverksmiðjur, bæði hér heima og í Kanada. Það má því segja að þessi samningur staðfesti enn árangur okkar í rækjuiðnaðinum í Kanada." Hver er svo galdurinn að baki slíkri vel- gengni? „Þegar við hófum rekstur fyrir tæpum áratug renndum við nokkuð blint í sjóinn með hvernig starfseminni yrði háttað. Við áttum ekki von á því að innan áratugar yrði fyrirtækið kom- ið í þessa stöðu. En það sem hefur skipt sköpum er að við höfum alltaf verið á tánum og fylgst vel með markaðnum og hagað okkar vöruþróun og nýsköpun eftir því. Vöruþróunin er gríðar- lega mikilvæg og til marks um það höfum við verið að þróa fjórtán nýja vöruflokka á tveimur síðustu árum. Markaðurinn kallar stöðugt eftir nýjungum og til þess að fylgja honum eftir verðum við að vera stöðugt á vaktinni." Að lokum, er unglingalandsmót á ísafirði ekki það heitasta um næstu verslunar- mannahelgi? „Það er ekki spurning! Þetta verður sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem allir skemmta sér saman í heillandi umhverfi vest- firskrar náttúru."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.