Skinfaxi - 01.04.2003, Síða 56
VESTURB Y GGÐ
A Barðaströnd reyndi Hrafna-Flóki
fyrstur manna landnám á Islandi.
Hann uggði ekki að sér og gleymdi
sér í sumarsælunni. Um veturinn
féll fénaður hans allur og varð hann
frá að hverfa. Nærri bryggjunni á
Brjánslæk eru Flókatóftir sem
munnmæli herma að hafi verið
búðir Hrafna-Flóka.
Á Rauðasandi er sögusvið einnar
mögnuðustu ástarharmsögu íslenskra
bókmennta „Svartfugls“. Þar segir
frá sönnum atburðum sem enn er
hvíslað um þótt liðin séu 200 ár,
ástum Bjarna og Steinunnar sem
myrtu maka sína til að eigast.
í Sauðlauksdal hefur lengi verið
prestsetur. Þar vann sr. Björn
Halldórsson merkt brautryðjenda-
starf í garðyrkju á seinni hluta 18.
aldar. Hann læt m.a. reisa varnar-
garð til að hefta sandfok í dalnum.
Hlaut garðurinn nafnið Ranglátur
því prestur þótti oft harður á mein-
ingu sinni.
í Örlygshöfn hefur Egill Ólafsson
bóndi á Hnjóti byggt upp byggða-
safn héraðsins. Hann lét þar ekki
staðar numið heldur kom á fót fyrsta
flugminjasafninu á íslandi. „Þetta
segir sína sögu“ var viðkvæði Egils
sem lést 1999.
Vestasti tangi Evrópu, Bjargtangar,
teygir sig 24°32’0” vestur lengdar,
hluti Látrabjargs sem rís hæst í 441
m, 14 km. á lengd, mesta sjófugla-
byggð á norðurhveli jarðar. I maí
flykkjast í bjargið þúsundir sjófugla
og varpið hefst. Fyrr á tímum var
það matarkista djarfra karla og
kvenna sem sigu í bjargið og sóttu
björg í bú.
Patreksfjörður, Þorpið hans Jóns úr
Vör. Þar hefur verið stunduð verslun
frá tíð Hansakaupmanna. Frá fornu
fari hafa útvegur og verslun verið
helstu atvinnugreinarnar. Fyrsta
tilraun íslendinga til togveiða var á
Patreksfirði. Aldalöng samskipti við
sjómenn af öllu þjóðerni einkenna
svipmót staðarins. Um tíma var þar
franskur, enskur og þýskur konsúll.
Frjótt menningarlíf hefur löngum
blómgast á Bíldudal. Er Leikfélag