Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 3
Þetta ár er fyrir marga hluta sakir
tími breytinga og nýrra og spenn-
andi verkefna. I upphafi ársins
hófst starfsemi Ungmenna- og
tómstundabúðanna að Laugum
í Dalasýslu en undirbúningur að
opnun þeirra hafði staðið yfir í
nokkurn tíma. Þrátt fyrir verkfall
1 grunnskólum landsins tókst
að hrinda verkefninu af stað og
hefur aðsókn að búðunum verið
góð, en þær verða starfræktar til
maíloka. Búðirnar hefja síðan starf-
semi sína fljótlega eftir að skóla-
starf hefst að nýju í haust. Bókanir
fyrir næsta skólaár eru þegar
farnar að berast en markmiðið er
að Ungmenna- og tómstundabúð-
irnar verði starfræktar allt að átta
mánuði á ári. Mjög góður rómur
hefur verið gerður að búðunum
og hafa nemendur og skóla-
stjórnendur lýst yf r ánægju með
dvölina þar Dagskráin á Laugum
er mjög fjölbreytt og í raun býður
aðstaðan og umhverfið upp á
stórkostlega möguleika.
Eitt stærsta verkefni ársins er
an efa Unglingalandsmótið sem
haldið verður ÍVík í Mýrdal um
verslunarmannahelgina. Und-
irbúningur er hafinn af fullum
krafti og ríkir mikil eftirvænting
hjá framkvæmdaaðilum i'Vík
vegna mótsins. Þarna gefst kjörið
tækifæri fyrir fjölskyldur að eyða
stærstu ferðahelgi ársins saman í
fögru og skemmtilegu umhverf.
Hraðinn og kröfurnar af ýmsu
tagi eru miklar í þjóðfélaginu og
finnst mörgum tíminn til að sinna
börnum og fjölskyldu sinni af þeim
sökum minni en áður. Umræðan
um þetta hefur gerst æ háværari
og ekki seinna vænna að snúa
þessari þróun til betri vegar Því er
tímabært að foreldrar skipuleggi
sig betur og eyði meiri tíma með
börnum sínum. Unglingalandsmót-
in eru vímulaus fjölskylduhátíð, en
ekki útihátíð, og því ákjósanlegur
kostur fyrir fjölskylduna að vera
saman þar sem unglingar etja
kappi í íþróttum og leikjum í heil-
brigðu umhverfi.
Að undanförnu hefur vakið at-
hygli sérlega góð framganga umg-
mennafélaganna í hinum ýmsu
keppnum. I frjálsum i'þróttum hafa
margir getið sér gott orð bæði
hér heima og á erlendum vett-
vangi. Nokkur Islandsmet hafa litið
dagsins Ijós og margir að bæta
sinn persónlega árangun Þetta ber
augljóslega vitni um að gott starf
sé unnið í hreyfingunni og er það
vel. Arangurinn talar sínu máli, á
því leikur enginn vafi.
Njarðvíkingar bættu enn einni
skrautfjöðrinni í hatt sinn með
sigri í bikarkeppni karla í körfu-
knattleik í áttunda sinn. Þar öttu
þeir kappi við Fjölni sem heldur
betur hefur látið að sér kveða
í þessari íþrótt í vetur Unglinga-
flokkur Fjölnis varð bikarmeistari í
körfuknattleik sem undirstrikar að
þar sé unnið uppbyggjandi starf
með börnum og unglingum. Ekki
er öll sagan sögð úr herbúðum
Fjölnis því 3. flokkur karla varð
bikarmeistari íhandknattleikMeist-
araflokkur Stjörnunnar í hand-
knattleik kvenna hreppti síðan
bikarmeistaratitilinn í fjórða sinn.
Uppskeran sannarlega glæsileg og
ástæða til fagna þegar vel gengur
Breytingar urðu í starfsemi
Ungmennafélags Islands um ára-
mótin með ákveðnum skipulags-
breytingum.Tveir landsfulltrúar
hafa hvor um sig þrjá málaflokka
á sínum snærum. Annar þessara
landsfulltrúa hefur aðsetur í þjón-
ustumiðstöðinni í Reykjavik og sér
hann um fræðslumál, menningu
og listir Hinn landsfulltrúinn hefur
íþróttir umhverfis- og unglingamál
á sinni könnu með aðsetur á Sauð-
árkróki. Með þessum breytingum
er það von að mál innan þessara
málaflokka verði markvissari og
sýnilegri en áður
Innan Ungmennafélags Islands
er unnið uppbyggjandi og leiðandi
starf um allt land með fólki á
öllum aldri, ekki síst þó með börn-
um og unglingum.
Unnið er með verkefni að
ýmsu tagi og má í því sambandi
nefna Blátt áfram, verkefni sem
er í samvinnu við Ungmennafélag
Islands og felst í að efla forvarnir
vegna kynferðislegs ofbeldis á
börnum á Islandi. Lesendur reka
augun í fleiri verkefni sem UMFI
býður upp á í þessu tölublaði.
Jón Kristján Sigurðsson
Ritstjóri:
Jón Kristján Sigurðsson.,
jonkristjan@umfi.is.
Ljósmyndir:
Sigurjón Ragnar Bjarni
Gunnarsson o.fl.
Umbrot og hönnun:
Jóhann Páll Kristbjörnsson.
Prentun:
Prentmet.
Prófarkalestur:
Sigurlaug Asta Sigvaldadóttir og
Þóra Kristinsdóttir
Auglýsingar:
Gunnar Bender g.bender@simnetis.
Pökkun:
As vinnustofa.
Ábyrgðarmaður:
Björn B. Jónsson, formaður UMFI.
Ritstjórn:
Anna R. Möller Sigurlaug Ragnars-
dóttir, Birgir Gunnlaugsson, Ester
Jónsdóttir
Þjónustumiðstöð UMFÍ:
Fellsmúla 26 - 108 Reykjavík.
Sími 568-2929.
Netfang: umfi@umfi.is.
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn:
Sæmundur Runólfsson fram-
kvæmdastjóri.Valdimar Gunn-
arsson landsfulltrúi, Omar Bragi
Stefánsson landsfulltrúi með
aðsetur á Sauðárkróki, Sigurlaug
Ásta Sigvaldadóttir ritari, Þóra
Kristinsdóttir bókhald.Jón Kristján
Sigurðsson ritstjóri Skinfaxa og
kynningar- og upplýsingafulltrúi,
Svava Björnsdóttir Blátt áfram.
SKINFAXI - geliö út somfleytt síöan 1909