Skinfaxi - 01.02.2005, Blaðsíða 24
Samstorfssamningur
Glímusambandsíns oo IIMFI
Glímusambandið og UMFI hafa gert með sér
samstarfssamning um eflingu glfmunnar innan
ungmennafélagshreyfmgarinnar. Markmiðið er að
fjölga iðkendum og auka veg íþróttarinnar á mót-
um UMFI. Stofnuð hefurverið nefnd sem hefur
þann tilgang að skila tillögum um hvernig hægt
verði að ná þessum markmiðum.
I nefndinni sitjaValdimar
Gunnarsson, Kristján Yngvason,
Pétur Eyþórsson, Stefán Geirsson
og Þóroddur Helgason. Það voru
þeir Björn B.Jónsson formað-
ur UMFI og KristjánYngvason
formaður GLI sem undirrituðu
samkomulagið.
4
Samstarfssamningur Ungmennafélags íslands (UMFÍ) og Glímusambands íslands (GLÍ) felur í sér eftirfarandi:
UMFI og GLI standa saman
að átaki um eflingu Glímunnar
innan ungmennafélagshreyfing-
arinnar með það að markmiði
að auka veg hennar á mótum
hreyfingarinnar og að fjölga
iðkendum.
2. UMFI og GLI standa saman
að myndun nefndar sem hef-
ur það hlutverk að leita leiða
til að ná þessum markmiðum.
Einnig hefur nefndin það hlut-
verk að kanna möguleika á að
mynda sýningarflokk UMFI í
íslenskri glímu.
3. Nefndin verði skipuð 5 valin-
kunnum mönnum sem skila
áliti til stjórnar UMFI og GLI
fyrir I5.febrúar2005.
4. GLI kynnir Unglingalandsmót
UMFI í útbreiðsluferðum sín-
um um landið.
5. Skipun nefndarinnar verður
íhöndum UMFÍ og GLI. Þrír
nefndarmanna verði frá UMFI
og tveir frá GLI. UMFÍ fer með
formennsku í nefndinni.
I
Á dögunum var samþykkt að stofna
Glímusamband innan sænsku fþrótta-
hreyf/ngarinnar en ársþing þess fór
fram í mars. Þetta er stórt skref fyrir
glímuíþróttina og gott dæmi um það að
glfman sé á uppleið.
Glíma hefur verið stunduð í
Svíþjóð í 15 ár en aðalega í Mal-
mö og Stokkhólmi. Einnig hefur
glíma verið stunduð í Danmörku
og Noregi og núna er vakna áhugi
í Finnlandi svo þetta er vonandi
bara fyrsta skrefið í þá átt að
koma glímunni á kortið í Skand-
ínavíu og Evrópu.
24
SKINFAXI - tímarit Unsmennafélags íslands