Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2005, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.02.2005, Blaðsíða 6
■Sr www.umfi.is/laugar Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum: i Lauaar hrein paradís Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum tóku til starfa um miðjan janúar á þessu ári. Búðirnar eru ætlaðar nemendum 9. bekkja í grunnskólum landsins og er markmiðið að starfrækja þær í um átta mánuði á ári. Forstöðumaður búðanna er Bjarni Gunnarsson. Fyrstu nemendurnir sem dvöldu í búðunum komu úr nærliggjandi sveitum en síðan hafa nemendur úr skólum vítt og breitt um landið dvalið að Laugum. Nemendur sem dvalið hafa í búðunum hafa lýst yfir mikilli ánægju með dvölina og vilja margir hverjir helst koma aftur. Undirbúningur að stofnun Ungmenna- og tómstundabúða að Laugum hefur staðið hátt á annað ár Ungmenna- og tómstunda- búðirnar eru hugsaðar sem þriggja ára tilraunaverkefni í sam- starfi við ýmsa aðila sem koma að málum barna og unglinga á Islandi. A undirbúningstímanum var leitað til fjölmargra aðila sem hafa sterkan faglegan bakgrunn í i'þrótta- og tómstundamálum ungs fólks og reynslu í að undirbúa verkefni sem þetta.Að málum komu meðal annarra fagfólk úr íþrótta-, æskulýðs-, og tómstunda- málum sveítarfélaga og i'þrótta- og æskulýðsfélaga.forsvarsmenn tóm- stundabrautar KHI og fleiri. Ungmenna- og tómstunda- búðirnar að Laugum verða reknar íanda hugmyndafræði UMFI. Mark- mið Ungmenna- og tómstunda- búðanna að Laugum er að vera leiðandi í rekstri ungmenna- og tómstundabúða á Islandi, efla sjálfs- traust, efla samvinnu og tillitssemi, hvetja til sjálfstæðra vinnubragða, kynnast heimvistarlífi, fræðast um söguslóðir kynna landið og nánasta umhverfi, læra að vera þátttakandi í félagsstörfum í anda UMFI, fræðast um mikilvægi for- varna, kynna ábyrg fjármál, vinna markvisst gegn einelti, fræðast um mikilvægi hollra lifnaðarhátta og kynnast jaðan'þróttum. Ennfremur verður lögð áhersla á tómstundir sem lífstíl og sem mikilvægan þátt i'forvarnar- starfi. Ftannsóknir hafa sýnt fram á að þátttaka barna og unglinga í íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur mikilvægt forvarnargildi. Rík áhersla verður lögð á að námið nýtist þegar heim er komið þannig að þátttakendur geta stofnað eða starfrækt nemendafélög og/eða aðra félagstengda starfsemi. Bryddað verður upp á þeirri nýjung að kenna þátttakendum grundvallaratriði f stjórnun einka- fjármála á lifandi og skemmtilegan hátt. Á þessu námskeiði verður farið íað kynna fyrir unglingunum mikilvægi þess að fara vel með peninga. Mikilvægi þess að huga að skipulagningu fjármála og eyða ekki um efni fram heldur reyna að leggja fyrin þó um smáar upphæð- ir sé að ræða. Dalasýsla er eitt helsta sögusvæði Islands. Nemendur í Ungmenna- og tómstundabúð- unum að Laugum heimsækja bæ Eiríks rauða að Eiríksstöðum í Haukadal. Þar gefst þeim kostur á að kynnast sögu Islands á lifandi og fræðandi hátt. Jafnframt að kynnast daglegu lífi eins og það var fyrir um þúsund árum. Að læra um söguna á söguslóð gefur nemendum einstakt tækifæri á að dýpka skilning sinn á sögu Island, lifnaðarháttum og samfélagi forn- manna. Aðstaðan að Laugum er ein- stök og kjörin fyrirtómstundastarf- semi en þangað er rúmlega eins og hálf tíma akstur frá Reykjavik eftir að Brattabrekka var mal- bikuð. Öll mannvirki að Laugum og aðstaða eru sniðin fyrir starf- semi Ungmenna- og tómstunda- búðana en þar var áður heíma- vistarskóli. Á staðnum er nýleg 25 metra útisundlaug, heitir pottar og fullbúið i'þróttahús. Umhverfið er frábært í alla staði til útivistar og margar gönguleiðir standa tíl boða í nágrenninu. 0 t ♦ J

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.