Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2005, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.02.2005, Blaðsíða 29
Þrastalundur: Framhvæmdum innandym lohíö Nýr og glæsilegur Þrastalundur var, eins og öllum ungmennafélögum er kunnugt um, vígður 12. júní 2004. Húsið kom í stað eldra húsnæðis en Þrastalundur er í eigu Ungmennafélags Islands. A dögunum var lokið við að leggja gólfefni og má segja að húsið innandyra sé komið í sfna fram- tíðarmynd. Snorri Sigurfinnsson veitinga- maður á Selfossi sem sér um rekst- urinn í Þrastalundi segir í spjalli við Skinfaxa að nýlokið sé við að klára húsið innandyra. Snorri er leiguaðili og félag sem hann rekur í samvinnu með eiginkonu sinni leigir húsið til tíu ára. Parket var lagt á alla salina, anddyrið, verslunin var stækkuð og í leiðinni hefðu farið fram ýmsar úrbætur Eftir er frágangur á lóðinni en að sögn Snorra er hús- ið komið í sína fullkomnu mynd en vonandi verði byggt við en full þörf sé orðin á því nú þegar „Það er komið vor í Gríms- nesinu.Við opnuðum í lok febrúar og það er strax byrjuð töluverð umferð um helgarVið erum með opið alla daga og á þessum róleg- asta tíma frá kl. I 1:00 til 17:00 og til kl. 20:00 um helgar Um leið og hlýnar þá lengjum við opnunartím- ann en stefnan er annars að vera með opið allt árið," sagði Snorri. - £r ekki aðstaðan öll orðin hin glæsilegasta? Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjórí UMFÍ, Gísli Páll Pálsson, formaður HSK Ejörn B.Jónsson, formaður UMFI og Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK á fundi í glæsilegum húsakynnum Þrastalundar á dögunum. „Hér er glæsileg aðstaða og það er rosalegur munur eftir að gólfefnin komu. Það kom hlýleiki í salinn og gegnheilt viðarparket- ið er glæsilegt að sjá og salurinn er orðin þannig að gaman er að halda þar veislurVið leigjum salinn með veitingum og nú þegar eru fram undan nokkrar ferminga- og afmælisveislur og ættarmót. Það er annars töluvert um bókanir en það tekur bara tíma fýrir fólk að átta sig á því hvað þessi staður hefur upp á að bjóða. Þarna er stórkostlegur útsýnisstaður og hver árstíð þarna um slóðir hefur sinn sjarma. Það er ekki síður fallegt að horfa út um gluggann að vetri til en umhverfið allt er í raun stórkostlegt," sagði Snorri Sigurfinnsson. r v MJ ÓLKURBÚ FLÓAMANNA Samkaup Sparisjóður Húnaþings og Stranda Húnaþing vestra ísafjarðarbær Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sparisjóður Norðlendinga Akure/ri SKINFAXI - gefiö út samfleytt síóan 1909

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.