Skinfaxi - 01.02.2005, Blaðsíða 20
Kristbjörn Albertsson formaður Ungmennafélags Njarðvíkur:
Gjörbylting í starfseminni
Glæsileg félagsaðstaðo Ungmennafélags Njarðvík-
ur var opnuð í nýrri viðbyggingu íþróttamiðstöðvar
Njarðvíkur á aðventunni, nánar tiltekið þann 14.
desember, að loknum umfangsmiklum endurbót-
um sem fram hafa farið á öllu húsinu að utan
sem innan.
Kristbjörn Albertsson, framkvæmdastjóri Ungmennafélags Njarðvíkur, við
vinnu á skrifstofu félagsins.
- Stendur ekki íþróttalífið í
blóma hér um slóðir eins og áður?
„Mjög svo en við erum einung-
is með fjórar deildir körfubolta,
knattspyrnu, sund og svo lyftinga-
og líkamsræktardeild. Reksturinn
gengur vel og við höfum hvergi
hrúgað upp skuldum. Það kostar
okkur um 5 milljónir að ganga frá
hér innandyra, það er annað
hvort að hafa þetta almennilegt
eða sleppa þessu.Við erum
ánægðir með lífið og tilveruna og
hvernig málin standa," sagði Krist-
björn Albertsson glaður í bragði.
„Við getum sagt að það hafi
orðið bylting að fá þessa félagsað-
stöðu og hún varð í raun miklu
meiri en ég hafði gert mér í hugar-
lund. Þessi aðstaða á sér svolitla
forsögu en við liðum fyrir það í
mörg ár að eiga hvergi samastað.
Deildirnar voru úti um allan bæ
og mest inn á heimilum formann-
anna. Þessi nýja aðstaða átti að
vera tilbúin 1995 en ég tók við
félaginu árinu áður. Eg hafði orð á
því á þeim tíma að ég ætlaði að
vera formaður þangað til við fengj-
um nýju aðstöðuna. Það er búið
að taka öll þessi ár og ég ennþá
formaður. Nú langar mig hins veg-
ar ekki að hætta formennsku því
það er svo gaman í starfinu," sagði
Kristbjörn Albertsson, formaður
Ungmennafélags Njarðvíkur í sam-
tali við Skinfaxa.
Kristbjörn sagði það mikið fé-
lagslegt atriði að fá þessa aðstöðu.
Félagsaðstaðan iðar af lífi allan
daginn í öllum deildum. Kristbjörn
sagðist sjá þess merki nú þegar
að nýja aðstaða hefði eflt félagið
til muna.
„Hér er alltaf eitthvað um að
vera en auðvitað hefur þetta kost-
að sitt. Þetta er tvímælalaust góð
fjárfesting til framtíðar litið.Við
munum eflaust leigja aðstöðuna
til einkasamkvæma en ungmenna-
félagar hafa samt forgang i' húsinu
svo framarlega sem þeir hafa pant-
að tíma," sagði Kristbjörn.