Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2005, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.02.2005, Blaðsíða 13
f Guðjón Hálfdánarson nemandi við íþróttalýðháskólann í Arósum: Guðjón Hálfdánarson úr Hveragerði hefur dvalið á íþróttalýðháskólanum í Arósum frá því í ágúst. Guðjón Hálfdánarson úr Hveragerði hefur frá því í ágúst dvalið í íþróttalýðháskólanum í Arósum á Jótlandi. Guðjón er 21 árs gamall stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Hann hafði ekki tekið ákvörðun um frekara nám í bili en þeg- ar hann heyrði af skólanum í Danmörku ákvað hann að slá til. Þarna gafst tækifæri sem ef til vill myndi aldrei gefast aftur. Guðjón stundar knatt- spyrnu af miklum eldmóði og lék um tfma með Hamri í Hveragerði og einnig með Breiðabliki. Fótboltinn varð að sjálfsögðu fyrir valinu sem sér- grein hans í skólanum. Guðjón hefur ekki tekið ákvörðun með hvaða liði hann leikur með þegar hann kemur heim í vor. Selfoss og Fjölnir hafa bæði falast eftir kröftum hans en Guðjón ætlar að bíða og sjá enda gæti dvölin allt eins lengst í Dan- mörku. Guðjón æfði bæði með Selfyssingum og Fjölni þegar hann var í frn heima um jólin. Guðjón hefur í vetur æft og leikið með Skovbakken sem leikur í hinni svokölluðu Jótlandsseríu og gætu mál hæglega þróast þannig að hann myndi leika með liðinu fram á sumarTíminn einn mun hins vegar leiða í Ijós hvað gerist í þeim efnum. - Hvað olli því að þú ákvaðst að fara utan til Danmerkur? d eftír að nýtast mcr alla <evi „Ég var i' fyrrasumar að spá í mín skólamál en langaði líka í aðra röndina að taka mér frí. Móðir mín, sem er í stjórn UMFI, sagði mér frá þessum möguleika og að UMFI væri í samvinnu við íþróttalýðháskóla í Danmörku. Þetta fannst mér vert að skoða nánar og kom hún mér í samband við Valdimar Gunnarsson sem hefur þessi mál á sinni könnu hjá UMFI.Við fórum ígegnum það hvað væri best fyrir mig varðandi fótboltann og á endanum kom hann mér inn í skólann í Arósum. Allt ferlið fór í gegnum UMFI og stend ég í mikilli þakkarskuld við þau ágætu samtök því tíminn í Danmörku er búinn að vera ólýsanlega skemmtilegur og þrosk- andi," sagði Guðjón hress í bragði í samtali við Skinfaxa. Skólinn hófst 18. ágúst og lauk haustönninni þann 18. desember og kom þá Guðjón heim í jólafrí. Hann hélt síðan aftur utan eftir áramótin og verður þar fram á vorið. „Ég veit ekki hvernig aðrir skólar eru en skólinn hér í Ar- ósum er hreint út sagt frábær Ég er í svokallaðri fótboltaakademíu en ýmsar aðrar íþróttagreinar standa mönnum til boða og má þar nefna handbolta, fimleika og margt annað sem er mjög athyglisvert. Skólinn sjálfur er mjög uppbyggjandi, þetta er ekki bara upplifun, heldur opnar dvölin hér í skólanum nýja sýn á lífið almennt. Það hófu 12 nemendur nám við fótboltaakademínu á sl. hausti, þar af þrír Islendingar en annars koma nemendur frá öllum heimshorn- um,“ sagði Guðjón. - Hvað hefur komið þeir einn helst á óvart í skólanum? „Ætli það sé ekki hvað maður er bara sterkur í því að bjarga sér sjálfur þegar á reynir Maður er að kynnast nýjum menningar- heimi, nýju fólki og nýju tungumáli. Það hefur komið mér á óvart hvað maður á mikið sameiginlegt með fólki sem kemur frá óli1<um menningarsamfélögum. Ég mæli eindregið með að íslenskir ungling- ar skoði það alvarlega að stunda nám í íþróttalýðháskólum en ég veit nú þegar af áhuga vina og kunningja heima á Islandi. Skólalíf- ið almennt er mjög fjölbreytt og Stíhlað d sögunni - fréttir úr hreypngunni - Fyrsta Unglingalandsmótið var haldið á Dalvík 1992 og síðan þá hafa verið haldin sjö slík mót. Það síðasta var haldið á Sauðárkróki í fyrrasumar en í ár verður það haldið íVík í Mýrdal dagana 29.-31. júlí. Mikill hugur er í heimamönnum og hefur undirbúningur staðið yfir frá því fyrir áramót og framkvæmdir við íþróttamannvirki eru hafnar af fullum krafti. SKINFAXI - gefið út samíleytt síöon I909 B

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.