Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 4
Nýtt innra shipulag UMFÍ
Björn Bjarndal Jónsson formaður UMFI:
Til að ná árangri í félagsstarfi er nauðsynlegt að
hafa gott skipulag og endurskoðun á innra starfi
félaga fari fram reglulega. Þetta á jafnt við um
lítil félög sem og stór landssamtök.
Innan ungmennafélagshreyf-
ingarinnar hafa átt sér stað
miklar framfarir í ytra sem innra
umhverfi okkar á undanförnum
árum. Margt kemur þar til svo
sem aukin og bætt skrifstofuað-
staða héraðssambanda og félaga.
Ný (þróttamannvirki um allt land
og önnur aðstaða fyrir félagsstarf
hefur stóraukist. Með tilkomu
nýrrar tækni eins og Internets
með endalausum möguleikum á
upplýsingum á heimasíðum gefur
okkur ný sóknarfæri. Allt eru þetta
hlutir af skipulagi hreyfingarinnar,
hlutir sem hafa áhrif á gang mála
og geta eflt starfið til muna ef rétt
er að málum staðið.
Ungmennafélag Islands hefur
á síðustu misserum farið yfir innra
skipurit samtakanna. Skipaður var
stýrihópur úr stjórn UMFI til að
vinna að þessum málum. I honum
sátu framkvæmdastjórnarmenn
UMFI ásamt varaformanni og
framkvæmdastjóra. Fenginn var
rekstrarráðgjafi, Kristján Kristjáns-
son hjá IMG Ráðgjöf, sem leiddi
vinnuna og lagði síðan fýrir stýri-
hópinn tillögur að nýju skipuriti
hreyfingarinnar Stjórn UMFI fór
að lokum yfir tillögurnar og sam-
þykkti þær
í framhaldi af þessari vinnu
tók si'ðan gildi frá áramótum nýtt
„innra" skipulag UMFI. Helstu
breytingar frá eldra skipulagi eru
þær að landsfulltrúar verða ráðnir
og skipta á milli sín mismunandi
málaflokkum sem þeir vinna að. I
framhaldi af því verða síðan ráðnir
svæðisfulltrúar sem munu heyra
beint undir landsfulltrúana. Aðset-
ur þeirra verður á landsbyggðinni
og verður reynt að hafa einn
svæðisfulltrúa í hverjum landshluta.
Vonir standa til að strax á þessu
ári verði hægt að ráða tvo svæð-
isfulltrúa til starfa og síðan fleiri
þegar fram líða stundir
Um síðustu áramót voru
tveir landsfulltrúar ráðnir með
aðsetur annars vegar á Sauðár-
króki og hins vegar í Reykjavík.
Þeir eru Ómar Bragi Stefánsson
ogValdimar Gunnarsson og hefur
verkefnum verið skipt þannig á
milli þeirra að Ómar Bragi verð-
ur með íþrótta-, umhverfis- og
æskulýðsmál á sinni könnu, en
Valdimar verður með menn-
ingar- og fræðslumálin. Hlutverk
landsfulltrúanna verður í megin-
atriðum fólgið í að taka þátt í
stefnumótun, gera starfsáætlanir
og fylgja þeim eftir; auk þess að
sjá um verkefnastjórnun í sínum
málaflokkum.
Björn Rjarndal Jónsson
formaður UMFI.
Á næstunni verður skoðað
með hvaða hætti ráðningu svæð-
isfulltrúa verður háttað. Lögð er
áhersla á að undirbúa það vel til
að ná öruggum og góðum árangri.
Svæðisstjórar munu heyra undir
landsfulltrúana. Megin verkefni
svæðisfulltrúanna verður að fylgja
eftir starfsáætlunum og skilgreind-
um verkefnum í nánu samstarfi
við ungmennafélögin í landinu.
Eg vil að endingu bjóða þá
Ómar Braga og Valdimar vel-
komna til starfa og vonast til að
nýtt skipurit UMFI nýtist öllum vel.
Björn Bjarndal Jónsson
formaður UMFI.
Bók Lars Enoksen
tilnefnd besta
sogubókin
Bókin Vikingarnas strids-
konst eftir Lars Magnar
Enoksen er ein af átta bókum
sem tilnefndar eru sem besta
sagnfræðibókin í Svíþjóð fýrir
árið 2004.
Bókin fjallar að hluta til um
glímu en þetta er þriðja sagn-
fræðibók Lars en fyrsta bókin
hans kom út árið 1998 og
heitir Runor - historía, tydning,
tolkning. Önnur bókin kom út
árið 2003 og heitir Vikingarnas
egna ord.
/
Nú er það endanlega Ijóst að Evrópumót fang-
bragða mun fara fram í borginni Landerneau í
Frakklandi en það er nálægt Brest og Lesneven.
Glímusambandið hefur ákveðið að senda lið til
keppni og er það í fyrsta skipti síðan 1991 sem
það gerist.
Nú er það endanlega Ijóst
að Evrópumót fangbragða mun
fara fram í borginni Landerneau í
Frakklandi en það er nálægt Brest
og Lesneven.Glímusambandið hef-
ur ákveðið að senda lið til keppni
og er það í fýrsta skipti síðan
1991 sem það gerist.
Mótið mun fara fram 7. og 8.
maí næstkomandi en þing IFCW
verður haldið 6. maí á sama stað.
Fulltrúar Glímusambandsins á
þinginu verða þeir Jón BirgirVals-
son og Ólafur Oddur Sigurðsson
en þeir eru í utanríkisnefnd GLI.
Æfingar fyrir mótið verða haldnar
4.-6. mars og 8.-10. apríl og þjálfari
verður Arnar Marteinsson.