Skinfaxi - 01.02.2005, Qupperneq 9
Erla Dögg Oddsdóttir úr Búðardal:
„Mér fannst dvölin
að Laugum alveg
meiriháttar og fannst
allt skemmtilegt sem
við tókum okkur fyrir
hendur. Það var líka
ofsalega gaman að
hitta krakka úr öðrum
skólum og ég kynntist
mörgum þessa vik-
una, “ sagði Erla Dögg
Oddsdóttir en hún kem-
ur úr grunnskólanum
í Búðardal þannig að
það var ekki langt fyrir
hana að koma í búð-
irnar. Erla Dögg þekkir
má segja hverja þúfu
að Laugum því þangað
sækir hún leikfimi og
sund tvisvar í viku.
Vinkonurnar Erla Dögg Oddsdóttir og Bára Björnsdóttir úr
grunnskólanum í Búðardal fannst dvölin að Laugum alveg
meiriháttar. Það hefði líka verið gaman að hitta krakka úr
öðrum skólum.
Erla Dögg sagði ennfremur að hún hefði ekki átt von á því
að dvölin yrði svona skemmtileg eins og raunin varð á.
„Mér fannst tímarnir sem við sóttum margir hverjir vera
fróðlegir og skemmtilegir Það var athyglisvert og fræðandi að
kynnast plús og mínus verkefninu. Ég ætla að vona að búðirnar
að Laugum séu komnar til að vera og ég hvet alla krakka í 9.
bekkjum á landinu að koma. Laugar hafa allt upp á að bjóða
og umhverfið er stórkostlegt," sagði Erla Dögg í spjallinu við
Skinfaxa.
Bára Björnsdóttir úr grunnskólanum í Búðardal:
FrdtMErt fnmtá
Bára Björnsdóttir er í grunnskólanum í
Búðardal og var hún sammála vinkonu
sinni Erlu að dvölin var í al/a staði mjög
vel heppnuð. Henni fannst skemmtilegast
að vera með krökkunum og eins hefði
ísbrjótakeppnin verið skemmtileg. Hún
vildi einnig minnast á matinn sem henni
fannst mjög góður.
„Ungmenna- og tómstunda-
búðirnar bjóða upp á margt
og brjóstsykursgerðin var ansi
skemmtileg. Ég hef búið til
karamellur en aldrei reynt við
brjóstsykurinn áður Þetta er
frábært framtak hjá Ungmennafé-
lagi Islands að bjóða upp á dvöl í
búðum þar sem krakkar hittast og
eiga góða daga saman. Þessar búð-
ir hljóta að eiga framtíðina fyrir
sér," sagði Bára Björnsdóttir
Eiríksstaðir
- lifandi sögusýning -
Tilgáta af bæ
Eiríks rauða
og fæðingarstað
Leifs heppna
Hérgeta gestir skyggnst inn í lífshœtti
tandnámsaldar með vandaðri og
líflegri leiðsögn.
Starfsfólk á víkingaklœðum sinnir
margvíslegri búsýslu, svo sem vefnaði,
rúgkökubakstri yfir langeldi og
bandverki ýmiss konarog ergestum
ve/komið að takaþátt ístörfum þeirra.
Börnin fá tœkifœri til að leika sér með
trévopn, leggi og kjálka o.fl.
Tilgátubœrinn er opinn
daglega frá
l.júní —31- ágúst
frákL 9-18
Þjóðhildarveistur - Kvöldvökur
Fjölskylduhátíð —Leifshátíð
8.-10. júlí 2005
Upplysingar í sínia:
Eiríksstaðir 434-1118
Upplýsingamiðstöðin 434-1410
ferdantal@dalir.is
SKINFAXI - gefiö út samíleytt síðan 1909