Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 11

Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 11
Upplifðu eitthvað nýtt og spennandi! Styrktu þig sem einstakling og eignastu nýja vini Ungmennavika í Noregi, 3.-10. júlí Ungmennavikan er fyrir ungmenni á aldrinum 16-20 ára. Á ungmennavikum hittast ungmenni frá öllum Norðurlöndunum við leik og störf í heila viku. í ár er þema ungmennavikunnar mismunandi menning Norðurlandanna. Útilífsvika í Noregi, 1.-7. ágúst Útilífsvikan er ætluð ungu fólki á aldrinum 18-30 ára. Á útilífsviku eru öll verkefni tengd útiveru og þemað er náttúra, umhverfi og heilbrigði. Norræni leiðtogaskólinn í Færeyjum, 10.-16. júlí Ætlaður ungu fólki á aldrinum 18-25 ára sem áhuga hafa á að bæta sig sem leiðtogar í félagsstarfi. í leiðtogaskólanum verður boðið upp á fjölbreytt og spennandi nám sem sniðið er að þörfum þeirra sem eru íforystustörfum ífélögum. íþróttalýðháskólar í Danmörku UMFÍ er með samstarfssamning við sex íþróttalýðháskóla í Danmörku. Hægt er að stunda þar nám í 4,6, eða 10 mánuði. Islendingar fá afslátt af skólagjöldum og auk þess er hægt að sækja um styrk til UMFÍ. Allar upplýsingar fást í Þjónustumiðstöð UMFÍ Fellsmúla 26 • 108 Reykjavík • Sími 568 2929 • netfang umfi@umfi.is • www.umfi.is

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.