Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 12
[förspurnin tr mikil
F
- segir Valdimar Gunnarsson landsfulltrúi UMFI
Ungmennafélag íslands hefur gert samstarfssamning við sex
íþróttalýðháskóla í Danmörku. Umræddir skólar eru vftt og
breitt um landið og leggja áherslu á mismunandi íþróttagreinar.
Ungmennafélag íslands veitir nemendum styrk til dvalarinnar
og gefurValdimar Gunnarsson, landsfulltrúi, allar upplýsingar
en hann hefur aðsetur í þjónustumiðstöðinni í Fellsmúla 26 í
Reykjavík.
Valdimar Gunnarsson, landsfulltrúi UMFI, veitir allar
upplýsingar um skólana sem í boði eru í Danmörku.
Að sögnValdimars er þetta
annað árið sem UMFI styrkir ís-
lensk ungmenni til dvalar í íþrótta-
lýðháskólunum í Danmörku
sem hafa aðsetur í Sönderborg,
Ollerup, Gerlev.Viborg, Árósum
og Norður Jótlandi, UMFI styrkti
tíu nemendur fyrsta árið en á yfir-
standandi skólaári eru þeir 20 tals-
ins. Fyrir næsta skólaár 2005-2006
verða 40 styrktir veittir til dvalar í
íþróttalýðháskólum í Danmörku.
„Það ríkir mikil ánægja meðal
nemenda sem dvalið hafa í þess-
um skólum og ég veit að þeir
sem eru úti í vetur eru í skýjunum
með dvölina. Nú er svo komið að
við önnum ekki eftirspurn og af
þeim sökum höfum við ekki getað
styrkt alla sem þess hafa óskað,"
sagði Valdimar
Valdimar var inntur eftir því
hvernig þessi styrkveiting færi
fram innan UMFI.
,,í þetta ákveðna verkefni höf-
um við sótt styrk í danska sjóðinn
NordplusVoksne. Skólarnir er mis-
dýrir en það ræðst af afslætti sem
við fáum frá hverjum skóla fyrir
sig. Eins leggja skólarnir áherslu á
mismunandi íþróttagreinar; sumir
á fimleika en aðrir á boltagreinar
íslendingar hafa staðið sig vel í
dönsku skólunum en þátttakendur
á aldrinum 18-25 ára hafa kost
á að sækja um skólavist. Það eru
margir sem fara þegar stúdents-
prófi lýkur og nota þá tíma til
hugsa næstu skref hvað skóla-
göngu áhrærir Dvölin í íþróttalýð-
háskólunum gefur nemendum
ákveðna reynslu og þekkingu sem
þeir búa að alla ævi. Ennfremur
gefst þarna kjörið tækifæri til að
læra dönskuna. Þetta gefur nem-
endum tvímælalaust tækifæri sem
þeir ellegar fengju ekki annars
staðar," sagðiValdimar
Hvað námskostnað varðar
tókValdimar skólann í Sönderborg
sem dæmi miðað við fjögurra
mánaða námsdvöl.
Hver mánuður kostar 2,000
danskar krónur eða alls 8,000
danskar krónur í heildina. Á móti
kæmi til styrkur frá UMFI upp á
80 þúsund krónur. Styrkveitingin
er þessi fasta upphæð hvort um
sé að ræða 4, 6, eða 10 mánaða
dvöl.
Ungmennaskipti:
Langar þig til Svíþjóöar eba Noregs?
Eins og undanfarin á þá gefst
ungmennum á aldrinum 17-20 ára
að dvelja sér að kostnaðarlausu
yfir sumartímann f Noregi eða
Svíþjóð. Dvalið er hjá fjölskyldum í
viðkomandi landi og tekur þátttak-
andi þátt í hinum daglegu störfum
fjölskyldunnar
Allur ferðakostnaður innan-
lands er greiddur af fjölskyldunum
en þátttakandi þarf að greiða
ferðakostnað til og frá Islandi.
Áhugasamir geta haft samband
við Þóru á þjónustumiðstöð UMFI
í síma 568-2929 til að fá ýtarlegri
upplýsingar eða á netfangið
thora@umfi.is.
11
SKINFAXI - tímorit Ungmennafélags íslands