Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 14

Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 14
Guðjón og Wilfred Bouma fyrir utan æfingarsvæði hollenska stórlíðsíns PSV Eindhoven á dögunum. Guðjón, Ole, Henriette, Louise ogJohanne... Inn á einu herberginu í skólanum. Við öll erum mjög góðir vinir. Guðjón, Ole, Kian og Freysi... þetta er hljómsveitin „Danskerne" vegna þess að enginn af okkur er danskur. Tekið á Live Café i skólanum. spennandi og það er lagt mikið upp úr því að nemendur kynnist fljótt og vel," sagði Guðjón en nemendur á yfirstandi skólaári eru um 120 talsins. Hinn venjulegi skóladagur hefst þrjá morgna í viku klukkan 07:15 en hina tvo klukkan 08:00. Þá snæða nemendur morgunmat saman og þegar að honum lýkur taka við æfingar. Guðjón sagði að- stæður í alla staði frábærap mikið væri lagt upp úr líkamlegum æfng- um og aðstæður til allra íþrótta- greina væru þær bestu sem völ væri á. Síðan koma öðru hverju þjálfarar frá AGF og FC Aarhus og leiðbeina okkur Síðan höfum við aðgang að litlu íþróttahúsi allan sólarhringinn sem við getum leikið okkur í. Skólinn er til klukkan 16:00 fimm daga vikunnar og á kvöldin er lifandi félagslíf þannig að engum ætti að leiðast. Það er frí allar helgar og á laugardögum er leyfilegt að nemendur skemmti sér saman," sagði Guðjón. Guðjón sagði alla umgjörðina við skólann einstaklega góða og í raun væri ekki hægt að setja út á neitt. ,,Það er mikil upplifun að vera hérna úti og hvað mig varðar þá er ég að taka miklum framförum. Starfslið skólans er í fremstu röð, vinnur vel með hverjum einstak- lingi og kemurtil hjálpar um leið og þess er óskað. Eg er búinn að eiga hér magnaðan tíma og dvölin á örugglega eftir að nýtast mér alla ævi,“ sagði Guðjón Hálfdánar- son en hann var nýkominn úr skíðaferðalagi í Frakklandi. 14 SKINFAXI - tímorit Ungmennalélags Islands

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.