Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 15
Anna Sif Hjaltested úr Garðabæ dvelur í Sönderborg:
Anna Sif Hjaltested, tvítugur Garðbæingur, hélt
utan í janúar til dvalar í fþróttalýðháskólanum
í Sönderborg. Skólinn er syðst á Jótlandi og því
örstutt að skreppa til Þýskalands en þangað fara
nemendur oft í stuttar heimsóknir. Þegar Skin-
faxi sló á þráðinn til Önnu var hún að fara á leik
Flensburg og Nordhorn í þýsku úrvalsdeildinni í
handknattleik.
Anna æfði fótbolta með
Stjömunni í 10 ár en þegar hún
var yngri var hún einnig í hand-
bolta og fimleikum.
„Eg var búin að fá góð með-
mæli með skólanum í Sönderborg
og ákvað því að fara þangað í
janúar Mér líst mjög vel á skólann
og allar aðstæður eru til fyrir-
myndar og umhverfið er mjög
skemmtilegt.Tveir stórir íþrótta-
salir eru við skólann, sundlaug
og útivistarsvæðið er gríðarlega
stórt. Lóðin er við sjávarsíðuna og
þegar vorar verður hægt að nota
það svæði. Nemendur velja sér
tvær aðalgreinar og fyrir valinu hjá
mér varð fótbolti og fitness sem
gengur út á styrktaræfmgar og
halda sér í góðu líkamlegu formi,"
sagði Anna Sif.
Nemendur við skólann koma
víða að, flestir þó frá Danmörku,
en einnig eru í hópnum Þjóðverj-
ar, Færeyingar; Grænlendingar og
þrír Ungverjar Nemendur eru
IDRÆTSH0J SKOLEN
Anna Sif Hjaltested úr Garðabæ er
í íþróttalýðháskólanum í Sönderborg
sem er syðst á Jótlandi.
Anna Slf er hér í skíðaferðalagi með
skólanum.
I kringum 60 og allir í skýjunum
með dvölina eins og Anna Sif
komst að orði.
„Þegar maður ætlar á annað
borð að taka sér fn' frá námi er
upplagt að fara í skóla af þessu
tagi. Eg sé ekki eftir því en ég er
nokkuð ákveðin að fara í Háskóla
íslands næsta haust og langar mig
til að prófa verkfræðina," sagði
Anna Sif sem kemur aftur heim til
Islands með vorinu.
Hún sagðist hiklaust mæla
með vistinni í Sönderborg. Henni
finnist danskir krakkar öðruvísi en
þeir íslensku og í flestum tilfellum
mun opnari.
„Eg hef kynnst mörgu góðu
fólki hér og gef skólanum bestu
einkun. Eg bendi fólki hiklaust að
hafa samband við UMFI og fá
upplýsingar um þá skóla sem í
boði eru," sagði Anna Sif og var
þar með rokin til Þýskalands, enda
ekki langt að fara.
IS
SKIDFAXI - geiiíi út samíleytt síöon 1909