Skinfaxi - 01.02.2005, Qupperneq 17
t
Alda Pálsdóttir sótti Leiðtogaskóla UMFI á Hvanneyri:
Það var líf og fjör í tuskunum í Leiðtogaskólanum sem haldinn var á Hvann-
eyri í Borgarfirði í lok febrúar. Skólinn stendur fyrir ýmiskonar námskeiðum
og koma að þeim færir leiðbeinendur hver á sínu sviði. Mjög góður rómur er
gerður að skólanum en skipulagning hans er í höndum Valdimars Gunnars-
sonar landsfulltrúa Ungmennafélags Islands. Skólinn er ætlaður þeim sem
eru að vinna úti í hreyfmgunni en alls sóttu tólf þátttakendur skólann á
Hvanneyri víðs vegar að af landinu.
Alda Pálsdóttir, framkvæmastjóri
HSH, leist mjög vel á Leiðtoga-
skólann sem haldinn var að þessu
sinni á Hvanneyri.
Skinfaxi heimsótti skólann og
tók einn þátttakandann tali sem
var Alda Pálsdóttir en hún er
framkvæmdastjóri HSH sem hefur
bækistöðvar si'nar í Stykkishólmi.
Öldu leist mjög vel á skólann
og sagðist hafa lært fullt af atrið-
um sem nýttust henni, bæði í
starfi og sem einstaklingi.
Alda hefur verið framkvæmda-
stjóri HSH í tvö ár, fyrst í hálfu
starfi en í dag er um fullt starf að
ræða og veítir ekki af að sögn
Öldu. Verið er að tyggja upp starf-
ið frá grunni eftir svolitla stöðnun.
Að hennar mati þurfa hérðassam-
böndin að fylgja betur eftir unga
fólkinu og aðlaga sig að breyttum
áherslum þannig að við sitjum
ekki eftir eins og hún komst að
orði.Alda segirstarfið innan HSH
mjög fjölbreytt og skemmtilegt.
„Þessi skóli er lofsvert framtak
hjá UMFI og sniðið að stjórnar-
mönnum og framkvæmdastjórum.
Mér finnst það ætti eiginlega að
vera skylda að sækja þennan skóla
ætli maður sér að starfa í þessum
félagsgeira. Eg held að margir
innan hreyfingarinnar geri sér ekki
almennilega greín fyrir því hvað
skólinn í raun býður upp á. Eg er
alveg viss um að maður verður
sterkari einstaklingur eftir að hafa
setið skólann þessa fjóra daga
sem hann stenduryfin" sagði Alda.
- Hvað er þoð helst sem komið
hefur þér á óvart I skólanum?
„Það er erfrtt að benda á
eitthvað sérstakt þvi' mér fannst
allir fyrirlesararnir mjög góðir á
sínu sviði. Ég fer heim sem sterkari
einstaklingur hugsa skýrar þannig
að maður getur tekið ákvarðanir
skjótar en áður."
„Ég vil bara hvetja alla sem
eiga þess kost að fara í Leiðtoga-
skólann.
Hann er bráðnauðsynlegur
hvort sem þátttakandinn er búinn
að vera lengi í starfi eður ei. Hvað
mig sjálfa varðar þá fer ég héðan
endurnærð og sterkari einstakling-
ur sem nýtist mér síðan í starfinu
innan HSH," sagði Alda Pálsdóttir
BYGGÐASAFN HÚNVETNINGA OG STRANDAMANNA'
Reykjum Hrútaflrði
Hákarlaveiðar
við Húnaflóa
Shark Fishing Exhlbition
Opiðdaglegafrákl. 10:00-18,-OOfrá l.Júnitil 31. ágúst - Sirai 4810040 / 860 8970 www.simnet.is/ofeigar
Þann I5.janúar sl. var stór
stund á Hólmavík en þá var form-
lega opnuð ný i'þróttamiðstöð á
staðnum. Þar er á einum stað 25
metra útisundlaug, íþróttasalur
með löglegum körfuboltavelli,
tækjasalur og gufubað.
Þetta er mikil bylting fyrir
i]Dróttaiðkendur á Ströndum og
rfkir mikil ánægja í herbúðum
þeirra og líta heimamenn björtum
augum til framtíðarinnar
Asdís Leifsdóttir sveitastjóri tekur á móti góðri gjöf frá Birgi Gunnlaugssyni
stjórnarmanni í UMFI.
SKINFAXI - gefió út samfleytt síðan 1909
I/