Skinfaxi - 01.02.2005, Qupperneq 19
„Það var mjög gaman að
koma heim með bikarinn en tekið
var á móti okkur með flugeldasýn-
ingu og öllu tilheyrandi. Síðan tók
við samkoma með félagsmönnum
í nýrri og glæsilegri aðstöðu félags-
ins. Ahangendur liðsins voru búnir
að bíða lengi eftir þessari stund,"
sagði Einar Jóhannsson, þjálfari
Njarðvíkinga, í samtali við Skinfaxa.
Þetta er fýrsta ár Einars með
meistaraflokk félagsins en alls hef-
ur hann starfað í 12 ár við þjálfun
í Njarðvík, lengst af með yngri
flokkana og eins með kvennalið
félagsins. Einar segir það hafa
verið mjög spennandi verkefni
að taka við meistaraflokknum en
auk þess sér hann um þjálfun á
10. flokki og drengja- og unglinga-
flokki. Hann segir framtíðina bjarta
en 10. flokkurinn hefur ekki tapað
leik í rúm þrjú ár og verið Norð-
urlandameistarar sl. tvö ár Hann
segir það gerólíkt að vera kominn
í umhverfi meistaraflokksins þar
sem kröfurnar er mun meiri en í
yngri flokkunum.
„Gengi liðsins í vetur hefur
verið upp og ofan, byrjuðum
að vísu með látum en duttum
svo hressilega niður.Við vorum
síðan á góðri uppleið þegar nær
dró sem náði síðan hámarki í
bikarúrslitunum.Við höfðum fyrir
leikinn hvorki unnið Islands- og
bikarmeistaratitilinn í tvö ár og því
voru menn orðnir ansi hungraðir
að landa loksins titli," sagði Einar.
- Tímabilinu er hvergi lokið og
nú blasir við baráttan um sjálfan
Islandsmeistaratitilinn.
„Við erum staðráðnir í því
að gera harða atlögu að Islands-
meistaratitlinum.Við einsettum
okkur að klára deildarkeppnina
með sóma og vinna okkur gott
sæti fyrir úrslitakeppnina. Þá má
segja að hefjist nýtt mót og við
ætlum að leggja allt í sölurnar þar
Eg á von á mjög skemmtilegri
úrslitakeppni og úrslitin í deildinni
á síðustu vikum hafa sýnt það að
ómögulegt er að spá í hvernig mál-
in þróast. Ég á von á mjög harðri
og spennandi keppni," sagði Einar
Jóhannsson.
Stililai d sSgunni - fréttir úr hreyflngunni
- Fyrsta nútíma íþróttamótið sem haldið var hér á landi var leikmótið á Akureyri.
Það var haldið á Oddeyrartúni þann 17. júm' 1909 og ertalið hið fyrsta í röð Landsmóta UMFI.
Lárus Rist sundkennari hafði hvað mestan veg og vanda af framkvæmd mótsins og undirbúningi.
Hann var meðal helstu frumkvöðla (þrótta á Akureyri sem var á þessum tíma vagga ungmennafélags-
hreyfingarinnar Blíðskaparveður var allan daginn áAkureyri.
- Jóhannes Jósefsson, oft nefndur Jóhannes á Borg, varð fyrsti formaður Ungmennafélags Islands.
Jóhannes hélt sfðan út i' lönd til að sigra heiminn eins og oft var sagt.
Hann kom að nýju til Islands 1927 og réðst strax eftir heimkomuna í byggingu á Hótel Borg.
Framleiðum barmmerki
í öllum stærðum og
gerðum
Mikið úrval af bikurum
og verðlaunapeningum
Verið velkomin í verslun
okkar að Síðumúla 17
eða hafið samband í
síma 588-3244
Fax 588-3246
email: isspor@simnet.is
SKINFAXI - geíiö út samfleytt síban 1909