Skinfaxi - 01.02.2005, Page 21
Unglingalandsmótið haldið íVík dagna 29.-3l.júlí:
••
r
- segir Sædís Iva Elíasdóttir formaöur USVS
Unglingalandsmót Ungmennafélags Islands verð-
ur haldið íVík íMýrdal dagana 29.-3 l.júlí í sum-
ar. Framkvæmdaaðili mótsins verður Ungmenna-
samband Vestur- Skaftafellssýslu, USVS.
UMFÍ og USVS hafa fundað
saman á hálfs mánaðarfresti sl.
mánuði og í lok febrúar undir-
rituðu aðilar formlega samning
vegna mótshaldsins í sumar:
Undirbúningur er hafinn af fullum
krafti og ríkir mikil tilhlökkun fVík
fyrir komandi Unglingalandsmóti.
Vikurbúar eru höfðingjar heim
að sækja og búast þeir við 7-10
þúsund gestum á mótið.Vík skart-
ar mikilli náttúrufegurð og þar
eru margir áhugaverðir staðir að
skoða og því álitlegur kostur fyrir
fjölskyldur að skella sér austur á
mótið í sumar
Sædís Iva Elíasdóttir er
formaður USVS og sagði hún í
samtali við Skinfaxa að í mörg
horn væri að líta í undirbúningi
fyrir svona mót. Hún er uppalin á
Kirkjubæjarklaustri en hefur búið í
Vik sl. 12 ár en bjó einnig nokkur
ár í Reykjavík. Sædís Iva tók að sér
formennsku héraðssambandsins
fyrir ári síðan en menntun sína
sótti hún í Rekstrarháskólann á
Bifröst.
- Hver var aðdragandinn að því
að þið sóttust eftir að haida Ung-
lingalandsmótið 2005?
,,Við vorum fyrst og fremst
ákveðin í þvi' að taka að okk-
ur ögrandi verkefni. Menn sáu
ennfremurtilvalið tækifæri til
uppbyggingar á staðnum í gegn-
um þetta verkefni. Með þetta til
hliðsjónar var ákveðið að sækja
um og það var síðan tilkynnt með
formlegum hætti á Unglingalands-
mótinu í fyrra á Sauðárkróki að
við fengjum að halda mótið í ár.
I framhaldinu fór í gang vinna
heima og finna um leið fulltrúa
í Unglingalandsmótsnefndina og
það er síðan í september sem
stjórn UMFI tilnefnir sína fulltrúa.
I lok sama mánaðar kom nefndin
saman í fyrsta skipti og hefur fund-
að á hálfs mánaðar fresti síðan,“
sagði Sædís Iva.
- Það hlýtur að vera stór ákvörð-
un að taka verkefni að þessari
stærðargráðu að sér, ekki satt?
„Auðvitað, en þetta krefst
fyrst og fremst vinnu við skipu-
lagningu og henni verður að fylgja
fast eftirVið vorum ákveðin í því í
upphafi að hafa gaman af verkefn-
inu og við lítum á það sem slíkt
en ekki eitthvað vandamál. Það er
grundvallaratriði, verkefni sem við
ætlum að leysa með stæl.Við höf-
um heyrt raddir utan að þar sem
fólk efast um að við séum þess
megnug að geta þetta.Við ætlum
að sjálfsögðu að reka allan þann
orðróm til baka."
Sædís Iva sagði að fram að
þessu hefði undirbúningurinn
gengið vel. Það er unnið að því
að skipuleggja alla þá þætti sem
Sædís Iva Elíasdóttir, formaður USVS, segir Unglingalandsmótið verkefni sem
leyst verði með stæl.
lúta að mótinu. Það urðu umskipti
þegar framkvæmdastjóri var ráð-
inn auk starfsmanns sem kemur
inn í fullt starf á vormánuðum.Við
settum okkur í samband við þjón-
ustuaðila i'sýslunni og ég held að
það megi segja að undirbúningur
allur sé á mjög góðu róli.
- Er það ekki mikill akkur fyrir
sveitafélag á borð við Vík að fá að
halda þetta mót þegar um leið fer
fram uppbygging á íþróttasvæðinu
sem fyrir er?
„Það er ekki nokkur spurning
að þetta er gríðarlegt tækifæri
fyrir svona lítið sveitarfélag, byggja
upp um leið íþróttaaðstöðu sem
skilar sér svo til framtíðan Þá ekki
hvað síst að fá allt þetta fólk inn á
svæðið sem hefur mikið auglýs-
ingagildi i' för með sér Það skiptir
einnig töluverðu máli að allir aðrir
svo sem aðilar í ferða- og veitinga-
þjónustu standi sig vel. Iþrótta-
mannvirki hér geta aldrei verið
samanburðarhæf við þau sem
voru á Sauðárkróki og af þeim
sökum er erfitt að koma á eftir
svona umfangsmiklu Unglingalands-
móti eins og mótið á Króknum
var í fyrra.Við ætlum hins vegar
ekki að láta það hrekja okkur frá
vegna þess að mi'n skoðun er sú
að þessi Unglinglandsmót verða
að eiga sína sérstöðu á hverju ári
út frá þeim stað sem þau eru hald-
in. Auðvitað er þetta íþróttamót
en ekki síður fjölskyldumót þar
sem fólk er að njóta svo margra
UNGLINGA
LANDSMÓT
UMFÍ
www.ulm.is
annara hluta.Við ætlum að draga
fram það besta sem við eigum
og vonandi getur öllum liðið vel
sem hingað koma á Unglingalands-
mótið", sagði Sædis Iva.
-1 hvaða framkvæmdir ætlið þið
að ráðast í varðandi Unglingalands-
mótið?
„Það þarf að gera verulega til-
tekt við sjálfan frjálsíþróttavöllinn.
Við eigum mjög góðan níu holu
golfvöll sem hefur verið í upp-
byggingu á undanförnum árum.
Aðstaðan fyrir hestamenn er með
ágætum, nýtt íþróttahús og sund-
laug er á staðnum. Frjálsíþróttavöll-
urin er bara gamall grasvöllur og í
ágætis lagi þannig séð. Það verða
hins vegar gerðar á honum veru-
lega breytingar og draumurinn er
sá að lagt verði varanlegt efni á
400 metra hlaupabraut umhverfis
völlinn. Stökk og kastsvæði verða
að sjálfsögðu með þessu efni en
tíminn á eftir að leiða það i' Ijós
hvað verður ofan á í þessum
efnum."
Sædís Iva sagðist búast við
7-10 þúsund gestum á mótið
en stærðarinnar vegna væri ekki
heppilegt að þeir yrðu fleiri.
SKINFAXI - gefið út samfleytt síöan 1909
21