Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 25
Fréttir úr hreyfíngunni
Ársþing UMSK í íþróttamistöðinni í Laugardal:
Valdimar Leó endurkjörinn formaður
Á ársþingi UMSK sem fór fram í íþróttamiðstöðinni í Laug-
ardal varValdimar Leó Friðriksson endurkjörinn formaður
sambandsins með lófataki. Ester Jónsdóttir og Albert H.N.
Valdimarsson voru einnig endurkjörin til tveggja ára. I vara-
stjórn voru kjörin Svanur M. Gestsson, Margrét Björnsdótt-
ir og Hannes Jónsson.
Vel var mætt til þingsins en 75 fulltrúar voru mættir frá 18 félögum.
Ásamt hefðbundnum þingstörfum fór fram kynning á starfsemi Getrauna
og þeim möguleikum sem eru í tekjuöflun fyrir félögin með getrauna-
sölu. Þá var samþykkt ályktun um félagakerfið Felix sem ISI og UMFI hafa
látið þróa og eru félögin hvött til að nýta sér kerfið.
Viðurkenningar voru veittar að venju til íþrótta- og forystumanna
innan sambandsins.
Afreksbikar: Rúnar Alexandersson, Gerplu
UMFÍ bikarinn: Meistarafl. Stjörnunnar í blaki karla
Dansbikar: Elisabet Haraldsdóttir og Max Pedrow, Hvönn
Fimliekabikar UMSK: Hópfimleikahópur Stjörnunnar
Frjálsíþróttabikar: Sigurbjörg Ólafsdóttip Breiðablik
Sundbikar: Hildur Karen Ragnarsdóttir; Breiðablik
Skíðabikar: Sindri Már Pálsson, Stjörnunni
Félagsmálaskjöldur: Þórður St. Guðmundsson, Breiðablik
Eftirtaldir hlutu starfsmerki:
Bjarni Torfi Álfþórsson, Gróttu
Jón Finnbogason, Gerplu
Snorri Olsen, Stjörnunni
Bjarnleifur Bjarnleifsson, Gusti
Þá hlaut Anna R. Möller silfurmerki UMSK
Ellert B. Schram, forseti ISI heiðraði þá Þórð Guðmundsson, Breiðablik
ogjón Ásgeir Eyjólfsson, NK með gullmerki ISI.
Björn B. Jónsson veitti tvö starfsmerki til þeirra Lárusar Blöndal, Stjörn-
unni og Hafsteins Guðmundssonar; Hvönn.
Á annað hundrað manns
mættu á hérðasþing HSK
Um 120 manns mættu á 83. héraðsþing HSK sem haldið var
í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands.Nutu fulltrúar gestrisni
félaga úr Ungmennafélagi Selfoss, Sveitarfélagsins Árborgar og
starfsfólks FSU og eru þeim þakkaðar frábærar móttökur
Á þinginu var gefin út vegleg ársskýrsla um starfsemi
héraðssambandsins á liðnu ári. I skýrslunni kemur fram að starfið var
þróttmikið á liðnu ári, bæði innan HSK og aðildarfélaga þess. Rekstur
sambandsins gekk nokkuð vel á síðasta ári, en þó varð lítisháttar halli á
rekstrinum eftir afskriftir
Ellert B. Schram forseti ISI sæmdi Karl Gunnlaugsson, formann GF,
gullmerki ISI og þá veitti hann Gísla Páli formanni HSK silfurmerki ISI.
Bjöm B.Jónsson veitti Kárajónssyni formanni Umf. Laugdæla og Helgu
Guðjónsdóttur varaformanni UMFI starfsmerki UMFI.
Á þinginu kom út merkjahefti með lógóum allra aðildarfélaga HSK,
auk þess sem öll félögin fengu afhent plakat með merkjunum.Að því
tilefni afhenti formaður HSK, forseta ISI og formanni UMFI fyrstu merkin.
Þetta verkefni hefurverið i'vinnslu undanfarin misseri, undir styrkri stjórn
Arnar Guðnasonar fyrrverandi formanns Umf. Baldurs á Hvolsvelli.
Miklar og góðar umræðurfóru fram ífimm starfsnefndum þingsins
og á þriðja tug tillagna voru samþykktar á þinginu.
Vigdís Guðjónsdóttir spjótkastari úr Ungmennafélagi Skeiðamanna
var kosin Iþróttamaður HSK árið 2004, fjórða árið í röð.
I lok þings var kosin 8 manna stjórn og varastjórn sambandsins og 16
starfsnefndir HSK. Gísli Páll Pálsson úr Iþróttafélaginu Hamri í Hveragerði
var endurkjörinn formaður sambandsins.Yngvi Karl Jónsson, Hamri, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs í varastjórn. Bergur Guðmundsson, Selfossi og fýrr-
verandi formaður handknattleiksdeildar Umf. Selfoss var kosinn í hans stað.
Stjórn HSK skipa:
Formaður: Gísli Páll Pálsson Iþróttafélaginu Hamri
Gjaldkeri: Bolli Gunnarsson Umf. Baldri
Ritari: Guðríður Aadnegard Iþróttafélaginu Hamri
Varaformaður: Ragnar Sigurðsson Umf. Þór
Meðstjórnandi: Markús Ivarsson Umf. Samhygð
Varamenn: Ingvar Hjálmarsson Umf. Baldri
Helga Fjóla Guðnadóttir Hestam.f. Geysi
Bergur Guðmundsson Umf. Selfoss
Stjórn HSK vill koma á framfæri þakklæti til þeirra sem komu að und-
irbúningi þinghaldsins og er Sveitarfélaginu Árborg, Ungmennafélagi
Selfoss, Fjölbrautarskóla Suðurlands, KB- banka og Krónunni sérstaklega
þakkað samstarfið vegna þinghaldsins.
Vel heppnað ársþing hjá UMSS
Á dögunum var haldið vel heppnað ársþing UMSS íTjarn-
arbæ Sauðárkróki. Hestamannafélagið Léttfeti var gestgjafi
að þessu sinni. Fjölmörg málefni voru á dagskrá og helst má
telja að þing veitti stjórn umboð til að vinna að útdeilingu
fjármuna frá sveitarfélaginu. Er það mikil breyting frá því sem
áður var þegar félags- og tómstundanefnd sveitarfélagsins sá alfarið um
þann málaflokk.
Margir góðir gestir voru á þinginu; Sigurjón Þórðarson þingmaður;
Birgir Gunnlaugsson UMFI, Helga Guðjónsdóttur UMFI, Omar Bragi Stef-
ánsson UMFI, Hringur Hreinsson, UMFI.Viðar Sigurjónsson ISI og Gunnar
Bragason ISI.
Stjórn UMSS var endurkjörin á þinginu og skipa hana því Haraldur
Þór Jóhannsson, Steinunn Hjartardóttir Guðmundur Þór Guðmundsson,
Margrét Stefánsdóttir og Hjalti Þórðarson.Varamenn í stjórn eru þau
Arnar Halldórsson, Kristín Jóhannesdóttir og Sigurbjörg Olafsdóttir.
Á ársþinginu var Bjarni Jónsson sæmdur starfsmerki UMFI en hann
var formaður Landsmótsnefndar á Sauðárkróki í fyrrasumar.
Stjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags
endurkjörin
Aðalfundur Keflavikur i'þrótta- og ungmennafélags var
haldinn í í febrúan Stjórn félagsins var endurkjörin.
Eftirtöldum iþróttamönnum voru veittar viðurkennn-
ingar: Erlingur Hannesson knattspyrnudeild, Hrannar
Hólm körfuknatteiksdeild, Lilja Karlsdóttir badminton-
deild og Rúnar Georgsson körfuknattleiksdeild voru sæmd bronsmerki
félgsins fyrir fimm ára stjórnarsetu. RúnarV. Arnarsson sæmdur silfur-
merki félagsins fyrir tíu ára stjórnarsetu. Sigurbjörn Gunnarsson hlaut
starfsbikar KeflaviTur 2004
Grindvíkingar heiðraðir á ársþingi KSÍ
Grindvi1<ingar voru heiðraðir sérstaklega á ársþingi KSI
sem fram fór í febrúar fýrir stórkostlegt uppbyggingarstarf
í þágu kvennaknattspyrnunnar Það var Eggert Magnússon
formaður KSI sem afhenti fulltrúum Grindavíkur þessa
viðurkenningu.
Grindvískar stúlkur eru í öllum flokkum á meðal 5 bestu liða lands-
ins, sem hlýtur að teljast frábær árangur miðað við stærð bæjarfélagsins.
Foreldrar og iðkendur innilega til hamingju með þessa miklu viðurkenn-
ingu og von um áframhaldandi kraft og samstöðu í starf nu.
m
SKINFAXI - geíiii út samíleytt síðan 1909