Skinfaxi - 01.02.2005, Qupperneq 26
Skagamaðurinn Gauti Jóhannesson sýnir miklar framfarir:
Framgonga Gauta Jóhanessonar, hlaupara úr
UMSB, hefur vakið verðskuldaða athygli síðustu
misseri. Hann var farinn að láta á sér kræla svo
eftir var tekið í fyrra en í vetur hefur máttur hans
enn betur komið Ijós. Gauti, sem stundar nám í
læknisfræði við háskólann í Umea í Svíþjóð, hefur
verið að bæta sig jafnt og þétt og staðið sig sér-
lega vel á mótum sem hann hefur tekið þátt í
ytra. Hann gerði sér lítið fyrir og setti Islandsmet í
1500 metra hlaupi innanhúss á móti í Eskilstuna
í Svfþjóð sem tryggði honum jafnframt þátttöku-
rétt á Evrópumótinu í Madríd sem lauk nú fyrir
skömmu. Gauti lenti f 11. sæti í sfnum riðli en
þátttaka hans á Evrópmótinu færði honum mikla
reynslu sem á eftir að nýtast honum í komandi
baráttu á hlaupabrautinni.
Gauti er ekki mikið að gera
úr sínum afrekum en segir þó að
hann sé stöðugt að bæta sig enda
hafi hann æft mjög vel við ein-
hverja bestu aðstöðu sem finnst
á Norðurlöndunum. Hann hefði
ennfremur sloppið við meiðsli og
ekkert staðið í vegi að hann bætti
sig á hlaupabrautinni.
Gauti lauk stúdentsprófl frá
Fjölbrautarskólanum á Akranesi
í desember 1999. Strax í janúar
2000 hélt hann utan til Umeá
til náms í læknisfræði og hefur
Gauti, sem leggur stund á læknisfræði í Svíþjóð, er mjög bjartsýnn á
framhaldið.
lokið rúmlega fjórum árum af
grunnnáminu. Að þvíloknu hyggur
Gauti á framhaldsnám en hann
hefur ekki enn tekið ákvörðun um
í hvaða sérnám hann fer
„Það er alveg Ijóst að ég mun
dvelja hér ytra einhver ár til við-
bótar: Ég kem þó oft heim en ég
er mikill Islendingur í mén" sagði
Gauti hress í bragði í samtali við
Skinfaxa.
Gauti er upphaflega sundmað-
ur og æfði með IA um tíu ára
skeið. Hann fór á sínum tíma utan
til Bandaríkjanna sem skiptinemi
en á slóðum hans þar var engin
sundlaug svo hann tók upp á því
að fara að hlaupa í staðinn. Hann
hljóp með skólaliðinu og þegar
hann kom heim afturtil Islands fór
hann að hlaupa undir merkjum
UMSB sem hann gerir enn í dag.
Átta íslenskir frjálsíþróttamenn, sex konur
og tveir karlar, komust á lista tfu fremstu
manna f níu greinum á afrekaskrá ársins
2004 f frjálsum fþróttum á Norðurlöndum.
Þórey Edda Elísdóttir skaraði
fram úr í stangarstökki, en hún
stökk 4,60 metra á árinu og setti
Norðurlandamet.
Vala Flosadóttir er í 5. sæti á
listanum með 4,15 metra. Sunna
Gestsdóttir er í 6. sæti í 100
metra hlaupi og 5, sæti í 200
metra hlaupi.
Silja Úlfarsdóttir er í 3. sæti í
400 metra grindahlaupi, í 5. sæti
í 400 metra hlaupi og í 10. sæti í
200 metra hlaupi. Ásdís Hjálms-
dóttir ogVigdís Guðjónsdóttir eru
í 7. og 8. sæti í spjótkasti. Einar Karl
Hjartarson er í 5. sæti í hástökki
og Jón Arnar Magnússon í 5. sæti
í langstökki.