Skinfaxi - 01.02.2005, Side 27
spennandi og fróðlegt að fylgjast
með framgangí Gauta á hlaupa-
brautinni í sumar.
- Hvað fmnst Gauta mest
áhugavert við hlaupin?
„Það er frjálsleikinn og þú get-
ur stundað þessa íþrótt hvar sem
er og hvenær sem er Það er alltaf
hægt að fara út að hlaupa og mað-
ur hefur í raun engan afsökun að
hlaupa ekki,“ sagði Gauti og hló.
Hann var spurður út í næsta
tímabil og sumarið og sagðist
hann hlakka mikið til.Vonandi að
maður haldi sér heilum áfram og
þá sé aldrei að vita hvað gerist
eins og hann komst að orði.
- Ertu kannski búinn að setja
þér einhver markmið?
„Jú, það er alltaf markmið að
verða betri og það verða nokkur
mót sem maður fær að spreyta
sig á. Ég stefni á Smáþjóðaleika
og Evrópubikarinn og einnig kem
ég til með að keppa á mótum í
Svíþjóð."
- Hvernig eru aðstæðurnar sem
þú býrð við í Svíþjóð?
„Þær eru alveg glymrandi
góðar Hérna er innanhússhöll
með 200 metra braut og síðan
er hér stærsta íþróttamiðstöð á
Norðurlöndum. Þessar aðstæður
hjálpa mikið til að gera mig að
enn betri hlaupara og svo hef ég
einnig gott fólktil að æfa með.
Maður hefur sem sagt góðar að-
stæður og góða hlaupafélaga svo
það er varla hægt að fara fram á
meira." sagði Gauti Jóhannesson.
VELKOMIN í
Tónninn fyrir hlaupunum var gefinn í Bandaríkjun-
um og sundíþróttinni var smám saman ýtt til hliðar
Gauti er Skagamaður og á ættir að rekja upp í
Skorradal í móðurætt.
- Hvað veldur þessum stakkaskiptum hjá þér?
Þú ert mun betrí hlauparí í dag en þú hefur nokkurn
tímann veríð.
„Já, það er alveg rétt og ég er betri en nokkru
sinni. I fyrsta lagi var ég ekki í þessu í byrjun af
einhverri alvöru, var viðloðandi þetta í nokkurár
en það er síðan í kringum 2001 sem ég tók mér
tak og fór að æfa fyrir alvöru. Ég komst einnig á
þessum tíma í landsliðshópinn án þess að hafa
unnið mikið fyrir því að mér fannst. A þessum
tímapunkti var ekki aftur snúið og mér gekk enn
betur sumarið á eftin en í mínu besta formi var ég
líklega í janúar í fyrra. I kjölfarið meiddist ég og var
alveg frá æfingum og keppni fram á vorið. Sum-
arið 2004 var síðan upp og niður því mig vantaði
alveg grunninn vegna meiðslanna. Ég náði mér
ágætum um síðin æfði vel og notaði haustið vel.
Fyrir mér er þessi árangur á síðustu vikum ekki að
koma mér á óvart," sagði Gauti.
- Þú náðír lágmarki! 1500 metra hlaupi fyrir
EM innanhúss í Madríd. Kom sá árangur þér á
óvart?
„Ég skal viðurkenna að ég var búinn að gæla
við hugmyndina og fannst ekki óraunhæft að mér
tækist að hlaupa undir lágmarkinu. Ég vissi að það
væri alltaf möguleiki og auðvitað var þetta stór
áfangi á mínum ferli," sagði Gauti.
Gauti er 26 ára gamall og á því mörg góð ár
eftin Hann segir að margir hlauparar séu' að toppa
í kringum þrítugt og jafnvel eldri. Það verður
r r
r
IÞR0TTAMIÐST0ÐINAI
B0RGARNESI
Sérstök tilboö fyrir hópa sem
vilja koma í æfingabúðir