Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 7
RptptjóraÁpjaU - Jók KrtiljUi SujiwÓswK Áhrif uppbyggingar íþróttamannvirkja að komaíljós Sú uppbygging á íþróttamannvirkjum, sem átt hefur sér stað á síðastliðnum árum, tengd Unglingalandsmótunum og Landsmót- um, er greinilega farin að bera ríkulegan ávöxt. Það var jú tilgang- urinn í upphafi að þessi uppbygging myndi skila sér með tíð og tíma og efla fþróttastarfið í þeim byggðum þar sem þessi mót eru haldin. Þetta hefur gengið eftir og iðkendum hefur fjölgað til muna. Góður árangur keppenda frá þeim stöðum, þar sem Ungl- ingalandsmót hafa verið haldin, hefur berlega komið í Ijós á mót- um sem haldin hafa verið á vegum Frjálsíþróttasambandsins í nýju Höllinni í Laugardalnum í vetur. [þróttafólkið frá þessum stöðum hefur sýnt þar umtalsverðar framfarir. Það er ánægjulegt fyrir framkvæmdaaðila þessara móta að sjá þetta gerast. Árangur- inn á mótunum er glæsilegur og á ekki síst ríkisvaldið þakkir skilið sem komið hefur myndarlega að uppbyggingunni. Fjármunum ríkisins er vel varið með þessum hætti og þeir skila sér alla leið. Byggðirnar kringum keppnisstaðina standa sterkari eftirog börn, unglingar og fullorðið fólk geta æft og stundað íþróttir sér heilsu- bótar við aðstæður eins og þær gerast bestar á hverjum tíma. Unglingalandsmótin eru eitt sterkasta innlegg í íþróttastarf hér á landi á síðari tímum og þeim vex fiskur um hrygg með hverju ári. Svonefndir sparkvellir, sem Knattspyrnusamband (slands hef- ur staðið fyrir uppbyggingu á með sveitarfélögum vítt og breitt um landið, hafa ennfremur verið að slá í gegn. Nú eiga börn og unglingar þess kost að sparka bolta og leika sér við góðar aðstæð- ur og skiptir þá engu þó að um hávetur sé. Þetta er mikil breyting frá því sem áður var. Þessu verkefni ber einnig að fagna og það á ábyggilega eftir að skila sér enn frekar þegar fram í sækir. Þau tvö dæmi, sem nefnt hafa verið hér að framan, sýna, svo ekki verður um villst, að fjármunum til þessara mála er vel varið. Þessi uppbygging hlýtur að hvetja börn og unglinga til að hreyfa sig, efla þau og styrkja sem ekki virðist af veita eins og rannsóknir á hreyfimynstri ungs fólks hafa sýntfram á að undanförnu. Oslípaður unga olksins ■ ■ Umf.Revmr ■ ■ - Umf.Reynir demantur ogumfM.m _ lOOára— Landsmót á Ævintýri í Selfossi 2012 su5ur.Ameriku Risalandsmót í Kópavogi 5. - 8^Bf Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður: Björn B. Jónsson, formaður UMFl Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Ómar Bragi Stefánsson o.fl. Umbrot/hönnun: Örn Guðnason Prentun: Prentmet Prófarkalestur: Helgi Magnússon Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender Ritnefnd: Anna R. Möller, Einar Haraldsson, Birgir Gunnlaugsson og Ester Jónsdóttir Skrifstofa UMFl/Skinfaxa: Þjónustumiðstöð UMFl, Laugavegi 170-172,105 Reykjavík, sími: 568-2929, netfang: umfi@umfi.is heimasíða: www.umfi.is Starfsmenn UMFÍ: Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri Valdimar Gunnarsson, landsfulltrúi Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi, með aðsetur á Sauðárkróki Torfi Jóhannsson, svæðisfulltrúi með aðsetur á Isafirði Guðrún Snorradóttir, verkefnisstjóri forvarna Esther Jónsdóttir, ritari Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri Þóra Kristinsdóttir, bókhald Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa og kynningarfulltrúi Jón M. (varson, söguritari Alda Pálsdóttir, verkefnisstjóri vegna ritunará sögu UMFÍ Stjórn UMFl: Björn B. Jónsson, formaður Helga Guðjónsdóttir, varaformaður Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri Ásdís Helga Bjarnadóttir, ritari Anna R. Möller Haraldur Þór Jóhannsson Hringur Hreinsson JóhannTryggvason Einar Jón Geirsson EinarHaraldsson Eyrún H. Hlynsdóttir Forsíðumynd: Myndin er af Helgu Margréti Þorsteinsdóttur, 15 ára frjálslþrótta- konu úr USVH. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands ~J

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.