Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 16
83. ársþwuj UMSK í SmÁramAMt Kóptwvjí 15. j-ebriiar:
Mörg spennandi verkefni
fram undan hjá UMSK
( WH
-< pr
83. ársþing UMSK var haldið í
Smáranum í Kópavogi 15.febrúar
og sátu 61 þingfulltrúar þingið. Að
sögn Birgis Ara Hilmarssonar, fram-
kvæmdastjóra UMSK, var þingið
vinnusamt. I upphafi þingsins var
samþykkt að sleppa nefndum og
bera þess í stað tillögur beint upp
og vinna í eins konar málsstofu.
Þingstörf gengu vel fyrir sig og skil-
aði starfsemin svolitlum hagnaði á
árinu 2006.
Mörg spennandi verkefni eru
fram undan og ber þar hæst Risa-
landsmótið í Kópavogi í sumar.
Engar breytingar urðu á stjórn
UMSK. Þess má geta að Valdimar
Leó Friðriksson, formaður UMSK,
gat ekki setið þingið sökum veik-
inda.
Björn B. Jónsson, formaður UMFl,
sæmdi Bjarna Gauta Þórmunds-
son starfsmerki UMFi'.
Aðrir sem heiðraðir voru fyrir störf
sín voru eftirtaldir:
Félagsmálaskjöldur UMSK
Snorri Olsen, Stjörnunni
Snorri hefur verið formaður Stjörnunnar
í sjö ár en áður hafði hann verið varafor-
maður frá árinu 1993. Auk starfa sinna
fyrir Stjörnuna hefur Snorri á þessum
árum verið virkur fulltrúi á þingum fyrir
UMSK og tekið að sér fjölda trúnaðar-
starfa fyrir íþróttahreyfinguna.
Dansbikar UMSK
Freyr Hafsteinsson og
Denise Margrét Yaghi, Hvönn
Haukur og Denise eru eitt allra sterkasta
par í dansinum hér á landi. Á árinu urðu
þau íslandsmeistarar í sígildum og
suður-amerískum dönsum í sínum ald-
ursflokki. Einnig urðu þau íslandsmeist-
arar í sígildum dönsum 19 ára og eldri.
Þau tóku þátt í opnu móti í Kaupmanna-
höfn á árinu og náðu þar góðum
árangri.
Fimleikabikar UMSK
Sif Pálsdóttir, Gróttu
Sif er (slandsmeistari í fjölþraut, á tvíslá
og í gólfæfingum. Hún varð Norður-
landameistari í fjölþraut og á tvíslá og
varð þar með fyrst íslenskra kvenna til
að verða Norðurlandameistari í keppni
fullorðinna. Sif vann einnig til tveggja
silfurverðlauna á NM.
Frjálsíþróttabikar UMSK
Kári Steinn Karlsson,
Breiðabliki
Kári er einn allra sterkasti frjálsíþrótta-
maður landsins í dag. Hann setti fjölda
íslandsmeta á árinu og er einn af burð-
arásum frjálsíþróttaliðs Breiðabliks.
Sundbikar UMSK,
Arnar Felix Einarsson,
Breiðabliki
Arnar átti stigahæsta sund einstaklings
innan UMSK á árinu, 697 stig fyrir 50 m
bringusund. Þetta sund synti hann á ÍM
í nóvember og hafnaði þar í 3. sæti í
úrslitum.
Skíðabikar UMSK
Sindri Már Pálsson,
Breiðabliki
Sindri keppti í svigi og bruni á Ólympíu-
leikunum ÍTórínó á síðasta ári. Hann var
fyrstur íslenskra karla til að keppa í bruni
í 46 ár. Honum gekk vel í brunkeppninni
en krækti í sviginu og lauk þar með ekki
keppni í svigi. Sindri Már er einnig sönn
fyrirmynd og ávallt hjálplegur í starfi
skíðadeildarinnar.
UMFÍ-bikarinn
P- 7 fimleikahópur Gerplu
Hópurinn vann til silfurverðlauna á
Evrópumeistaramóti í hópfimleikum
kvenna íTékklandi í nóvember á þessu
ári ásamt því að verða bæði íslands- og
bikarmeistari á árinu.
Afreksbikar UMSK
Arnar Sigurðsson,
Tennisfélagi Kópavogs
Arnarvarð (slandsmeistari 10. árið í röð í
sumar í einliða- og tvíliðaleik. Arnar var
meðal allra bestu skólatennisleikara í
Bandaríkjunum á árinu en hann stund-
aði þar nám í líffræði. Hann vann sitt
fyrsta atvinnumannamót í tvíliðaleik og
hefur hækkað sig um 800 sæti á heims-
lista á fáum mánuðum.
Gullmerki:
Margrét Bjarnadóttir, Glóð
Margrét hefur í gegnum árin verið afar
virk í störfum innan UMSK. Hún var einn
af frumkvöðlum íþróttafélagsins Gerplu
og var formaður Fimleikasambandsins
um árabil. í dag er hún enn við störf fyrir
sambandið en hún hefur tekið að sér að
sjá um íþróttir eldri ungmennafélaga á
Landsmótinu í sumar. Auk þess er hún
á fullu í starfi íþróttafélagsins Glóðar í
Kópavogi.
Silfurmerki:
Einar Vilhjálmsson,
Breiðabliki
Einar hefur um langt árabil unnið mikið
bæði fyrir Breiðablik og sambandið.
Hann hefur verið dugmikill félagi Skíða-
deildar ásamt því að vera einn af aðal-
tjöldurum UMSK.
Konráð Konráðsson,
Breiðabliki
Konráð er öllum Blikum kunnur, hann
hefur starfað með knattspyrnudeild
um árabil og hefur ávallt verið til taks á
hliðarlínunni hjá meistaraflokki.
Starfsmerki:
Merki þetta er veitt þeim einstaklingum
sem unnið hafa af trúnaði mikil og góð
störf fyrir sambandið eða aðildarfélögin.
Merkið er veitt nokkrum einstaklingum í
þetta skipti fyrir góð störf, margir koma
til greina við veitingu merkisins en því
miður hljóta það færri en eiga skilið.
Bóel Kristjánsdóttir, Aftureldingu
Hallur Birgisson, Aftureldingu
Þorsteinn Sigvaldason, Aftureldingu
Arnþór Sigurðsson, Breiðabliki
Böðvar Örn Sigurjónsson, Breiðabliki
Atli Þórsson, Breiðabliki
Indriði Jónsson, Breiðabliki
Magnús Gíslason, HK
t
*
V
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands