Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 33
PtjáJMfráUiwaJ^vUi^ í kjöif'ar
UK^UM^cd&AiAtmMs í Vik í MýriaJ:
Áhugasamir krakkar
sem eru tilbúnir að leggja sig fram
Frjálsíþróttavakning hefur orðið
á keppnissvæði USVS eftir að
Unglingalandsmótið árið 2005
var haldið ÍVÍk í Mýrdal. í kjölfar
Unglingalandsmótsins hefur
svæðið fengið glæsilegan íþrótta-
völl með toppfrjálsíþróttaaðstöðu. Þetta vakti
mikinn áhuga hjá börnum og unglingum á
svæðinu og eru nú um 35-40 krakkar á aldrin-
um 6-16 ára að æfa frjálsar íþróttir hjá íþrótta-
félögunum Drangi og Dyrhólaey.
Farin að skila árangri
Kristín Marti, þjálfari félaganna, er hæstánægð
með þessa þróun og segir marga efnilega
íþróttamenn vera á svæðinu. Þetta eru hæfi-
leikaríkir og áhugasamir krakkar sem eru tilbún-
ir að leggja sig alla fram, segir Kristín Marti og
það má sjá á úrslitum frá stórmóti (R sem haldið
var í janúar. Þar var fremstur I flokki Arnar Snær
Ágústsson sem vann langstökk pilta 13-14 ára
og var í 3. sæti í 60 m hlaupi. Friðbert Elí Gísla-
son vann silfurverðlaun í hástökki stráka 11-12
ára og Ægir Máni Flauksson vann silfurverðlaun
í 800 m hlaupi í sama flokki.
Erna Guðrún Ólafsdóttir vann silfurverðlaun
i 600 m hlaupi hnáta 9-10 ára og Ólöf Sigurlína
Einarsdóttir vann bronsverðlaun í langstökki
pæja 8 ára og yngri. Þetta er frábær árangur og
þess má geta að markvissarfrjálsíþróttaæfingar
byrjuðu ekki hjá USVS fyrr en þessi glæsilega
aðstaða kom upp sumarið 2005. Einnig er það
eftirtektarvert að um helmingurgrunnskóla-
barnanna á svæðinu æfir núna frjálsar íþróttir.
Aðstaðan skiptir öllu
Það er greinilegt að aðstaðan skiptir öllu máli
því að ekki skortir virknina hjá börnunum. Ekki
er það að ástæðulausu sem bæjarfélögin úti
á landi sækja í það að fá að halda Unglinga-
landsmót, því að ef afraksturinn er sem þessi
víða um land þá á okkur ekki eftir að skorta
ungt og efnilegt íþróttafólk í framtíðinni.
Svipmyndir frá æfingu hjá krökkunum í Umf. Drangi og Umf. Dyrhólaey sem æfa í Vik.
Eftir Önnu Guðrúnu Steindórsdóttur 22 ára nema á þriðja ári í
íþróttafræðum við Kennaraháskóla Islands á Laugarvatni. Flún
var í vettvangnámi hjá UMF[ í þrjár vikur.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 33