Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 41
Fyrvti (nMMmœtáhir&tvtiU
Umf. Seíjms íjwvitihimt
Fimleikadeild Ung-
mennafélags Selfoss
sendi tvö lið til þátt-
töku á Bikarmóti
Fimleikasambandsins
18. febrúar sl. Selfoss
1 urðu bikarmeistarar
fyrir æfingar sínar á gólfi
með einkunnina 7,95 og í öðru sæti á dýnu og
trampolíni. Selfoss 2 urðu í 2. sæti fyrir gólfæf-
ingar, með einkunnina 7,65.
Þetta er glæsilegur árangur hjá báðum lið-
um og jafnframt fyrsti bikarmeistaratitill Selfyss-
inga í fimleikum.
Á þessu móti tryggði Selfoss 1 sér þáttöku á
öllum áhöldum á (slandsmótinu í hópfimleikum
(landsreglum) en fyrir eru þær jafnframt líka
þúnar að öðlast þátttökurétt á (slandsmótinu í
Teamgym. Lið Selfoss 2 er búið að tryggja sér
þátttöku á gólfi og trampólíni á Islandsmótinu
í landsreglum sem og SelfossT3 og SelfossT8
fyrir æfingar á gólfi.
Ungmennafélagið Reynir
á Árskógsströnd 100 ára
Ungmennafélagið Reynir á Árskógsströnd
hélt upp á mikil tímamót í sögu félagsins 3. mars
sl„ en þá fagnaði félagið 100 ára afmæli sínu.
Fjölmenni var við afmælishátíðina þar sem
gestir nutu góðra kaffiveitinga. Ræður voru
fluttar við þetta tækifæri en margt góðra gesta
heimsótti félagið á þessum merku tímamótum.
Félaginu bárustmargargjafirog mikil hátíð-
arstemning ríkti. Marinó Þorsteinsson, formaður
Reynis, ávarpaði samkomuna og þakkaði hlý
orð.
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMF(,
flutti ræðu við þetta tækifæri og flutti kveðjurfrá
UMFl. Meðal annarra gesta á afmælishófinu voru
Fialldór B. Jónsson, varaformaður KSÍ, og Ólafur
Rafnsson, forseti (SÍ.
Knattspyrnusambandið sæmdi fjóra félaga
Reynis silfurmerki KSÍ, þá Gylfa Baldvinsson,
Garðar Níelsson, Svanlaug Þorsteinsson og
Kristján Sigurðsson. Þá færði Halldór B. Jónsson
félaginu sjálfu mynd að gjöf frá sambandinu.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags (slands 41