Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 5
Bjöm B. JáHAWK, jvrwuíðuy UMFÍ: Gefðu barninu þínu tækifæri til að vera með Um miðjan nóvember síðastliðinn kom saman stór hópur ungs fólks í Smáralind í Kópavogi og ýtti af stað nýju forvarnaverkefni sem Ungmennafélag (slands stendur að í samstarfi við Lýðheilsustöð. Þetta verkefni er sett af stað sem nokkurs konarframhald affor- varnadeginum 28. september s.l. sem forseti (slands stóð að ásamt nokkrum félagasamtökum og fyrir- tækjum. Nýja verkefnið mun standa yfir í nokkur ár og er því ætlað að höfða til ungs fólks í grunnskólum og framhaldsskólum. Nú þegar hafa 12 klúbbar verið stofnaðir og fleiri eru í bígerð. Eitt verkefnið enn, hugsa margir. Jú, það er rétt, en það er ekki sama hvernig staðið er að hlutunum og heldur ekki sama hvernig verkefni eru hugsuð. Forvarnaverkefnið„Flott án fíknar" er sett af stað með nýrri nálgun og nýjum markmiðum sem lítt hafa verið reynd hjá okkur. Unnið er á jákvæðan hátt með ungu fólki og sjónum beint að þeim sem eru nú þegar til fyrirmyndar og eru án tóbaks, víns eða annarra enn skæðari og hættulegri fíkniefna. Krakkarnir stofna klúbba og vinna á þann hátt saman að sínum markmiðum. Enginn er þvingaður til að vera með en þó eru það aðeins þeir sem vilja undirrita markmið sitt um að vera án vímuefna, sem geta orðið þátttakendur, eins og sjá má á heimasíðu verkefnisins www.flottanfiknar.is. Ég óska verkefnisstjóra og hugmyndasmið að verkefninu, Guðrúnu Snorradóttur, til hamingju með að koma þessari nýju nálgun í forvarna- málum af stað og um leið skora ég á alla vel hugsandi uppalendur að skoða þessa nýju leið til að koma í veg fyrir að börn og ungmenni lendi á glapstigum eiturefna. Gefðu barninu þínu tækifæri til að vera með í„Flott án fíknar." Það gæti borgað sig. Hvatningarverðlaun UMFÍ hvetja okkur enn frekar til dáða „Það var uppörvandi fyrir félagið að fá hvatn- ingarverðlaun UMFl. Þetta er mikil viðurkenn- ing og hvetur okkur enn frekar til dáða. Þeir fá þessa viðurkenningu sem eiga hana skilið, aðrir ekki. Það eru margir að vinna gott starf innan ungmennafélagshreyfingarinnar og eru eflaust vel að því komnir að fá hvatning- arverðlaunin. Það er unnið kraftmikið og metnaðarfullt starf innan félagsins og deildir eru Fyrirmyndardeildir ÍSÍ. Það sýnir stöðug- leika í félaginu að ekki hafa orðið miklar breytingar í aðalstjórn," sagði Einar Haralds- son, formaður Keflavíkur íþrótta- og ung- mennafélags, í samtali við Skinfaxa. Einar sagði að á næstunni stæði upp úr bygging á nýju félagsheimili og að ennfremur stæðu til endurbætur á knattspyrnusvæðinu Einar Haraldsson formaður Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags tekur við Hvatningarverð- launum UMFl. við Hringbraut.„Við erum að skoða um þessar mundir, að visu er ekki komin stjórnarsam- þykkt fyrir því, að félagið fái aðgang að sín- um eigin lögfræðingi. Hann stæði öllum deildum til boða og ef þetta gengi eftir þá yrði deildum skylt að fara með öll sín mál þar í gegn. Þessi áform miða að betri og markviss- ari stjórnun. Þá stendur fyrir dyrum að upp- færa lög félagsins og færa þau í nútímalegra form." Einar var inntur eftir því hvort Keflvíkingar ætluðu ekki að fjölmenna á Landsmótið í Kópavogi í sumar.„Að sjálfsögðu stendur það til. Við höfum í huga að senda öflugt lið til þátttöku en það verður mjög spennandi að fara á þetta mót í Kópavogi á 100 ára afmæli UMFl," sagði Einar að lokum. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 5

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.