Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 17
UAAFÍ sér cwt jraMnJanzmA revkejmmt Ewópa, tuujci jóik^Uvs:
Gefur ungu
fólki mikia
möguleika
Frá síðustu áramótum tók UMFl að sér
að sjá um framkvæmd með verkefninu
Evrópa unga fólksins, EUF, en verkefnið
er á ábyrgð menntamálaráðuneytisins.
Evrópa unga fólksins er islenska heitið á
Youth in Action ungmennaáætlun
Evrópusambandsins, sem tók gildi
1.janúar2007.
Evrópa unga fólksins hefur það að markmiði
sínu að styrkja fjölbreytt verkefni. EUF leggur
áherslu á að styrkja þau ungmenni sem á ein-
hvern hátt búa við skerta möguleika. EUF gefur
ungu fólki á aldrinum 13 til 30 ára og samtök-
um, sem vinna fyrir ungt fólk, möguleika á þátt-
töku í ýmsum samevrópskum verkefnum. Aldur
er þó mismunandi á milli verkefna.
EUF stuðlar að því að draga úr mismunun
og stuðlar að jafnrétti á öllum stigum og í öllum
hópum samfélagsins, eykur skilning á ólíkum
aðstæðum og mismun milli landa og stuðlar að
viðurkenningu óformlegrar menntunar. EUF
styrkir frumkvæðisvilja ungs fólks og þróar
skilning þess á því að„tilheyra Evrópu (samband-
inu)"og hvetur ungt fólk til þátttöku í lýðræðis-
legu starfi svo að eitthvað sé nefnt.
Einnig má nefna ungmennaskipti þarsem
hópar frá tveimur eða fleiri löndum hittast og
vinna saman aðfyrirfram ákveðnum verkefnum
og læra um samfélög hvers annars.
Frumkvöðlaverkefni er annað verkefni sem
getur verið unnið bæði innanlands og milli
landa. Svonefnd lýðræðisverkefni eru unnin
bæði innanlands og milli landa og loks sjálf-
boðaþjónusta þar sem sjálfboðaliðar vinna að
ýmsum verkefnum erlendis sem ekki eru rekin í
hagnaðarskyni.
Flægt er að sækja um fimm sinnum ári, með
eftirtöldum dagsetningum: 1. febrúar fyrir
verkefni sem hefjast 1. maí til 30. september.
1.apríl fyrir verkefni sem hefjast l.júlítil 30.
nóvember. 1. júní fyrir verkefni sem hefjast
1. september til 31. janúar. 1. september fyrir
verkefni sem hefjast 1. desember til 30. apríl og
1. nóvemberfyrir verkefni sem hefjast l.febrúar
til 30. júní.
Evrópa unga fólksins styrkir ekki: Skemmti-
ferðir, fundi á vegum félagasamtaka, bekkja-
heimsóknir, skólatengd verkefni, sýningar- og
Anna R. Möller, starfsmaður, og ÓlafurÁrnason forstöðumaður verkefnisins Evrópa unga fólksins.
keppnisferðir, hátíðahöld og verkefni sem eru
unnin í hagnaðarskyni.
Forstöðumaður verkefnisins er Ólafur Árna-
son og starfsmaður er Anna R. Möller. Nánari
upplýsingar er hægt að fá á landsskrifstofunni
sem ertil húsa á Laugavegi 170,105 Reykjavík,
sími 551-9300, og netfang er euf@euf.is.
Fleimasíða er www.euf.is sem opnar innan
skamms.
Kjörið tækifæri til að kynnast
menninguannarralanda
„Þetta gefur ungu fólki mikla möguleika. Þá er
þetta ekki síður sniðugt fyrirýmsa hópa sem eru
að velta því fyrir sér að fara með atriði eða þema
til útlanda. Með þessu gefst tækifæri til að hitta
aðra hópa og fá þá síðan til baka i heimsókn til
íslands. Svo er einnig áhugaverður kostur að fara
til sjálfboðaliðastarfa en það eru verkefni sem
standa yfir í 2 til 12 mánuði. Sjálfboðaliði gefur
tíma sinn og vinnu en fær fæði og uppihald og
ferðir greiddar;"sagði Ólafur Árnason í samtali
við Skinfaxa. Ólafur sagði það sniðugan kost
fyrir umsækjendur að nota sumarið í ýmis verk-
efni sem í boði væru. Flann sagði að margir, sem
tækju sér frí í eina önn í námi, færu erlendis í
eitthvað verkefni.
********
4- *
„Það er um að gera fyrir áhugasama
að nýta sér það fjármagn sem Evrópu-
sambandið leggur íþetta verkefni. Þarna
gefst kjörið tækifæri til að kynnast menn-
ingu annarra landa sem alla jafna gerist
ekki i venjulegri helgar- eða sólarlanda-
ferð,“ sagði Ólafur að lokum.
Eirrópa un$a fólksim
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 17