Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 25

Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 25
ÞUitj UnýiMseMAiaféíaxjs Ahureyrar: Lagabreytingar sam- þykktar á þingi UFA Gísli Pálsson. Jón „Lambi" Haraldsson. Þing Ungmennafélags Akureyrar, UFA, var haldið í íþrótta- höllinni á Akureyri 28. febrúar sl. Þingið tókst vel og þing- störf gengu hratt og greiðlega undir traustri stjórn Kristjáns Þórs Júlíussonar fundarstjóra. Gísli Pálsson lét af formennsku og verður nýr formaður valinn úr nýkjörinni stjórn á næstunni. Nokkrar lagabreytingar voru samþykktar á þinginu og svo var skemmtileg kynning á nýstofnaðri Glímudeild innan UFA. Það var Jón„Lamþi" Flaraldsson sem átti veg og vanda af stofnun deildarinnar. Jónsagði að undirbúningurinn hefði hafist fyrir ári en þá hafi verið liðin 100 ár frá fyrstu Grettisglím- unni á íslandi og nú er þetta orðið að veruleika. Æfingar glímudeildar- innar eru á þriðjudögum kl. 18-19 í íþróttahúsinu við Laugagötu og á fimmtudögum kl. 17-18 í Oddeyrarskóla. Krakkar í 4.-10. bekk eru velkomnir á æfingarnar. Birgir Ari Hilmarsson, framkvæmdastjóri UMSK, var með kynningu á Landsmótinu í Kópavogi í sumar og eins kynnti Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFf, Unglinga- landsmótið á Höfn um verslunarmannahelgina. Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMF(, ávarpaði fundinn og fór m.a. yfir starfsemi hreyfingarinnar. Kynntar voru tillögurfrá Akureyrarbæ um uppbyggingu íþrótta- mannvirkja, m.a. vegna Landsmóts UMFl sem verður haldið á Akureyri 2009. Kaffiveit- ingar voru að sjálfsögðu á borð bornar og svignuðu borðin undan glæsilegum tertum og góðgæti. Frá verðlaunaafhendingu á þingi UFA. rA íbróttamóttgqlhverskvnslmannamot HHflÞJONUSTfl Borgarflöt 1 5 :: 550 Sauðárkrókur Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778 Netfang: okgam@simnet.is SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands 25

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.