Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.02.2007, Blaðsíða 15
 Laugtuvt: Aðsóknin hefur aukist jafnt og þétt Vikuna 5.-9. mars dvöldu í Ungmenna- og tómstundabúðunum Heppuskóli á Höfn, grunnskólarnir á Eyrabakka og Stokkseyri, og grunnskólinn á Hofsósi. Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum er eitt af verkefnum sem Ungmenna- félag íslands stendur fyrir. Búðirnar hófu form- lega starfsemi sína í janúar 2005 með þáttöku 9. bekkinga úr Búðardal,Tjarnarlundi í Saurbæ, Varmalandsskóla og grunnskólanum í Borgar- nesi. Síðan hafa fjölmargir skólar heimsótt búð- irnar og er óhætt að segja að rekstur þeirra sé kominn í fastar skorður. Að Laugum er aðstaða öll hin glæsilegasta fyrir verkefni sem Ung- menna- og tómstundabúðirnar eru; heimavist sem nú rúmar um 70 nemendur, fullbúið mötu- neyti, íþróttahús, glæsileg 25 m sundlaug með heitum potti, kennslustofur og rými fyrir afþrey- ingu og klúbbastarf, auk þess sem Byggðasafn Dalamanna er á staðnum. Innangengt er um allt húsnæðið á Laugum þannig að enginn þarf að fara út nema til útivistar og annarra sérstakra viðburða utandyra. Sex starfsmenn vinna við búðirnar en for- stöðumaður er Anna MargrétTómasdóttir. Hún segir að síðasti hópurinn sé skráður 16. maí en nokkrir skólar eru að skoða þann möguleika að dvelja síðustu vikurnar í mai. Langflestir skólarnir koma aftur og aftur „Það er búið að ganga svakalega vel í vetur og aðsóknin hefur verið mjög góð. Það er almenn ánægja hjá nemendum og kennurum sem hingað koma og langflestir skólarnir koma aftur og aftur. Við getum sagt að það sé komin hefð á rekstur búðanna, allir skólar vita af okkur og aðsóknin hefur aukist jafnt og þétt. Krakkar, sem ekki hafa komið áður, hafa þrýst á sina skóla að koma því að það hefur spurst út að hér sé unnið gott og spennandi starf," segir Anna Margrét. Hún segir það mjög gefandi að starfa við búðirnar. Bókanir eru þegar farnar að berast fyrir næsta vetur en Anna Margrét segir að fullt skrið komist á bókanir með vorinu. SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 15

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.