Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2008, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.02.2008, Blaðsíða 18
'13.UNGLINGA LANDSMÓT UMFÍ Umsóknir óskast Ungmennafélag íslands óskar eftir umsóknum frá sambandsaðilum og sveitarstjórnum um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 13. Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður 2010. Unglingalandsmót um verslunarmannahelgina Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð haldin um verslunarmannahelgina ár hvert. Keppt er í fjölda íþróttagreina í aldursflokkum 11-18 ára. Á Unglingalandsmótum er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Unglingalandsmót UMFÍ hafa á undanförnum árum hlotið góðar viðtökur hjá fjölskyldufólki jafnt sem ungu fólki, enda góður kostur sem heilbrigð skemmtun um mestu ferðahelgi ársins. Unglingalandsmót UMFÍ 2008 verður haldið í Þorlákshöfn dagana 1.-3. ágúst í sumar. 11.UNGLINGA LANDSMÓT umfI Porlákshöfn 13. ógúst Mikil lyftistöng fyrir bæjarfélög Unglingalandsmót UMFl hafa verið mikil lyftistöng fyrir bæjarfélögin þar sem þau hafa verið haldin. Öflug uppbygging íþróttamannvirkja og aðstöðu hefur jafnan fylgt mótunum. Auk þess hafa mótin hleypt lífi í innra starf þeirra félaga sem komið hafa að framkvæmd mótanna. Umsóknarfrestur er til 30. apríl Umsóknum um að halda 13. Unglingalandsmót UMFÍ 2010 skal skilað til Þjónustumiðstöðvar UMFl, Laugavegi 170-172, 105 Reykjavík fyrir 30. apríl 2008. Ungmennafélag www.umfi.is íslands 18 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.