Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Blaðsíða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Blaðsíða 9
„Repulse" stæðu þeim báðum á sporði og gætu með góðum árangri ráðist á þau. En þá fékk þýzka flotamálastjórnin dirf- skufulla hugmynd. Herráðsfundur var haldinn í Berchtesgaden 18. maí, rétt um það bil, sem innrásin á Krít var að komast í framkvæmd. Helztu menn fundarins voru Hitler, stór-aðmíráll Raeder, flotaforinginn Luetjens og Keitel hershöfð- ingi. Flotastyrk Þjóðverja var þá þannig fyr- ir lcomið: „Gneisenau“ og „Scharnhorst“ voru í franskri höfn, 37,000 smálesta herskipið „Bismarck“ lá í Þrándheimsfirði, tilbúið til hemaðaraðgerða. Systurskip hans, hinn nýi „Tirpitz“, var á reynzluferð í Eystrasalti. Hitler vildi fyrst, að bæði „Bismarck" og „Tirpitz" yrðu send út í Atlantshafsleiðang- ur þar sem þau myndu áreiðanlega draga að sér allan brezka flotann til eftirfarar. Luet- jens flotaforingi lagðist gegn því, á þeim grundvelli, að hann taldi að skipshöfnin á „Tirpitz“ væri ekki ennþá nógu æfð í meðferð skipsins. Hann hélt því fram, að „Bismarck" einn yrði nægileg ógnun, til þess að Bretar beittu miklum flotastyrk að honum. Raeder aðmíráll kom þá fram með hug- mynd, sem hann hafði lengi búið yfir í leyni. Eftir talsverðar umræður var hún samþykkt af Luetjens flotaforingja. „Bismarck" átti, í fylgd hins nýja 10,000 smál „Prince Eugen“, að sigla langt norður á bóginn, sveima um- hverfis Island og brjótast í gegn í Norður- Atlantshafi. Þar áttu bæði skipin að ráðast á stórar brezkar skipalestar og gera sem mestan glundroða og eyðileggingu. Þegar því væri lokið, áttu þau að halda í suðaustur. — Það myndi verða til þess, að Bretar ályktuðu, að þau væru á leið til hafnar í Frakklandi, og flotadeildin við Gibraltar yrði send út til þess að hindra þau í því. Hin raunverulega ákvörðun um „Bismarck“ og „Prince Eugen“, var þó ekki að sigla í franska höfn. Á heppilegu augnabliki áttu þau að breyta um stefnu og halda til Azoreyja. — Hið mikla og sterka skip „Bismarck“ átti að sigla inn á höfnina í Horta og þýzkir sjóliðar með leiftursnöggri árás, að hertaka borgina. Floti af þýzkum birgðaskipum átti að leggja af stað úr frönskum og spönskum höfnum, hlaðin þungum og stórum strandar fallbyss- um, átti samtímis að vera komin til Horta, og þýzkur flugfloti átti að leggja af stað með nægilegt af fallhlífarhermönnum til þess að halda eyjunum, þar til hjálparstyrkur kæmi. „Stuka“-sprengiflugvélar og „Messerschmitt“- orustuflugvélar, með lendingarstöðum á Azor- eyjum, áttu að sjá fyrir því, að brezkur flota- styrkur kæmist ekki svo nálægt eyjunum, að hægt væri að trufla aðgerðirnar. Möguleikar þessarar æfintýralegu hug- myndar voru vegnir fram og til baka. Luet- jens flotaforingi hélt því fram, að undantek- inni einstakri óheppni, þannig, að tundurskeyti skyldi hitta skrúfur eða stýrisútbúnað „Bis- marcks“, sem hann taldi, aðeins einn mögu- leika af tuttugu, þá gæti hann ráðið niður- lögum hvaða flotadeildar sem Bretar gætu sent á móti honum og jafnvel, þó þær væru tvær. Eins og endalokin sýndu höfðu flotaforingj- arnir rétt fyrir sér á ýmsum sviðum. „Bis- marck“ barðist við hin miklu herskip „Hood“ og hið nýja og fullkomna orustuskip „Prince of Wales“ og sökkti því fyrrnefnda. Hann dró að sér Gibraltarflotann út í Atlantshafið. Ásveldin gátu sent miklar hergagnabirgðar yfir til Líbyu, og Frakklandi heppnaðist að senda að minnsta kosti nokkurn hluta af inni- frosnum hergögnum til Norður-Afríku. En einnig hinn eini möguleiki af tuttugu, sem Luetjens hafði sett fram gegn sjálfum sér, varð að raunveruleika. Stýrisumbúnaður og skrúfur „Bismarcks“ urðu fyrir tundur- skeyti frá brezkum flugvélum, sem lamaði hann stórkostlega, gerði undankomu ómögu- lega, og að lokum leiddi til þess eftir ægilega orustu, að honum var sökkt. 1 afleiðingum þessarar háfleygu hugmynd- ar nazistastjórnarinnar, misstu Bretar eyjuna Krít, og urðu fyrir mesta herskipatjóni styrj- aldarinnar. Ásveldunum heppnaðist að styrkja sókn sína að Suez-skurðinum frá Libyu að miklum mun. En Bretum tókst að afstýra mesta háskanum af því öllu, þeir eyðilögðu möguleikann fyrir þýzkri kafbáta- og flug- vélabækistöð á Azoreyjum. Jafnframt eltu þeir uppi og sökktu fimm af birgðaskipunum, er send voru til þess að aðstoða við hernám eyjunnar. Þýzka beitiskipið „Prince Eugen“ náði heilu og höldnu í franska höfn. Vegna þessa æfintýris ákvað portúgalska stjórnin að senda auliinn herstyrk til Azoreyj- anna, til þess að afstýra annari slíkri árásar- tilraun, ef reynd skyldi verða eftir sömu leið- um. Hefði „Bismarck“ tekizt að ljúka hlut- verki sínu, hefði líflína Bretlands þvert yfir Atlantshafið verið skorin í sundur. (í 6. liefti „Víkings" er frásögn af sjálfri orustunni ásamt nákvæmri skýringarmynd af allri ferð herskip- anna.) 9 VÍKIN6UR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.