Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Side 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Side 16
31./8. Komst samfcomulag á milli viðskiptanefndarinnar o g sendi- nefndar brezku stjórnarinnar um sölu á eftirfarandi fiskafurðum: — Nýjum fiski, saltfiski, frosnum fiski, nýrri síld og niðursoðnum fiski. — Einnig var samið um fiskflutninga- skip og verðlag á salti og olíu. ¥ Hófst kolaskömmtun í Reykjavík. 500 kg. er hámarkið, sem einstak- ling fœr í senn. ¥ 2. /8. Ríkisverksmiðjumar hafa nó fengið 190 þúsund mál, en um sama leyti í fyrra 476 þúsund mál. ¥ 3. /8. Haraldur Böðvarsson útgerð- armaður á Akranesi og frú hans, Ingunn Sveinsdóttir hafa nýlega gefið 100 þúsund krónur til elli- heimilis á Akranesi. ¥ Andaðist Marteinn Meulemberg biskup í Landakoti. Banamein hans var hjartabilun. ¥ 6./8. Sjómannaskólanum valinn staður á Rauðarárholti. Atvinnu- málaráðherra mælist til, að Reykja- víkurbær gefi lóð undir skólann. ¥ Strandaði erlendur togari á skeri hjá Bakka viS Bakkafjörð eystra. Skipshöfnin komst í land. ¥ 9./8. Bæjarráð mælir með, aS lóð- in undir Sjómannaskólann verði gef- in. ¥ 11./8. í síöustu ferð sinni að vest- an bjargaði „Selfoss" tveim frönsk- um sjómönnum, sem vom á litlum báti (doríu). ¥ 14./8. Komu útgerðarmenn báta hér við Faxaflóa og sjómenn saman á fund til þess að ræða hin nýju viS- horf, er hafa skapazt með brezk- íslenzka viðskiptasamningnum nýja. Kaus fundurinn nefnd til þess að ræða mál þessi við ríkisstjómina og afla frekari upplýsinga. ¥ 16./8. Kom Winston Churchill for- sætisráSherra Breta til Reykjavíkur. í fylgd með honum var m. a. yngri sonur Roosevelts, Eranklin D. Roose- velt yngri, ásamt æðstu mönnum hinna ýmsu deilda breska hersins. — Grengu þeir á fund Sveins Björns- sonar ríkisstjóra, fóra á hersýningu, komu að Reykjum í Mosfellssveit. W. Churchill flutti ræSu af svölum Alþingishússins. ¥ Fiskeigendur era nú í óða önn aS afhenda saltfisk sinn. Tveir farmar eru farnir og er verið að ferma tvö skip. ¥ 20. /8. Eimskipafélagið hefur fyrir nokkra tekið 3 skip í Ameríku á leigu til flutninga á vörum til lands- ins. ¥ Sást þýzk tveggja hreyfla flug- vél, sennilega „Heinkel 111,“ yfir Reykjavík. ¥ 21. /8. Fórst færeyska skútan „Solaris" á tundurdufli fyrir Aust- fjörðum. Fjórir menn af áhöfninni fórast, en þrír björguSust. „Solar- is“ var á leið til Seyðisfjarðar og átti aS taka þar fisk. ¥ 22. /8. Fyrir nokkru keypti hluta- félagiS „Sæfell“ í Vestmannaeyjum skipið „Sildebæreren“ fyrir 440 þús. krónur. Skipið er komið til Vest- mannaeyja frá Færeyjum og hefur hlotið nafnið „Sæfell“. „Sæfell“ hefur gufuvél, er 380 brúttó smál. og gengur um 8 mílur. ¥ 23-/8. Kvað sakadómari upp dóm í máli því, er réttvísin liöfSaði gegn þeim Valdimar Jóhannssyni ritstj. „Þjóðólfs" og Gunnari Benedikts- syni ritstjóra „Nýs dagblaðs". Máls- höfSun þessi var höfSuð vegna skrifa þessara blaða um brezk-íslenzka viðskiptasamninginn nýja. Valdi- mar var dæmdur í 60 daga varðhald, óskilorðsbundið, en Gunnar í 200 króna sekt, en til vara 15 daga varð- hald, ef sektin yrSi ekki greidd. ¥ 25./8. Voru um 100 marsvín rekin á land í Hellisvík á Skjálfanda. ¥ 27, /8. Skip hætta almennt síld- veiðum. ¥ Samkvæmt Arbók Slysavamafé- lagsins fórast 58 íslendingar af sjó- slysum árið 1940, en 11 árið áSur, 6 vélbátar yfir 12 smálestir aS stærð, 3 undir 12 smálestum, 4 opnir vél- bátar og 1 togari. — Alls björguðu íslendingar 1113 sjófarendum úr sjávarháska árið 1940, þar af 503 Bretum, 400 Frökkum, 62 Þjóðverj- um, 40 Belgíumönnum, 30 Norð- mönnum, 38 Svíum, 41 Islending. ¥ 28. /8. Kom Elliot Roosevelt, næst yngsti sonur Roosevelts forseta, til Reykjavíkur. 1. /8. Tilkynnti brezka stjómin. að hún muni kalla heim sendiherra sinn frá Helsingfors. ¥ 2. /8. Árásir og gagnárásir skipt- ast á á austurvígstöövunum, án þess að nokkrar veralegar tilfærslur veröi. ¥ Japanir draga saman mikið lið við landamæri Síberíu ¥ 5./8. ÞjóSverjar hefja sóknina að Kiev og Leningrad ¥

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.