Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Page 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Page 18
islenzk skip hafa nú verið tekin undir’yerndarvæng Bandarikjaflolans. Það þykir þvi iilhlýðilegi að kynna mönnum sögu hans og hvað vænta megi af honllm Bandaríkjaflotinn Meðal amerískra sjóliða er mjög í hávegum höfð sagan af heimsókn Joe Fife til Hong Kong á ríkisárum Victoríu drottningar. Ölvuðum sjóliða í flotadeild Ameríkumanna varð það á að skjóta 22 kveðjuskotum í stað tuttugu og eins. f staðinn fyrir að svara kveðjunni, spurði brezki flotaforinginn drembilega hvað þetta ætti að þýða. Ameríkumönnum varð fyrst svara fátt, en áttuðu sig brátt og svöruðu á merkjamáli: „Tuttugu og eitt skot handa Vic- toríu drottningu, og eitt fyrir Joe Fife flota- foringja og hana nú“. Þetta er í stuttu máli saga Bandaríkjaflot- ans upp til þess tíma, er Bandaríkjamenn komu sér í upphafi upp flota í þeim tilgangi að brjóta hafnbann Breta í frelsisstríðinu, og þeim tókst það. Síðar vann flotinn sér álits í viðureign við sjóræningja frá Tripoli, og gegn Suðurríkjunum í þrælastríðinu. Með tímanum vonuðust Bandaríkjamenn að geta keppt við brezka flotann um yfirráð- in á heimshöfunum. En í staðinn fyrir að til árekstra kæmi milli þessara aðila, sneru þeir bökum saman 1917 gegn sameiginlegum óvini og nú er farið að spá að þetta sama muni aftur endurtaka sig, eftir því, sem almenningsálitið í Bandaríkjunum hallast meir og meir að því, að Bandaríkjaflotann beri að nota til að vernda flutninga til Bretlands. Þessari skoðun er bezt lýst með tilsvari öldungadeildar þingmannsins, Carter Glass, er hann hreytti út úr sér: ,,Ef Þjóðverjar sökkva vörum vorum, eigum við að skjóta úr þeim óknyttina“. Slíkar aðfarir mundu senni- lega leiða til ófriðar við möndulveldin og Jap- ani, ef iJapanar reynast þríveldasáttmálanum trúir. Spurningin er, hvort Roosevelt forseti ræð- ur yfir flota, sem fær er að leggja í slík stór- ræði, og hvernig hann muni reynast. í augum almennings í Bretlandi og Ameríku er floti þessi mikill og útgjaldafrekur leyndardómur, sem enn á eftir að sýna hvers hann er megn- ugur í nýtízku styrjöld. VÍKINGUR Síðasta stórviðureignin, sem hann tók þátt í, var gegn spánska flotaforingjanum Cer- vera, sem sendur var með flotadeild yfir At- lantshafið í spánsk-amerísku styrjöldinni 1898 og skaut amerísku fólki skelk í bringu á allri strandlengjunni frá Florida til New York. En 4. júlí, frelsisdag Bandaríkjanna,. réðist hinn sundurleiti floti þeirra gegn hinum álit- lega flota Spánverja við Santiago á Cuba og þröngvuðu honum til fullkominnar uppgjafar. Þessi flotasigur, leiddi þó í ljós tvenns kon- ar áberandi vangalla. Til þess að geta tekið þátt í þessari orustu varð herskipið ,,Oregon“ að fara frá Kaliforníu og alla leið suður fyrir Cape Horn, vegna þess að enginn Panama- skurður var til. í öðru lagi lýsti William Sims, sem tók þátt í orustunni, yfir því, að skotfimi Bandaríkjamanna hefði verið herfileg. — En Theodore Roosevelt forseti gerði þá boð eftir ,,drengjunum“, og með aðstoð Sims og „Bar- áttu Bobs“ Evans komu þeir á laggirnar fyrsta flokks flota, sem síðar varð þekktur undir nafninu: „Stóri stafurinn hans Roosevelts“. í desember 1907 var „Stóri stafurinn“ send- ur í ferðalag kringum hnöttinn og stóð það yfir þangað til í febrúar 1909. Hin 16 hvít- máluðu orustuskip með gulu reykháfunum, sigldu á þessu tímabili 42,227 sjómílur og „sýndu flaggið“ í 20 erlendum löndum. Til- gangurinn með ferð,alaginu var að sýna heim- inum að Bandaríkin væru sjóveldi fremri öll- um öðrum en Stóra-Bretlandi einu undan- teknu. „Teddy“ Roosevelt bætti einnig úr hinum ágallanum með byggingu Panamaskurðarins eins og vara-aðmíráll Alfred Theyer Mahan hafði ráðlagt fyrir löngu. Þegar Bandaríkin hófu þátttöku sína í heimsstyrjöldinni 1917, var floti keisarans innikróaður, og aðstoðar Bandaríkjaherskip- anna var ekki þörf. En þau unnu dyggilega og hlutu ágæta reynslu í því að vernda 2 milj. Bandaríkjahermenn á ferð þeirra yfir til Frakklands, án þess að nokkuð kæmi fyrir. ■— Eftir síðustu styrjöld afhenti stjórnin í Wash- 18

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.