Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Page 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Page 21
Ríkisstjórnin heið rar skipshöfnina á „Esju Ríkisstjóri íslands heiðraði 2. sept. skips- höfnina á „Esju“ í viðurkenningarskyni fyrir skyldurækni í störfum og góða framkomu í ferð „Esju“ til Petsamo og heim aftur haustið 1940. Skipshöfninni var veitt móttaka hjá ríkis- stjóra og frú hans í móttökuherbergjum rík- isstjóra, og var Stefán Jóhann Stefánsson, fé- lagsmálaráðherra viðstaddur f. h. ríkisstjórn- arinnar. Ríkisstjóri ávarpaði skipshöfnina með nokkrum orðum og minntist þess, að hann hefði átt þess kost, e. t. v. betur en flestir aðrir, að fylgjast með því, hve vel Petsamo förin hefði tekist. Afhenti hann síðan hverjum ein- stökum skipverja heiðurspening og fylgdi hverjum pening svohljóðandi skjal: „Skjali þessu fylgir heiðurspeningur úr silfri með gröfnu nafni yðar. Afhendir ríkis- stjórnin yður hann til eignar í viðurkenning- arskyni fyrir skyldurækni í störfum yðar og góða framkomu í ferð „Esju“ til Petsamo og þaðan til Reykjavíkur í september og október 1940, er hún flutti heim til Islands 258 ís- lenska ríkisborgara, sem teppst höfðu á Norð- urlöndum vegna ófriðarins. Lætur ríkisstjórnin í ljós þá ósk, að þér varðveitið peninginn til minningar um þessa einstæðu ferð. Reykjavík, 20. maí 1941. Rikisstjórn Islands.“ Fyrsti heiðurspeningurinn var afhentur skipstjóranum. Ávarpaði ríkisstjóri hann sér- staklega nokkrum orðum og þakkaði honum hið ábyrgðarmikla starf, er hann hefði leyst af hendi með mikilli prýði, er hann sigldi skipi sínu heilu og höldnu til Petsamo og heim aft- ur. Að lokum ávarpaði framkvæmdastjóri Rík- isskip, Pálmi Loftsson, ríkisstjóra nokkrum orðum, þakkaði þá viðurkenningu, er skips- höfninni hefir verið sýnd. Hann sagði, að þótt íslenzk sjómannastétt væri hert við frost- vinda og sjávarseltu, þá kynni hún e. t. v. einkum af þeirri ástæðu, vel að meta skiln- ing, sem henni væri sýndur. Islenzkur togaraskipsijóri sæmdur heiðursmerki fyrir björgun Páll Aðalsteinsson, skipstjóri, sonur Aðal- steins Pálssonar, skipstjóra á Belgaum, hefur verið sæmdur heiðursmerkinu M. B. E. (Mem- ber of the British Empire) fyrir að bjarga mönnum úr sjávarháska. Honum tókst, þrátt fyrir það að skip hans hafði orðið fyrir "skemmdum af flugvélaárás, að bjarga 28 mönnum af öðru skipi. Atvik að því voru þessi: Togarinn „The Ness“ frá Grimsby, sem Páll er skipstjóri á, var í skipalest, er þýzkar flug- vélar bar þar að. Réðust þær á skipaflotann og hæfði sprengja skip Páls, svo að það lask- aðist allmikið. Annar togari varð líka fyrir sprengju og tók að sökkva. Flutningaskip frá London, sem var næst, setti þá út bát með sjö mönnum, til þess að reyna að bjarga skipshöfn togarans. En veður var svo mikið og sjógangur, að bát- urinn fékk ekki við neitt ráðið, og urðu bát- verjar seinast að flýja upp í hið sökkvandi skip. Þá var það, að Pál bar þarna að. Hann af- réð þegar að reyna að bjarga mönnunum, því að hinn togarinn maraði þá hálfur í kafi. En menn Páls sögðu, að það væri óðs manns æði; hann mundi aðeins brjóta sitt eigið skip, ef hann legðist að hinu skipinu í þessu foraðs veðri og stórsjó. En Páll svaraði aðeins: „Ég ætla að bjarga þessum mönnum“, Svo lagði hann skipi sínu síbyrt við hinn sökkvandi togara og gat fest vírkaðli í fram- stafn hans og haldið honum að sínu skipi á meðan mennirnir forðuðu sér. Þegar seinasti maðuiúnn var kominn upp á skip Páls, lét hann höggva á strenginn og samstundis sökk tog- arinn. En Páll komst með sitt bilaða skip til hafnar. Páll er kornungur maður, rúmlega tvítugur. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.