Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Blaðsíða 19
ington Atlantshafið í vinsamlega umsjón
Breta, en þegar Hitler sigraði Frakka og þeir
eygðu möguleika fyrir ósigri Breta, vöknuðu
þeir til meðvitundar um þá hættu, sem Banda-
ríkjunum gæti stafað af því að þurfa að verja
Atlantshafið og Kyrrahafið samtímis. Það
varð til þess að þingið samþykkti hina miklu
flotaaukningu, sem verður þó ekki að fullu
framk/æmd fyrr en 1946.
Annað verkefni er bygging risastórra her-
skipa til höfuðs þeim, sem Japanir eru nú að
byggja í leynd. Stærð Bandaríkjaherskipa
takmarkast af stærð kvíanna í Panamaskurð-
inum. Þegar flugvélamóðurskipin „Lexing-
ton“ og ,,Saratoga“ fóru í gegnum skurðinn,
skröpuðust síður skipanna við kvíaveggina og
sópuðu burt ljóskerum sem þar voru fest.
Nýjar kvíar við Gatum, Mira flores og San
Miguel, eru nú í smíðum og verða þær tilbún-
ar að tveim árum liðnum. En þar sem hinar
nýju kvíar geta vel verið eyðilagðar í sprengju-
árás eða af skemmdarstarfsemi, verða ný her-
skip að takmarkast af stærð gömlu kvíanna
svo hægt verði að nota þær í neyðar tilfellí.
Merkileg staðreynd er það, að Mahan, sem
skrifað hefir einhver beztu heimildarrit um
sjóveldi og sem er brautryðjandi hinna bryn-
vörðu herskipa, skyldi ekki vera nógu stór-
huga í útreikningum sínum, þegar Panama-
skurðurinn var byggður. Það var til að auka
varnarmöguleika Panama, sem Bandaríkja-
menn fengu Caribbean bækistöðvarnar hjá
Bretum, og röð af flugvélum handa flotanum,
er nú verið að koma upp á Floridaskaganum.
Ef ske kynni að til styrjaldar drægi við ás-
veldin, verða flotaforingjarnir Harold Reins-
ford og Husband E. Kimmel að undirbúa
verndun kaupskipa í Atlantshafi og sjóorust-
ur við Japani í Kyrrahafi. Hið síðarnefnda
verkefni er öllu meira. Vegna hinnar miklu
fjarlægðar getur það orðið hættulegt að senda
aðalflotann til að berjast við Japani á þeirra
heimaslóðum. Aðalbækistöð BandaríkjaFot-
ans er í Pearl Harbour 3,400 míliu fvá Yoko-
hama, en það lengsta, sem hægc er að beita
orustuflota á fullri ferð, eru 2000 n.ílur.
Þjóðþingið féllst nýlega á það, að láta víg-
girða Guameyjuna, sem liggur mikið nær Jap-
an, en aðstaðan þar er ekki nægilega góð til
að gera þar óvinnandi virki.
Þegar athugaðir eru möguleikarnir í sjó-
orustum milli Bandaríkjanna og Japana, er
vert að athuga, að orustuskip Bandaríkjanna
eru ekki eins hraðskreið, meðal hraði þeirra
er um 21 míla. Aftur hafa þau stærri fallbyss-
ur, eru betur brynvarin, og útbúin til lengri
19
„Hinn mikli hvíti fIoti“ í Magellansundi á ferð sinni
umhverfis hnöttinn, undir stjórn Reer aðmíráls 1907—
1909. Sigldi 42.227 mílur og Jsýndi flaggið“ í 20 löndum.
leiðangra án þess að valda skipverjum óþæg-
indum um of.
Þetta stafar af hnattstöðu Bandaríkjanna.
Meðan brezka heimsveldið ræður yfir keðju
af flotastöðvum um öll höf, svo brezku her-
skipin þurfa ekki að leggja á sig nema smá-
ferðir í einu, verða skip Bandaríkjanna að
vera þess megnug að flytja með sér nægilegt
af eldsneyti og skotfærum, vegna þess að þeir
ráða yfir fáum bækistöðvum og sem laugt er
á milli.
Annar gæðamunur milli brezku og amer-
ísku herskipanna er það, að Ameríkumenn
nota kojur í staðinn fyri húðföt, og steypiböð
í staðinn fyrir hina gamaldags brezku þvotta-
bala, og þau hafa verið þurr skip alla tíð síð-
an bannvinurinn Josephus Daniels flotamála-
ráðherra gaf út fyrirskipun nr. 99, 1914 um
að banna notkun áfengra drykkja í skipum
flotans af heilbrigðislegum ástæðum.
Engar hömlur eru þannig lagðar á sjómenn-
ina í landleyfi. Þeir skoða sjóferðina sem hvíld
frá „skorsteins kránum“, en það kalla þeir
knæpur þær, sem skila þeim þannig að þeir
þykjast góðir ef þeir komast upp gangbrettið
án þess að velta í sjóinn.
Eins og svo margir sjómenn, þá nota þeir
sín eigin orð yfir ýmsa hluti. Þeir kalla her-
skipin ,,orustutrog“ og pönnuköknr kalla þeir
,,frí-holt“. Kvenfólk hafa þeir ýms nöfn yfir.
Venjulega kalla þeir stúlkurnar „mávana“ af
því þeir elta skipin. Skipin eru alltaf kven-
kennd, því þau eru svo mikið máluð, öll um-
kringd af karlmönnum, og valda djöfulsins
hávaða í hverri sennu.
Meira en þriðjungur sjóliðanna eru sveita-
menn innan úr miðju landi, og eftir að hafa
íengið góða æfingu á æfingarstöðvunum við
Stóru vötnin, reynast þeir ágætir sjómenn, vel
menntaðir og skynsamir.
Þangað til á þessu ári var stjórn flotans í
höndum J. O. Richardson aðmíráls. Honum
VÍKINGUR